Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 54

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 54
54 | Tímarit hjúkrunarfræðinga „Hvert er framlag hjúkrunar til heilbrigðis og hver er kjarni hjúkrunarstarfsins?“ Þessar stóru spurningar voru kjarni fræðistarfa míns ágæta leiðbeinanda, Margaret A. Newman, og kveiktu áhuga minn á þessu rannsóknarverkefni til langrar framtíðar. Framlagi hjúkrunar til heilbrigðis og velferðar skjólstæðinga hefur verið lýst með ýmsum hætti í áranna rás. Lengst af hafa eigindlegar rannsóknir, sem hafa skírskotun til þess að skapa merkingarbæra tilveru í erfiðum veikindum, einkum meðal langveikra lungnasjúklinga og fjölskyldna þeirra, verið mér hugleiknar. Síðar komst ég að því að til að hljóta áheyrn ráðamanna og til að geta borið saman árangur hjúkrunar við mismunandi aðstæður þyrfti jafnframt tölulegar staðreyndir. Mælingar á lífsgæðum, og þá einkum heilsutengdum lífsgæðum, hafa í vaxandi mæli verið notaðar í þessum tilgangi. Með notkun mælitækja á heilsutengdum lífsgæðum er leitast við að leggja tölulegt mat á sjónarhorn skjólstæðinga um það hvað skiptir þá á máli er varðar heilbrigði þeirra og velferð. Þátttaka fjölskyldu er órjúfanlegur þáttur í hjúkrun og samvinna lykilatriði til árangurs Langvinnir lungnasjúkdómar eru einn af stærstu sjúkdómaflokkunum sem heilbrigðisþjónustan fæst við. Í eðli sínu eru langvinnir lungnasjúkdómar ólæknandi og draga hægt og bítandi úr heilsu og vellíðan fólks. Frá sjónarhorni velferðar og þjóðarhags er mikils um vert að hindra framgang sjúkdóms og lágmarka örorku og heilsuleysi fólks með langvinna lungnasjúkdóma. Til þess þarf öfluga heilbrigðisþjónustu, einkum hjúkrun. Fyrir tæplega tveimur áratugum hófst uppbygging á hjúkrunarstýrðri göngudeild fyrir fólk með langvinna lungnasjúkdóma og fjölskyldur þeirra. Meginmarkmið þjónustunnar var og er að ná til þessa stóra hóps skjólstæðinga, sem vitað er að berst oft í einangrun og einmanaleika við mikil og marvísleg vandamál, í þeim tilgangi að hlúa að og bæta lífsgæði þeirra. Byggt var á alþjóðlegum og innlendum rannsóknum um þarfir og vandamál skjólstæðinganna. Samhliða og til grundvallar þjónustunni var búinn til fræðilegur rammi um samráð (e. partnership) sem byggðist á alþjóðlegum rannsóknum í hjúkrunarfræði. Grundvallaratriði sam- ráðs er að mynda meðferðartengsl við skjólstæðinga, sýna þeim virðingu og skilning og virða sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Hjúkrunarfræðingar vinna með sjúklingum og fjölskyldum að því að skilja hvað að er, hvaða möguleikar eru í stöðunni og axla ábyrgð á að vinna saman að úrlausnum. Í fræðilega rammanum, sjá mynd 1, eru samræður (e. dialogue) regnhlífarhugtak. Samræðurnar hefjast á opinni nálgun um mikilvægustu atriði er varða heilsu viðkomandi. Þátttaka fjölskyldu er órjúfanlegur þáttur í hjúkruninni og samvinna við hana lykilatriði árangurs. Líf með einkennum er það atriði sem mest áhersla er lögð á í allri hjúkruninni. Þverrandi geta lungnanna til að sinna hlutverki sínu hefur áhrif á nánast alla þætti tilverunnar, einkum þegar fram í sækir. Samhliða þessu atriði er greiður aðgangur að heilbrigðisþjónustu; þjónusta á réttu þjónustustigi og þar með samvinna við aðrar heilbrigðisstéttir og stofnanir er mikilvæg. Þjónustan við sjúklinga hefst gjarna í kjölfar alvarlegrar versnunar á sjúkdómi eða þegar viðkomandi er með einum eða öðrum hætti kominn í þrot. Þá hefst mikil undirbúningsvinna að skilja vandamálin og sjónarhorn sjúklinga og fjölskyldna þeirra Hjúkrun bætir lífsgæði Dr. Helga Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ „GRUNDVALLARATRIÐI SAMRÁÐS ER AÐ MYNDA MEÐFERÐARTENGSL VIÐ SKJÓLSTÆÐINGA, SÝNA ÞEIM VIRÐINGU OG SKILNING OG VIRÐA SJÁLFSÁKVÖRÐUNARRÉTT ÞEIRRA“ 1955 1956 Fyrsti áfangi nýs húsnæðis Hjúkrunarkvennaskóla Íslands á Landspítalalóð, nú Eirberg, tekið í notkun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.