Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Qupperneq 44
44 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Vorið 1999 var ég við það að ljúka doktorsnámi, hafði unnið í 12 ár í Háskóla Íslands og menntunarmál hjúkrunarfræðinga voru mér mjög ofarlega í huga. Meistaranám í hjúkrun var nýhafið í HÍ og mikil gerjun í gangi. Þá var auglýst framboð til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ég hvött til að bjóða mig fram. Ég tók þeirri áskorun. Fréttir frá félaginu voru yfirleitt tengdar kjaramálum og baráttu að mér fannst og ég vildi skoða menntamál hjúkrunarfræðinga, framhaldsnám, símenntun og nýtingu menntunar í starfi. Raunin varð hins vegar að mestum hluta af tíma mínum var varið í kjaramál, ekki menntamál. Kjarafulltrúi félagsins hætti störfum um svipað leyti og ég byrjaði og nýr hóf störf u.þ.b. átta mánuðum síðar svo kjara- og réttindamál voru alfarið á mínu borði. Ég tók þá ábyrgð mjög alvarlega að hjúkrunarfræðingar, sem leituðu til félagsins, fengju réttláta lausn mála sinna. Þá tóku kjarasamningar og stofnanasamningar mikinn tíma að ónefndu tveggja daga verkfallinu í maí 2001, fyrsta verkfalli Fíh Þar held ég að við höfum farið rétta leið, þ.e. að leggja fram áætlun um tveggja daga verkföll en ekki eitt langvarandi. Starfið við samningaborðið er minnisstætt og mér fannst það oftast ögrandi og skemmtilegt. Einu atviki man ég eftir því mér þótti það asnalegt og hlægilegt. Við í samninganefnd hjúkrunarfræðinga höfðum slitið fundi eitt sinn þar sem hvorki gekk né rak því formaður samninganefndar ríkisins (SR) var ekki á staðnum. Á næsta samningafund mætti öll 14 til 16 manna SR í halarófu á boðaðan samningafund (venjulega voru þetta 3 til 4 aðilar á fundum frá þeim), settist á móti okkur við fundarborðið og tilkynnti að þau öll hefðu samningsumboðið en ekki bara formaðurinn. Því næst slitu þau fundi og hersingin stormaði út. Hvílíkt hallærisleikrit! Samtals var þarna um nokkurra klukkustunda vinnu ríkisstarfsmanna að ræða, hafði fólkið ekki annað við tíma sinn að gera? hugsaði ég. Baráttumál hjúkrunarfræðinga voru að mörgu leyti svipuð þá og nú: hærri laun, styttri vinnutími, betri aðbúnaður á vinnustað, menntun metin til launa og fleira. Í stofnanasamningum gætti þó nýs hugsunarháttar, það er að hæfni í klínískri hjúkrun skyldi viðurkennd og metin til launa en það þýddi að allir hjúkrunarfræðingar fengju ekki endilega sömu laun. Það gat verið erfitt að fella þá nálgun inn í hugsunarhátt hjúkrunarfræðinga. Heljarstórt ímyndarátak var unnið 2002 til að kynna á raunhæfan hátt störf hjúkrunarfræðinga og tóku fjölmargir hjúkrunarfræðingar þátt í því. Meginmarkmið átaksins var að 116 hjúkrunarfræðingar skyldu útskrifast ár hvert frá árinu 2006. Fjölgun var sem sagt í brennidepli þá líkt og nú. Raðgreining erfðaefnisins og áhrif líftækni á heilbrigðisþjónustu var mikið til umfjöllunar í samfélaginu á þessum árum og var samin skýrsla um stefnu Fíh í þeim efnum og ályktað um líftækni á fulltrúaþingi Fíh 2003. Það var hins vegar lítil eftirfylgni með því. Auður í krafti kvenna var átak sem hafði það að markmiði að auka þátttöku kvenna í atvinnusköpun. Fíh stóð fyrir námskeiði fyrir hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Háskólann í Reykjavík sem hafði umsjón með átakinu. Námskeiðið var fullt, ef ég man rétt, og áhugavert væri að frétta hvað varð um atvinnusköpun hjúkrunarfræðinganna sem það sóttu. „Jaðarsmálið“ svokallaða tók mikinn tíma en sveitarstjórn Snæfellsbæjar ákvað árið 1999 að ráða sjúkraliða til að leysa af hjúkrunarforstjóra Dvalarheimilisins Jaðars, eina hjúkrunarfræðinginn á staðnum, í fæðingarorlofi. Hjúkrunarfræðingur hafði líka sótt um og samkvæmt lögum skyldi veitt hjúkrunarþjónusta á öldrunarstofnunum með hjúkrunarrými. Ráðningin var kærð og erindið sent fram og til baka milli ráðuneyta en niðurstaðan var að sveitarstjórnin komst upp með þetta. Ýmislegt fleira rifjast upp, t.d. sameining heilbrigðisstofnana, ritun bókar um sögu hjúkrunar hófst, skýrsla Ríkisendurskoðunar um að fyrsti viðkomustaður heilbrigðisþjónustu væri heilsugæslan en hjúkrunarfræðingar og hreinlega allir aðrir en læknar gleymdust í umfjölluninni, staða sérfræðinga í hjúkrun og rafræn skráning hjúkrunarupplýsinga svo fátt eitt sé nefnt. Ég hef ekki komið inn á erlent samstarf sem tók mikinn tíma og skiptir gífurlega miklu máli til að deila hugmyndum á milli landa og samstæðum tillögum að ýmsum úrbótum. Framtíðarsýn mín nú er í grunninn sú sama og fyrir 20 árum: Vel menntaðir hjúkrunarfræðingar sem standa föstum fótum í raunveruleika klíníska starfsins og geta tengt vel saman klíníska þekkingu og gagnreynda þekkingu skjólstæðingnum til hagsbóta. Helstu samstarfsaðilar mínir voru fulltrúar í kjaranefnd, stjórn, starfsmenn á skrifstofu BHM og Fíh og ljóst að formaður áorkar litlu ef hann hefur ekki gott fólk með sér og það hafði ég. Að lokum, ég sakna gluggans á Suðurlandsbraut og útsýnisins. Hvílík dásemd. Hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á tvíburaturnana í New York þegar ég var formaður og mér er mjög minnisstætt að hlusta á fréttirnar af þeim á skrifstofunni á Suðurlandsbraut og horfa á Esjuna og friðsældina. Sem betur fer voru aldrei slík átök í gangi á mínum formannsferli. Klínísk og gagnreynd þekking, skjólstæðingum til hagsbóta FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI Dr. Herdís Sveinsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 1999–2003 1943 Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna stofnaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.