Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 14
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 201512
Hefur þú áhuga á að efla þig og vinna þvert á ólík svið heilbrigðisvísinda? Þá
gæti þverfaglegt diplóma eða meistaranám í heilbrigðisvísindum við HA verið
eitthvað fyrir þig. Lögð er áhersla á umræður og virkni nemenda. Að jafnaði eru
verkefni í stað prófa. Kennt er í lotum og námið skipulagt þannig að stunda megi
vinnu með því. Námslotur eru fjórar á hverju misseri, ein í mánuði, að jafnaði
rúmlega einn dagur fyrir hvert námskeið. Í tengslum við mörg námskeið eru
haldin opin málþing eða ráðstefnur.
Áherslur námsins
Í náminu eru nokkur skyldunámskeið. Að öðru leyti skipuleggja
meistaranemar námið í samráði við leiðbeinanda sinn og nýta
meistaranámskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla,
innanlands eða erlendis, sem samræmast áherslu þeirra í
náminu. Ef þú hefur áhuga á einhverju tilteknu sérsviði er einnig
boðið upp á mörg sérfræðisvið. Meistaranámið veitir prófgráðuna
Sigríður Halldórsdóttir, sigridur@unak.is
MSgráða í heilbrigðis vísindum (120 ECTS) og diplómanámið
veitir prófgráðuna Diplómagráða í heilbrigðisvísindum (45 ECTS).
Markmið námsins er að þeir sem útskrifast úr náminu verði
gagnrýnir greinendur, ígrundandi fagmenn, breytingarliðar og
víðsýnir og skapandi leiðtogar. Þetta eru þeir námskrárþættir sem
eru rauðu þræðirnir í uppbyggingu og innihaldi námskeiða og
leiðarljós í kennsluháttum og námsmati.
Fyrir hverja er námið?
Krafa er að umsækjendur hafi lokið BSnámi á sviði heilbrigðis
vísinda með fyrstu einkunn frá viðurkenndri háskólastofnun.
Margvíslegir möguleikar að námi loknu
Nemendur, sem hafa útskrifast með meistara gráðu í
heilbrigðisvísindum, vinna á ýmsum sviðum og oftast á því sérsviði
sem þeir hafa valið sér í framhalds náminu. Þá hafa sumir haldið
áfram námi og farið í doktors nám. Margir starfa við stjórnun innan
heilbrigðis kerfisins, starfa sjálfstætt eða eru í stöðum sérfræðinga
á sínu sérsviði.
Upplýsingar um námið veitir Ingibjörg Smáradóttir,
skrifstofustjóri heilbrigðis vísindasviðs, í síma 460 8036 eða á
netfanginu ingibs@unak.is. Umsóknar frestur er til 5. júní nk.
Í boði er:
• Viðbótarnám, 45 eininga (diplóma)
• Viðbótarnám, 60 eininga (diplóma,
heilsugæsla í héraði klínísk áhersla)
• Meistaranám, 120 eininga
• Stök námskeið
FRAMHALDSNÁM VIÐ HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ HA
Boðið er upp á eftirfarandi áherslusvið:
Almennt svið Krabbamein og líknarmeðferð
Fötlun og endurhæfing Geðheilbrigðisfræði
Heilsugæsla í héraði – fræðileg áhersla Heilsugæsla í héraði – klínísk áhersla
Langvinn veikindi og lífsglíman Sálræn áföll og ofbeldi
Stjórnun í heilbrigðisþjónustu Öldrun og heilbrigði