Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 8

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 8
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 20156 Viðfangsefni okkar hjúkrunarfræðinga eru margvísleg, flókin og síbreytileg, óháð vinnustað. Hjúkrunarfræðingar þurfa daglega að takast á við fjölbreyttar og stundum framandi klínískar aðstæður. Til þess að veita örugga og árangursríka hjúkrun þurfa hjúkrunarfræðingar, auk þess að hafa yfirgripsmikla þekkingu og kunna að beita henni, að búa yfir gagnrýninni hugsun og leikni til að takast á við fjölbreytt vandamál (Kaddoura, 2011). Símenntun er því og þarf að vera samofin starfinu. Sigríður Zoëga og Hrund Scheving Thorsteinsson, szoega@landspitali.is Notkun kennsluaðferða, hvort sem er í grunn­ eða símenntun, sem auðvelda nem andanum að tileinka sér námsefnið og þjálfa sig í að beita þekkingunni, eru líklegri til að skila þeim árangri sem sóst er eftir. Dæmi um slíka aðferð er kennsla þar sem raunsönn, klínísk tilfelli eru lögð til grundvallar umfjölluninni um námsefnið (hér eftir kölluð tilfellakennsla, e. case­based teaching). Með því að styðjast við klínísk dæmi (tilfelli) og brjóta þau til mergjar má gefa raunsanna mynd af flóknum veruleika hjúkrunar, virkja nemendur, örva gagnrýna hugsun og þjálfa greiningu vandamála og klíníska ákvarðanatöku (Yoo og Park, í prentun). Með þessari grein vilja höfundar kynna tilfellakennslu og hvetja til notkunar aðferðarinnar við menntun hjúkrunar­ fræðinga og nemenda í hjúkrunarfræði, þar með talið við klíníska kennslu. Fjallað verður um grunn tilfellakennslu, hagnýt ráð við notkun aðferðarinnar eru kynnt og í síðari hluta greinarinnar er lýst reynslu af notkun aðferðarinnar við kennslu um verki og verkjameðferð. Kynning Fjölmargir þættir hafa áhrif á nám, svo sem hvernig nemendur læra, áhugi á námsefninu, mikilvægi námsefnis að SEGÐU MÉR SÖGU OG ÉG HLUSTA: TILFELLAKENNSLA Í HJÚKRUN Það er gömul aðferð og ný að nota tilfelli við kennslu. Aðferðin vekur áhuga nemenda og hún virðist skila góðum árangri.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.