Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Page 39
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 37 hátt. Kennararnir voru hins vegar flestir búsettir á höfuðborgar svæðinu og það gerði skipu lagið erfitt. Geðheilbrigðis­ þátturinn gegnir þó sífellt mikilvægara hlutverki í heilbrigðisþjónustunni og þetta nýja námskeið verður 10 eininga nám sem verður byggt upp með fræðilegri kennslu og klínískum vinnusmiðjum þar sem lögð verður áhersla á þverfagleg inngrip. Annars vegar munum við fá sérfræðing frá Minnesota, sem mun stýra einni vinnusmiðjunni um myndun og virkni meðferðarhópa, og hins vegar munum við nýta innlenda sérfræðiþekkingu til að kenna aðferðir um áhugahvetjandi samtal. Námið verður kennt í fjórum lotum og inni á milli verður fjarkennsla og fyrirlestrar. Draumurinn er svo að vorið 2016 munum við samkenna á Akureyri og í Minnesota námskeið í geðlyfjafræði. Þetta er á byrjunarreit en er spennandi möguleiki sem gaman væri að reyna fyrir alvöru. Sjálfur kenni ég sem aðjunkt við háskólann í Minnesota héðan frá Akureyri þannig að þetta er allt saman vel gerlegt. Tæknin virkar vel og nemendur eru sælir og glaðir.“ Tekjurnar hrundu „Já, já, tekjur okkar hrundu ansi hressi­ lega við að flytjast aftur heim til Íslands, það er engin launung. Hjúkrun er vel borgað starf í Bandaríkjunum enda eftirspurnin eftir sérfræðiþekkingu okkar mikil. Eftir að sérfræðiréttindin voru í höfn hækkuðu tekjurnar enn frekar. Þar ræður markaðurinn á margan hátt ferðinni, en hérna er nánast allt rekið af ríkinu og því er tekjum hjúkrunarfræðinga haldið falskt niðri. Vonandi breytist þetta í næstu kjarasamningum ef við látum ekki yfirlætisfulla orðræðu feðraveldisins draga kjarkinn úr okkur.“ Þessi auglýsing um lausa stöðu á Eir hefur á margan hátt verið þín gæfa? „Já, á margan hátt. Síðustu árin hafa verið viðburðarík og skemmtileg. Mér fannst gaman í náminu, bæði hérna á Íslandi og í Bandaríkjunum. Þannig að ég er þakklátur fyrir að hafa álpast inn á Eir þennan kalda mánudag í nóvember. Hjúkrunarfræðin er fræðigrein sem hentar mér einstaklega vel. Ég hef áhuga á öllu sem viðkemur manninum og mannlegu eðli og vil gjarnan sjá og kynnast sem flestum hliðum mannlífsins. Hjúkrunarfræði veitir manni margbrotið sjónarhorn á mannlífið, það gera ekki margar aðrar greinar eins vel. Þetta er í mínum huga sérstaða hjúkrunarfræðinnar.“ Í myndböndunum, sem eru innan við mínútu löng, koma fram nokkrir hjúkrunarfræðingar og nemar og segja frá námi og störfum. Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir segir frá einum vinnudegi en hún er deildarstjóri á geðdeild Landspítalans og kennir við hjúkrunarfræðideild. Helgi Egilsson er hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut og segir áhorfendum hversu ánægjulegt það sé að hjúkra sjúklingi aftur til lífsins eftir hjartastopp. Tveir nemar í hjúkrunarfræði, Katla Marín Berndsen og Sigþór Jens Jónasson, segja frá námi sínu. Katla Marín hefur meðal annars starfað í Gana á nematímanum og Sigþór Jens segir hjúkrunarnámið vera góðan bræðing af félags- og raunvísindum. Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands hefur nýlega birt röð af myndböndum um hjúkrunarnámið og hjúkrunarstarfið undir heitinu Er framtíð þín í hjúkrun? Þau eru að finna á heimasíðu heil brigðis vísindasviðs og á Youtube. MYNDBÖND UM HJÚKRUN

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.