Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 25
Eitt af meginmarkmiðum IFNA er að efla gæði menntunar
á sviði svæfingahjúkrunar í heiminum og hámarka
þannig öryggi sjúklinga sem þurfa að fara í svæfingu eða
deyfingu. Fulltrúar IFNA komu hingað til lands á lokastigum
matsferlisins til úttektar á aðstæðum og funduðu með þeim
hjá hjúkrunarfræðideild og Landspítala-Háskóla sjúkrahúsi
sem taka þátt í stjórn, kennslu og skipulagningu námsins.
Vottunin gildir í 5 ár og verður endurskoðuð í október 2019.
Diplómanámið í svæfingahjúkrun við hjúkrunar fræðideild Háskóla Íslands
hlaut í október 2014 vottun Alþjóðasamtaka svæfinga hjúkrunarfræðinga
(International Federation of Nurse Anesthetists, IFNA). Samtökin mátu
það svo að námið uppfyllti æðstu menntunar kröfur og staðla sem
samtökin gera til aðildarfélaga sinna. Aðildar félög sam takanna eru 40
talsins frá Norðurlöndunum, Evrópu, Bandaríkjunum, Asíu og Afríku.
NÁM Í SVÆFINGAHJÚKRUN HLÝTUR
ALÞJÓÐLEGA VIÐURKENNINGU
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015
Í námsnefnd um diplómanám í svæfingahjúkrun eru
Herdís Sveinsdóttir, Lára Borg Ásmundsdóttir og Þórunn
Scheving Elíasdóttir og hefur nefndin umsjón með náminu.
Diplómanám í svæfingahjúkrun hefst næst á vorönn 2016
og verður einungis hægt að taka við takmörkuðum fjölda
umsækjenda í samræmi við getu sjúkrahúsa til að taka á
móti nemendum í klínískt nám. Umsóknarfrestur er til 15.
október 2015.
23