Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 26
26 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður á
Íslandi fengu leyfi til ávísa hormóna-
getnaðarvörnum með samþykki
Alþingis undir árslok 2018. Það er
seint í ljósi þeirrar þróunar sem
átt hefur sér stað í öðrum löndum
og ber merki um afturhaldssemi
og skort á skilningi á menntun
hjúkrunarfræðinga og möguleikum
þeirra til að leggja meira af mörkum til
heilbrigðisþjónustunnar.
Dropinn holar steininn
Sækja þarf um leyfi til Embættis landlæknis til
að mega ávísa þessum lyfjum og einungis þeir
koma til greina sem hafa tekið viðbótarnám og
starfa innan heilsugæslu-, kvenlækninga- eða
fæðingarþjónustu. Í vinnslu er undirbúningur
viðbótarnáms fyrir hjúkrunarfræðinga sem
m.a. tekur mið af fyrirkomulagi og reynslu
erlendis. Þessi samþykkt Alþingis var lokaskref
í áratugabaráttu. Segja má að óbilandi trú á
málstaðinn, þrautseigja, stöðug áframhaldandi
barátta, gagnreynd þekking og pólitískur vilji
hafi haft mikið að segja til að málið komst
loks í höfn og dropinn hafi því smám saman
holað steininn. Í framhaldinu má gera ráð
fyrir að þessi lagabreyting leiði til frekari
leyfisveitinga varðandi önnur mikilvæg lyf sem
hjúkrunarfæðingar þurfa að geta ávísað líkt og
gert er víða erlendis.
Réttur til kynheilbrigðis virtur
Með þessari samþykkt Alþingis opnast ný
leið fyrir hjúkrunarfræðinga, sem starfa í
heilsugæslu og þar sem kvenlækningaþjónusta
er veitt, til að stuðla að kynheilbrigði fólks,
sérstaklega hvað viðkemur takmörkun
barneigna. Hér er því um að ræða mikilvæga
útvíkkun á starfi þeirra. Útvíkkunin felst
ekki eingöngu í því að geta á heildrænan
hátt unnið með skjólstæðingnum frá fyrsta
skrefi og til lokaskrefs þjónustuferlisins
heldur að meta heilbrigðisástand og
greina hvaða getnaðarvarnir geta hentað
þeim. Hið alþjóðlega samfélag hefur
margsinnis samþykkt að fólk eigi rétt á að
taka ákvörðun um fjölda barna og bil milli
barneigna. Því er mikilvægt að fólk í íslensku
samfélagi geti tekið góðar ákvarðanir um
sína frjósemi. Til að svo geti orðið þarf
að sjá til þess að réttur einstaklingsins til
kynheilbrigðis sé virtur. Það er réttur sem
alþjóðlegar stofnanir hafa sett fram, svo
sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO, 2006, 2010), Alþjóðasamtök
um fjölskylduáætlun (IPPF, 2008)
og Alþjóðasamtök um kynheilbrigði
(WAS, 2014). Þessi réttur byggist á
grundvallarmannréttindum og felst meðal
annars í því að hafa aðgang að þjónustu sem
stuðlað getur að kynheilbrigði einstaklingsins,
fá gagnreyndar upplýsingar um getnaðarvarnir
og vera frjáls að taka ákvörðun um notkun
getnaðarvarnar. Til að fólk geti sjálft tekið
góða ákvörðun um getnaðarvarnir þarf sá sem
veitir ráðgjöfina að fylgja hugmyndafræði
hennar þar sem samráð er grundvallaratriði.
Þó nauðsynlegt sé að skoða frábendingar gerir
ráðgjafarferlið kröfu um að fleira sé skoðað
til að unnt sé að taka upplýsta ákvörðun
og til að stuðla að meðferðarheldni. Mörg
dæmi úr mínu klíníska starfi við ráðgjöf um
getnaðarvarnir á kvennadeild Landspítalans
eru um það þegar konur eða stúlkur hafa
ekki fengið nægjanlegar upplýsingar um sína
getnaðarvörn, t.d. um verð sem hefur reynst of
hátt til að þær geti leyst lyfseðilinn út. Annað
dæmi varðar konu sem fær homónasprautuna
og óttast ófrjósemi ef hún hættir á blæðingum.
Þriðja dæmið snýr að notkun pillunnar
fyrstu mánuðina þar sem stúlka er með
blettablæðingar. Hún efast um að pillan virki
og hættir notkun hennar án þess að leita sér
frekari upplýsinga.
Dropinn
holar steininn
Áratugabaráttu hjúkrunarfræðinga fyrir
ávísun hormónagetnaðarvarna lokið
Dr. Sóley S. Bender
sérfræðingur í hjúkrun og
prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ
1920 1921
Fyrsti hjúkrunarnemi Félags íslenskra hjúkrunarkvenna hefur nám á Vífilsstöðum