Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 86

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Page 86
86 | Tímarit hjúkrunarfræðinga Marga Thome kann þá list að styðja nemendur sína og samstarfsmenn. Marga hefur einstaka hæfileika í mannlegum samskiptum; hún sér þá góðu eiginleika sem búa í einstaklingum og hlúir að þeim. Hún hefur einlægan áhuga á fólki, líðan þeirra og aðstæðum. Það sést í samtölum hennar við aðra og hvernig hún talar um annað fólk. Og alls þessa hef ég fengið að njóta og nýt enn. Það er Mörgu að þakka hvernig ég hef vaxið sem sérfræðingur í hjúkrun og reglulegur þátttakandi í ráðstefnum um geðheilsu barna. Fyrstu kynni Leiðir okkar Mörgu lágu fyrst saman þegar ég hóf nám í sérskipulögðu BS-námi í hjúkrun eins og það hét. Þar sem ég var með hjúkrunarpróf þurfti ég BS-gráðu til að fara í meistaranám en þangað stefndi ég. Í BS- náminu þurfti maður þá eins og nú að gera lokaverkefni sem var rannsóknarverkefni. Eftir að hafa kynnst mörgum góðum kennurum í náminu var ég samt 100% ákveðin að fá Mörgu sem leiðbeinanda. En hvers vegna valdi ég hana? Það voru ákveðnir persónueiginleikar hennar sem mér líkaði strax við. Marga býr yfir mikilli þekkingu en er hógvær í framkomu. Hún reyndi ekki að ganga í augun á okkur nemendum að neinu leyti. Hún er hrein og bein. Marga bar virðingu fyrir klínískri reynslu og það var mikilvægt fyrir okkur eldri nemendur. Marga kann raunverulega að hlusta. En kennarinn Marga var jafnframt nákvæm og gat verið ströng. Eina vandamálið í upphafi samstarfs okkar Mörgu var að áhugasvið okkar voru gerólík. Hennar svið var grátvandi ungbarna og vanlíðan mæðra en mitt var alvarleg veikindi barna. Svo ég lagðist undir feld til að finna sameiginlegan flöt og niðurstaðan var „Innlagnir barna vegna svefnvanda“ sem þá tíðkuðust. Lokaverkefnið til BS-prófs gekk mjög vel og strax þá gerðum við með okkur rannsóknarsamning um að halda verkefninu áfram. Það var sjálfgefið að hún yrði leiðbeinandi minn í meistaraverkefninu. Hvatning og handleiðsla Viðfangsefnið um svefnvanda barna óx og óx og Marga hélt mér á tánum að vinna faglega. Hún kann svo vel að leyfa manni að vaxa. Hún sér tækifæri í verkum manns og hvetur mann áfram. Marga tók mig með sér á ráðstefnur og setti mér strax þá reglu að maður fer ekki á alþjóðlega ráðstefnu nema vera með faglegt innlegg. Hún sagði tvær ástæður vera fyrir því, annars vegar þá að þannig myndar maður tengsl við aðra í alþjóðlega samfélaginu og hins vegar setur það á mann þrýsting að vinna vel til að vera með eitthvað tilbúið að kynna á næstu ráðstefnu. Marga sagði líka að ef maður væri með góða hugmynd þá væri líklegt að einhver væri annars staðar með svipaða hugsun að gerjast. Á ráðstefnum um hugðarefnið er líklegast að maður finni þetta fólk og tengist því. Á fyrstu ráðstefnurnar með Mörgu fór ég með veggspjöld en Marga setti markið hærra fyrir mína hönd. Ég man vel eftir fyrsta erindinu mínu á ensku. Marga hafði valið góða en litla ráðstefnu og sagði ákveðið: „Nú ferð þú ekki með veggspjald, nú talar þú.“ Svo sat hún á fremsta bekk og hafði ekki af mér augun, ánægð á svipinn og ég lifði þetta af. Það eru margar skemmtilegar sögur af ráðstefnuferðum okkar Mörgu og alltaf ljóma af þeim þessir eiginleikar Mörgu að hvetja mann áfram til að efla styrk sinn og treysta sjálfum sér. Ég man þegar við sátum saman á fyrirlestri hjá Brazelton (þekktur fræðimaður á okkar sviði) og vorum að horfa á myndband af honum að meta hegðun og viðbrögð ungra tvíburastráka. Ég var öll uppnumin og þótti þetta frábært efni. Eftir myndbandið talaði Brazelton um það sem hafði verið að gerast milli hans og tvíburanna. Ég tengdi strax við það sem hann benti á, hafði sjálf komið auga Að gefa öðrum vængi – kynni af Mörgu Thome Arna Skúladóttir sérfræðingur í hjúkrun á Landspítala 1995 1995 Vigdís Magnúsdóttir verður forstjóri Landspítalans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.