Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 10
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 20158 Tilfelli má nota í kennslu til að tengja klínískan veruleika við fræðin. Tilfelli geta verið stök en framhalds­ eða framvindutilfelli eru einnig til, en það eru tilfelli sem þróast smám saman, þ.e. gefnar eru ákveðnar upplýsingar í upphafi og síðan bætast nýjar upplýsingar við eftir því sem kennslunni vindur fram. Slík tilfelli er einnig hægt að nota á milli kennslustunda eða þess að hópur nemenda hittist. Í sumum tilvikum má nota tilfelli þar sem nemendur þurfa að leysa ákveðin verkefni fyrir kennslustund, svo sem að leita að svörum við ákveðnum spurningum eða kynna sér ákveðna hjúkrunarmeðferð (Herrman, 2002). Einnig er hægt að nota raunveruleg, klínísk tilfelli á sjúkradeild í því skyni að ræða ólíka meðferðarmöguleika eða til að læra af. Mikilvægt er að skýr markmið séu með notkun slíkra tilfella og forðast þarf að ásaka einstaka starfsmenn svo vel takist til. Tilfelli geta ýmist verið opin, þ.e. margir möguleikar á að leysa tilfellið, eða lokuð, eins og þegar greina á sjúkdóm (Herreid, 2005; Indiana University, e.d.). Í töflu 2 er að finna hugmyndir að notkun tilfella í kennslu. Kennari getur búið til tilfelli frá grunni sjálfur en víða má finna góð kennslutilfelli í tímaritum sem og á netinu (Herreid, 2005), sjá töflu 3. Sömuleiðis er hægt að nota fréttir, sögubækur, myndbönd o.fl. sem grunn að góðum kennslutilfellum (Indiana University, e.d.). Mikilvægt er að vandað sé til verka þegar kennslutilfelli eru búin til. Að útbúa gott kennslutilfelli er tímafrekt og því getur verið heppilegt að nota tilbúin tilfelli í byrjun. Tafla 4 gefur yfirlit yfir þætti sem einkenna góð kennslutilfelli. Notkun á tilfellum í kennslu Lykilatriði er að vanda til undirbúnings þegar nota á tilfelli í kennslu, hvort sem er í fyrirlestri eða í klínískri vinnu. Útskýra þarf tilganginn með notkun tilfella fyrir nemendum og hvert hlutverk þeirra í kennslustundinni er, einkum og sér í lagi ef þeir þekkja ekki til aðferðarinnar (Delpier, 2006). Áður en tilfelli er sett fram þarf að tryggja að nemendur hafi þann þekkingargrunn sem verkefnið krefst. Að sama skapi þurfa nemendur að koma undirbúnir til kennslu þegar tilfelli eru notuð (Dowd og Davidhizar, 1999; Sandstrom, 2006). Nauðsynlegt er að skilgreina kennslufræðileg markmið við notkun tilfella eins og við aðra kennslu (Herreid, 2005). Skilgreina þarf tilganginn með notkun tilfellis í kennslunni, hvaða hugtök er verið að fjalla um og síðast en ekki síst hvaða þekkingu er verið að koma á framfæri (Dowd og Davidhizar, 1999). Mynd 1 sýnir helstu skrefin í notkun tilfella í kennslu. Eftir að farið hefur verið yfir markmið kennslunnar er tilfellið kynnt til sögunnar. Tilfellið er síðan rætt og tillögur að úrræðum eða meðferð viðraðar (Dowd og Davidhizar, 1999). Lausn tilfella felur í sér þrjá meginþætti (Freidman, 1994, í Dowd og Davidhizar, 1999): Í fyrsta lagi setja nemendur fram ákveðna hugmynd um lausn á tilfellinu (thesis); í annan stað er komið fram með gagnhugmynd, þ.e. hvernig má leysa tilfellið á annan hátt (antithesis); í þriðja lagi á sér svo stað samþætting þar sem tekið er tillit til ólíkra hugmynda og ákveðin lausn valin (synthesis). Kosturinn við þessa aðferð er að henni svipar til klínískrar ákvarðanatöku þar sem kostir og gallar mismunandi úrræða eru vegnir og metnir (Dowd og Davidhizar, 1999). Óháð því hvernig tilfelli kennarar nota eða hvernig þau eru sett fram, þá eru markvissar spurningar lykillinn að gagnlegri umræðu um tilfelli (Delpier, Tafla 3. Gagnlegar vefsíður fyrir tilfellakennslu. Vefslóð Innihald síðu http://library.buffalo.edu/libraries/projects/cases/case.html Heimasíða samtaka um notkun tilfella í kennslu í vísindum. Ath. að á síðunni er hægt að ná í kennslutilfelli. http://med.fsu.edu/index.cfm?page=FacultyDevelopment.cases Leiðbeiningar um notkun tilfella í kennslu. http://www.crlt.umich.edu/tstrategies/tscbt.php Hlekkir á gagnlegt efni tengt notkun tilfella í kennslu. http://www.wacra.org/ Samtök um notkun tilfella í rannsóknum og kennslu. http://www.materials.ac.uk/guides/casestudies.asp Leiðbeiningar um notkun tilfella í kennslu. www.medscape.com Hægt að nálgast kennslutilfelli á margvíslegum sviðum. Tafla 4. Einkenni góðra kennslutilfella (Kim o.fl., 2006; Herreid, 1997). Viðeigandi Þarf að passa við það stig sem nemendur eru á Þarf að endurspegla þekkingu og þarfir nemenda Þarf að henta markmiðum bæði kennara og nemenda Raunsætt Raunveruleg tilfelli er oft trúverðugari Tilbúið tilvik verður að taka mið af raunverulegum aðstæðum Þarf að skipta nemandann máli Tengjast því sem er að gerast í núinu (söguleg tilfelli geta þó átt við) Áhugavert Ríkulegt innihald Þarf að endurspegla ólík sjónarhorn Þarf að geta tekið breytingum eftir því hvaða ákvarðanir nemandi tekur Ögrandi Þarf að innihalda vandamál sem þarf að leysa Mismunandi lausnir þurfa að vera í boði Þarf að innihalda óvenjuleg tilvik Fræðandi Þarf að kenna eitthvað nýtt Ætti að ýta undir nám Skýr kennslufræðileg markmið þurfa að vera til staðar

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.