Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 32
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 201530
og svefn og matarvenjum (Akerstedt,
1990; Bohle og Tilley, 1989; Czeisler
o.fl., 1982). Ný langtímarannsókn
Marquié o.fl. (2014) sýndi einnig tengsl
vaktavinnu og vitsmunaskerðingar. Þeir
sem unnu vaktavinnu fengu færri stig
á minnisprófum og áhrifin jukust með
lengri tíma í vaktavinnu en minnkuðu
eftir að henni var hætt. Íslensk rannsókn
höfundar benti til þess að tengsl
væru milli vaktavinnu og svefnlengdar
en vaktavinnufólk átti marktækt oftar
erfiðara með að sofna en dagvinnufólk.
Sömuleiðis var samband milli þess að
vinna vaktavinnu og vakna nokkrum
sinnum á nóttu. Þetta bendir til þess
að svefn vaktavinnufólks sé að nokkru
leyti lakari en dagvinnufólks. Þá var
vaktavinnufólk marktækt líklegra til þess
að hafa verið greint með síþreytu af
sálfræðingi en dagvinnufólk.
Fáir aðlagast vel síbreytilegum vinnutíma.
Flest bendir þó til að slík vinna verði
erfiðari fyrir fólk með hækkandi aldri. Þá
er hún óhentug þeim sem þurfa langan
svefn og þeim sem eru að eðlisfari árrisulir
og kvöldsvæfir (Härmä, 1993; Saksvik
o.fl., 2011). Rannsóknir hafa sömuleiðis
sýnt að konur eiga almennt erfiðara með
að vinna vaktavinnu en karlar. Þær verða
frekar fyrir svefntruflunum og finna frekar
til þreytu en þeir. Hægt er að rekja hluta
þessa munar til lífeðlislegra þátta því
vitað er að konur sofa verr í kringum tíðir
og á meðgöngu. Líklega er þó að um
samspil nokkurra þátta sé um að ræða
og ekki útilokað að félagsleg staða spili
þar inn í (Vidacek o.fl., 1993).
Margir persónubundnir þættir geta
haft áhrif á þol við vaktavinnu en kyn,
persónu leiki, heilsufar og lífeðlislegir
þættir hafa verið nefndir (Harrington,
2001). Vaktavinna hentar þeim síður sem
eru kvíðnir og hafa tilhneigingu til að
hafa áhyggjur. Einnig reynist vaktavinna
þeim sem hafa neikvæð viðhorf til
hennar verr en öðrum en hún getur
valdið kvíða og depurð hjá ákveðnum
einstaklingum (Healy o.fl., 1993). Flestir
fræðimenn eru sammála um að sam
spilið milli vinnufyrirkomulags, svefns
og dægursveiflu skipti einna mestu
máli þegar kemur að því að meta áhrif
vaktavinnu á heilsu og líðan þeirra sem
hana vinna (Júlíus K. Björnsson, 2000).
Hvað þýðir vaktavinna?
Orðið vaktavinna hefur misjafna
þýðingu í huga fólks og því getur reynst
vandasamt að skilgreina það. Sumir
einstaklingar telja vaktavinnu einungis
vera næturvinnu, þ.e. vinnu á milli 22:30
á kvöldin og 6:00 á morgnana. Þeir
sömu myndu ekki telja þá sem vinna
á kvöldin eða snemma á morgnana
eða þá sem vinna bæði á kvöldin og
morgnana vera vaktavinnustarfsmenn.
Aðrir nota hugtakið yfir þá sem vinna
utan hefðbundins vinnutíma á daginn.
Erfitt er að segja til um hvort yfirvinna
flokkast til vaktavinnu eða ekki og
hvenær hefðbundinn vinnutími byrjar
og endar, oft er þó talað um tímann
fyrir 7 að morgni og eftir 18 á kvöldin
(Monk og Folkard, 1992). Það hefur sína
kosti að skilgreina hugtakið vaktavinnu
sem vinnu utan hefðbundins vinnutíma
þar sem starfsmenn geta átt við sömu
erfiðleika að stríða óháð því hvort þeir
vinna næturvinnu eða ekki. Stundum
eiga þeir sem vinna ekki næturvinnu
við margslungnari vandamál að stríða
út af vaktavinnunni en þeir sem vinna
slíkar vaktir. Í mörgum tilfellum eru þessi
vandamál tengd dægurklukku, svefni og
einstaklingsbundnum þáttum. Í öðrum
tilfellum ná þau til félags og heimilislífs
einstaklingsins (Monk og Folkard, 1992).
Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum (nr. 46/1980) skilgreina
vaktavinnu sem „vinnu sem skipt er
niður samkvæmt fyrirfram ákveðnu fyrir
komulagi þar sem starfs maður vinnur á
mismunandi vöktum á tilteknu tímabili sem
mælt er í dögum eða vikum“. Samkvæmt
vinnu tímatilskipun Alþýðusambands
Íslands og Vinnuveitendasambands
Íslands (1996) er vaktavinna skilgreind
á svipaðan hátt eða sem „vinna sem
skipt er niður í mismunandi vinnutímabil/
vaktir samkvæmt ákveðnu kerfi, þar
sem starfs maður vinnur á mismunandi
vöktum á tilteknu tímabili sem mælt er í
dögum eða vikum“.
Ólík vaktakerfi
Vaktakerfi gera oftast nær ráð fyrir
sex til tólf klukkustunda vöktum þar
sem sólarhringnum hefur verið skipt
niður í tvær til fjórar vaktir. Á Íslandi er
algengt að vaktaskipti séu um klukkan
8, 16 og 24, sérstaklega meðal stærri
starfsstétta. Starfsmenn sem vinna að
næturlagi, þ.e. næturvinnustarfsmenn
og vaktavinnustarfsmenn sem vinna að
næturlagi, eiga rétt á heilbrigðismati sér
að kostnaðarlausu áður en þeir hefja
störf og síðan reglulega á a.m.k. þriggja
ára fresti (Alþýðusamband Íslands og
Vinnuveitendasamband Íslands, 1996).
Varðandi daglega hvíld er meginreglan sú
að starfsmenn skuli fá a.m.k. 11 stunda
hvíld á sólarhring. Vinnutímatilskipunin
gerir ráð fyrir því að við tilteknar
aðstæður sé heimilt að stytta daglegan
lágmarkshvíldartíma við vaktaskipti í
allt að 8 klst. Þetta á t.d. við þegar
starfsmaður skiptir af dagvakt yfir á
næturvakt og öfugt. Á hverju sjö daga
tímabili á starfsmaður rétt á einum
eða fleiri frídögum sem tengist beint
hvíldartíma hans, ef mögulegt er skal
hann vera á sunnudegi. Tilskipunin segir
til um að hámarksvinnutími á viku, að
yfirvinnu meðtalinni, skuli ekki vera meiri
en 48 klukkustundir. Almennt er vinnuvika
starfsmanns í fullu starfi 40 klukkustundir
á viku (Alþýðusamband Íslands og
Vinnuveitendasamband Íslands, 1996).
Að lokum segir í vinnutímatilskipuninni
að vinnuveitandi, sem skipuleggur
vinnu samkvæmt ákveðnu mynstri,
skuli taka tillit til þeirrar meginreglu
að laga vinnuna að starfsmanninum,
einkum með það í huga að lina áhrif
einhæfra starfa og starfa sem unnin
eru með fyrirframákveðnum hraða.
Vinnuna, sérstaklega vinnutímahléin,
þarf að laga að starfsmanninum,
sérstaklega ef störfin eru einhæf eða
þau hættuleg (Alþýðusamband Íslands
og Vinnuveitendasamband Íslands,
1996).
Aðlögun að vaktavinnu
Þekkt er að afköst starfsmanna eru
ekki þau sömu á nóttunni og á daginn.
Maðurinn er dagdýr því athafnir hans
fara að mestu fram í dagsljósi og þar
af leiðandi hvílist hann á nóttunni. Þessi
hegðun ræðst ekki af tilviljun einni
og sér heldur á hún sér líffræðilegar
undirstöður, en sveiflur í líkamsstarfsemi
(í öndunarfærum, hjarta, meltingarkerfi
og nýrum) má finna yfir sólarhringinn
og í dægursveiflum. Hitastig er hærra á