Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 15
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 13
Nokkrar umsagnir fyrri nema
Ástþóra Kristinsdóttir, hjúkrunar fræð ingur og ljósmóðir með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum, vann
rannsóknina Stöðug, stöðug streita: Reynsla kvenna af heimilisofbeldi á meðgöngu. Hún segir um námið:
„Námið er vel skipulagt og skemmtilegt. Ég var mjög ánægð með kennarana og leiðbeinanda minn. Það er
líka frábært að koma til Akureyrar og skipta um umhverfi og kynnast nýju fólki. Námið nýtist mér vel í starfi
mínu sem ljósmóðir og ég er að kynna verkefni mitt fyrir heilbrigðisstéttum til að bæta þjónustu við konur.“
Héðinn Sigurðsson, læknir með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Starfsumhverfi og
starfs ánægja í heimilislækningum: Reynsla 16 íslenskra heimilislækna sem starfað hafa bæði á Íslandi og
í Noregi. Hann segir um námið: „Aðgangur að námi og rannsóknum við heilbrigðisvísindasvið Háskólans
á Akureyri hefur verið hvalreki fyrir mig sem bý í Húnaþingi og hefði þess vegna ekki getað sótt slíkt nám
með vinnu um lengri veg. Allur aðbúnaður hefur verið til fyrirmyndar og einstakt að hægt sé að halda uppi
svo öflugu og fjölbreyttu námsframboði. Háskólinn á Akureyri hlýtur að teljast ein best heppnaða einstaka
byggðaaðgerð í sögu þjóðarinnar.“
Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunar fræð ingur með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina
Kynferðisleg misnotkun og önnur sálræn áföll í æsku og áhrif þeirra á heilsufar og líðan kvenna. Hún segir um
námið: „Meistaranám í heilbrigðisvísindum veitir heilbrigðisstarfsfólki marga möguleika til að bæta þverfaglega
þjónustu við skjólstæðinga sína.“
Sólrún Óladóttir, iðjuþjálfi með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Skjólstæðingsmiðuð
þjónusta: Þróun matstækis og starfsemi á geðdeild FSA. Hún segir um námið: „Námið er vel skipulagt og
samþætting milli námslota einstaklega góð. Kennararnir koma úr hinum ýmsu fagstéttum og eru með ólíka
menntun og starfsreynslu. Þetta hefur í för með sér að mismunandi sjónarhorn koma fram sem skapar
grundvöll fyrir áhugaverðar og lærdómsríkar umræður. Töluverður sveigjanleiki er við val á verkefnatengdum
viðfangsefnum og því gefst nemendum gott tækifæri til að tengja efni námsins við eigin áherslu og áhugasvið.“
Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur með meistara gráðu í heilbrigðisvísindum, vann
rannsóknina „Ég veit ekki hvað það er að líða vel“: Reynsla kvenna með geðsjúkdóm af endurteknum áföllum
vegna ofbeldis. Hún segir um námið: „Það sem mér fannst skipta máli í náminu við HA var einstaklega
hvetjandi viðmót kennara og hlýlegt umhverfi. Námið dýpkaði þekkingu mína og opnaði jafnframt nýja sýn um
leiðir og áherslur við vinnu mína innan heilbrigðiskerfisins.“
Unnur Pétursdóttir, sjúkraþjálfari með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Áhrifaþættir
þjálfunar hjá fólki með slitgigt: Hvað hvetur, hvað letur? Hún segir: „Einn skemmtilegasti hluti námsins er að
hitta heilbrigðisstarfsmenn úr ýmsum fagstéttum og ræða málin. Námið krefst mikils af nemendum og góð
skipulagning er nauðsynleg.“
* Klínísk heilsugæsla er einungis í boði fyrir
nemendur í heilsugæslu í héraði – klínísk áhersla.
Boðið er upp á eftirtalin námskeið á haustmisseri 2015
HHS0105 Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar 10 einingar
MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir 10 einingar
GHB0110 Geðheilbrigði 10 einingar
GHB0105 Geðheilbrigði 5 einingar
HGE0110 Heilsugæsla og heilsuefling 10 einingar
KRA0105 Krabbamein og líknandi meðferð 10 einingar
KHG1012 Klínísk heilsugæsla* 12 einingar
Boðið er upp á eftirtalin námskeið á vormisseri 2016
EIR0155 Eigindlegar rannsóknir 10 einingar
EEL0105 Endurhæfing, efling og lífsgæði 10 einingar
ÞFS0105 Þjónandi forysta, stjórnun og ígrundun 10 einingar
KHG1013 Klínísk heilsugæsla* 13 einingar