Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 27
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 25 Námskrá í hjúkrunarfræði HÍ frá haustönn 2015. Inntökuskilyrði – aðgangspróf Í meira en tvo áratugi hefur takmarkaður fjöldi nemanda við hjúkrunarfræðideild HÍ getað haldið áfram námi við deildina eftir að hafa þreytt samkeppnispróf eftir fyrsta misserið (numerus clausus eða klásus eins og samkeppnisprófin eru kölluð í daglegu tali). Þessi aðferð við val á nemendum til náms hefur verið gagnrýnd með þeim rökum að tími ungs fólks nýtist illa, auk streitu og álags sem samkeppnisprófum fylgir. Heill vetur getur farið forgörðum, haustmisseri notað í nám sem reynist blindgata og erfitt getur verið að hefja nýtt nám á vormisseri. Því var ákveðið að endurskoða inntöku nemenda við hjúkrunarfræðideildina samfara breytingum á námskrá. Skoðaðar voru nokkrar leiðir til þess en niðurstaðan var að nýta aðgangspróf (A­próf) við inntöku nemenda frá haustmisseri 2015 og feta þannig í fótspor nokkurra annarra deilda innan HÍ. A­prófin eru samin með hliðsjón af færniþáttum námskrár framhaldsskólanna og eru byggð á erlendum fyrirmyndum og er þannig ætlað að spá fyrir um getu nemenda til háskólanáms. Prófað er í fimm þáttum: upplýsinganotkun, málfærni, lesskilningi, ensku, stærðum og reiknanleika og hægt er að sjá sýnidæmi úr öllum prófþáttunum á vefsíðu HÍ (Háskóli Íslands, 2015a). Frammistaða nemenda á A­prófinu mun gilda 70% og meðaleinkunn á stúdentsprófi í íslensku, ensku og stærðfræði 30% (Háskóli Íslands, 2015b). Hjúkrunarfræðideildin verður tilbúin að taka á móti þeim 100 nemendum haustið 2015 sem standa best að vígi af umsækjendum. Með þessu fyrirkomulagi vita nemendur strax í sumar hvort þeir hafa fengið inngöngu í Hjúkrunarfræðideild og mun því létta á óvissunni og streitunni sem samkeppnisprófunum hefur fylgt auk þess sem kennsluhættir í nýrri námskrá miða að persónulegri kennslu í minni hópum. Heimilt er samkvæmt reglum HÍ að halda A­próf tvisvar á ári og þetta árið verður það haldið 21. mars og 12. júní. Búið er að opna skráningu fyrir báða prófdagana, en henni lauk 13. mars fyrir fyrra prófið og lýkur 5. júní fyrir seinna prófið. Hins vegar skal það tekið fram að nauðsynlegt er að vera með stúdentspróf þegar sótt er um sjálft hjúkrunarnámið og lýkur þar skráningu 5. júní. Prófin gilda í 11 mánuði eftir að þau eru tekin og hægt verður að nýta þau við skráningu í aðrar deildir skólans sem nota A­prófið við inntöku nemenda. Próftíminn er samtals 3,5 klukkustundir og er kostnaður við að þreyta prófið enginn þetta árið þó það geti breyst þegar fram líða stundir. Nánari upplýsingar um námið og inntökuskilyrði í Hjúkrunarfræðideild HÍ má sjá á www. hjukrun.hi.is og upplýsingar um A­prófin á http://www.hi.is/a_prof. Heimildir Benner, P., Sutphen, M., Leonard, V., og Day, L. (2010). Educating nurses: A call for radical transformation. San Fransisco: Jossey­Bass on behalf of The Carnegie Foundation for the Advancement of Teaching. Háskóli Íslands (2015a). A-próf. Sótt á http:// www.hi.is/a_prof. Háskóli Íslands (2015b). Inntökuskilyrði Hjúkrunarfræðideildar HÍ. Sótt á http://www. hi.is/hjukrunarfraedideild/inntokuskilyrdi. Námsnefnd Hjúkrunarfræðideildar HÍ, 2012­ 13 (2013). Greinargerð námsnefndar um tillögur að breytingu námskrár í grunnnámi í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Reykjavík: Hjúkrunarfræðideild HÍ. Velferðarráðuneytið (2012). Velferðarstefna. Heilbrigðisáætlun til ársins 2020. Reykjavík: Velferðarráðuneytið.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.