Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2019, Síða 98
98 | Tímarit hjúkrunarfræðinga
Strax eftir að ég útskrifaðist frá námbraut í hjúkrunarfræði
árið 1979 var ég beðin um að koma í stjórn Félags
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og árið eftir var ég
orðin formaður.
Ástæðan fyrir því var fyrst og fremst sú að þáverandi formaður,
Jóhanna Bernharðsdóttir, var á leið til Bandaríkjanna í meistaranám.
Reynslulítil og blaut bak við bæði eyrun sagði ég já þegar ég var beðin
um að taka við. Á þessum tíma var félagið ungt, hafði verið stofnað árið
1978 og félagsmenn fáir. Aðalbaráttumál félagsins voru kjaramál, allur
krafturinn fór í þau. Þetta voru oft erfiðir tímar. Á þessum árum þurftu
háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar að sanna sig í starfi. Tortryggni
gætti í garð þeirra frá mörgum hjúkrunarfræðingum sem útskrifaðir voru
frá Hjúkrunarskóla Íslands og þurftu þeir háskólamenntuðu því oft að
sýna fram á tilverurétt sinn sem háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar.
Ein helsta gagnrýni á námið var að við hefðum ekki fengið nægilega
mikla verklega kennslu.
Þótt margt hafi áunnist er líklega enn nokkuð í land
Það sem einkenndi fyrst og fremst tíðarandann á þessum árum var
kvennabaráttan – baráttan fyrir jafnrétti og jafnari launakjörum
kynjanna. Baráttan fékk svo byr undir báða vængi þegar Vigdís
Finnbogadóttir var kosin forseti Íslands fyrst kvenna árið 1980.
Kjarabarátta félagsins var í takt við tíðarandann. Krafa okkar var
byggð á þeirri jafnréttiskröfu að fá laun til samræmis við aðra hópa
sem lokið höfðu fjögurra ára háskólanámi. Sú krafa hlaut ekki
hljómgrunn hjá samningamönnum ríkisins. Við sáum það síðar að
eina leiðin til að breyta laununum var að allir hjúkrunarfræðingar
væru í sama félagi. Á meðan svo var ekki var eilífur samanburður milli
félaganna og viðkvæðið hjá samninganefnd ríkisins var það, að ekki
væri hægt að hækka laun háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga því
þá kæmu allir aðrir hjúkrunarfræðingar á eftir með sínar launakröfur.
Þar sem þeir væru svo margir væri ekki hægt að hækka launin.
Það var ekki mikill skilningur á mikilvægi starfs og menntunar
hjúkrunarfræðinga meðal samningamanna á þessum árum. Samvinna
milli Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og Hjúkrunarfélags
Íslands í menntunarmálum var til staðar frá upphafi þrátt fyrir að
hjúkrunarfræðingar væru ekki í sama stéttarfélagi. Á þeim árum sem
liðin eru frá því að ég var formaður hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Hjúkrunarfræðimenntun er í góðum farvegi og geta hjúkrunarfræðingar
verið stoltir af námi sínu. Í dag er boðið upp á BS-, meistara- og
doktorsnám bæði í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri. En hefur
orðið breyting á launamálum? Eru hjúkrunarfræðingar komnir á þann
stað að fá sömu laun og aðrar háskólamenntaðar stéttir með jafnlangt
nám að baki? Þótt margt hafi áunnist er líklega enn nokkuð í land.
Brottfall hjúkrunarfræðinga af vinnumarkaði er
áhyggjuefni
Á síðustu árum hefur mikið verið rætt og ritað um skort á
hjúkrunarfræðingum til starfa. Það skýrist jú fyrst og fremst af brottfalli
fjölmennrar kynslóðar hjúkrunarfræðinga af vinnumarkaðinum, meiri
þörf fyrir hjúkrunarfræðinga og að sá fjöldi hjúkrunarfræðinga sem
útskrifast ár hvert heldur vart í við þann fjölda sem hefur töku á lífeyri.
Við þetta bætist að ákveðið hlutfall af ungum hjúkrunarfræðingum
hættir í hjúkrun skömmu eftir útskrift. Rannsóknir sýna að
hjúkrunarfræðingar eru undir miklu vinnuálagi. Starfið er krefjandi bæði
andlega og líkamlega. Margir þeirra finna fyrir streitu í starfi og jafnvel
kulnun, einkum þeir sem yngri eru, og það hefur áhrif á ákvörðun þeirra
að vinna við hjúkrun í framtíðinni. Það leiðir hugann að vinnuumhverfi
hjúkrunarfræðinga og hvernig búið er að ungum hjúkrunarfræðingum
þegar þeir stíga sín fyrstu spor á vinnumarkaðinum eftir útskrift.
Það þarf að hlúa vel að þeim, þekkja þarfir þeirra og reyna að koma
til móts við þær til þess að stuðla að festu þeirra í starfi. En það má
ekki heldur gleyma þeim sem eldri eru, þeim sem staðið hafa vaktina
í áratugi og borið hitann og þungann af hjúkrunarþjónustunni. Þeir
finna líka mikið fyrir álagi og streitu. Heilbrigðisþjónustan í dag þarf á
hjúkrunarfræðingum að halda meira en nokkru sinni fyrr, sama á hvaða
aldri þeir eru. Til þess að halda þeim í starfi þarf að skapa vinnuumhverfi
sem gerir þeim kleift að sinna skjólstæðingum sínum hvar sem þeir
birtast þeim, af umhyggju, öryggi og ekki hvað síst af faglegri færni.
Formaður í
jafnréttisbaráttu
FRÁ FYRRVERANDI FORMANNI
Birna G. Flygenring
formaður Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga
1980-1982
2010
Fimm formenn á góðri stundi, f.v. Jóhanna Bernharðsdóttir, Birna Flygenring,
Sigríður Halldórsdóttir, Magnús Ólafsson og Laura Sch. Thorsteinsson.