Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Qupperneq 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Qupperneq 15
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 13 Nokkrar umsagnir fyrri nema Ástþóra Kristinsdóttir, hjúkrunar fræð ingur og ljósmóðir með meistaragráðu í heilbrigðisvísindum, vann rannsóknina Stöðug, stöðug streita: Reynsla kvenna af heimilisofbeldi á meðgöngu. Hún segir um námið: „Námið er vel skipulagt og skemmtilegt. Ég var mjög ánægð með kennarana og leiðbeinanda minn. Það er líka frábært að koma til Akureyrar og skipta um umhverfi og kynnast nýju fólki. Námið nýtist mér vel í starfi mínu sem ljósmóðir og ég er að kynna verkefni mitt fyrir heilbrigðisstéttum til að bæta þjónustu við konur.“ Héðinn Sigurðsson, læknir með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Starfsumhverfi og starfs ánægja í heimilislækningum: Reynsla 16 íslenskra heimilislækna sem starfað hafa bæði á Íslandi og í Noregi. Hann segir um námið: „Aðgangur að námi og rannsóknum við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri hefur verið hvalreki fyrir mig sem bý í Húnaþingi og hefði þess vegna ekki getað sótt slíkt nám með vinnu um lengri veg. Allur aðbúnaður hefur verið til fyrirmyndar og einstakt að hægt sé að halda uppi svo öflugu og fjölbreyttu námsframboði. Háskólinn á Akureyri hlýtur að teljast ein best heppnaða einstaka byggðaaðgerð í sögu þjóðarinnar.“ Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunar fræð ingur með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Kynferðisleg misnotkun og önnur sálræn áföll í æsku og áhrif þeirra á heilsufar og líðan kvenna. Hún segir um námið: „Meistaranám í heilbrigðisvísindum veitir heilbrigðisstarfsfólki marga möguleika til að bæta þverfaglega þjónustu við skjólstæðinga sína.“ Sólrún Óladóttir, iðjuþjálfi með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Skjólstæðingsmiðuð þjónusta: Þróun matstækis og starfsemi á geðdeild FSA. Hún segir um námið: „Námið er vel skipulagt og samþætting milli námslota einstaklega góð. Kennararnir koma úr hinum ýmsu fagstéttum og eru með ólíka menntun og starfsreynslu. Þetta hefur í för með sér að mismunandi sjónarhorn koma fram sem skapar grundvöll fyrir áhugaverðar og lærdómsríkar umræður. Töluverður sveigjanleiki er við val á verkefnatengdum viðfangsefnum og því gefst nemendum gott tækifæri til að tengja efni námsins við eigin áherslu og áhugasvið.“ Sigríður Hrönn Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur með meistara gráðu í heilbrigðisvísindum, vann rannsóknina „Ég veit ekki hvað það er að líða vel“: Reynsla kvenna með geðsjúkdóm af endurteknum áföllum vegna ofbeldis. Hún segir um námið: „Það sem mér fannst skipta máli í náminu við HA var einstaklega hvetjandi viðmót kennara og hlýlegt umhverfi. Námið dýpkaði þekkingu mína og opnaði jafnframt nýja sýn um leiðir og áherslur við vinnu mína innan heilbrigðiskerfisins.“ Unnur Pétursdóttir, sjúkraþjálfari með meistaragráðu í heilbrigðis vísindum, vann rannsóknina Áhrifaþættir þjálfunar hjá fólki með slitgigt: Hvað hvetur, hvað letur? Hún segir: „Einn skemmtilegasti hluti námsins er að hitta heilbrigðisstarfsmenn úr ýmsum fagstéttum og ræða málin. Námið krefst mikils af nemendum og góð skipulagning er nauðsynleg.“ * Klínísk heilsugæsla er einungis í boði fyrir nemendur í heilsugæslu í héraði – klínísk áhersla. Boðið er upp á eftirtalin námskeið á haustmisseri 2015 HHS0105 Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar 10 einingar MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir 10 einingar GHB0110 Geðheilbrigði 10 einingar GHB0105 Geðheilbrigði 5 einingar HGE0110 Heilsugæsla og heilsuefling 10 einingar KRA0105 Krabbamein og líknandi meðferð 10 einingar KHG1012 Klínísk heilsugæsla* 12 einingar Boðið er upp á eftirtalin námskeið á vormisseri 2016 EIR0155 Eigindlegar rannsóknir 10 einingar EEL0105 Endurhæfing, efling og lífsgæði 10 einingar ÞFS0105 Þjónandi forysta, stjórnun og ígrundun 10 einingar KHG1013 Klínísk heilsugæsla* 13 einingar

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.