Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 42
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 201540 hjúkrunarfræðingana getur þá skipulagt símenntun þeirra með hliðsjón af þörfum hvers hjúkrunarfræðings, deildar, sviðs eða stofnunarinnar í heild. Símenntunina má skipuleggja á margvíslegan hátt sem bæði gefur hjúkrunarfræðingum mögu­ leika á að eflast í starfi og stofnuninni að sinna sínu hlutverki varðandi öryggi og gæði. Að framansögðu er ljóst að þó að hjúkrunar fræðingar búi lengi að fyrstu gerð þá dugar það ekki alla tíð. Hjúkrunar­ fræðingar sem og annað heilbrigðis starfs­ fólk þarf að sinna stöðugri símenntun og starfsþróun til að fullnægja þörfum sjúklinga, heilbrigðisþjónustunnar og síðast en ekki síst eigin fróðleiksfíkn, það er þekkingarþörf fagmannsins. Með skuldbindingu fagmannsins um að vera sífellt með á nótunum má tryggja frekar öryggi sjúklinga og auka gæði og skilvirkni þjónustunnar. En til að svo megi verða þurfa allir aðilar að axla sína ábyrgð. Þjóðfélagið verður að skapa möguleika á símenntun með skipulagi og fjármagni sem styður við símenntun, fagmennirnir verða að axla sína ábyrgð varðandi það að efla þekkingu sína og færni allan sinn starfsferil, vinnuveitendur þurfa að styðja starfsmenn sína og skapa þeim tækifæri til starfsþróunar og símenntunar og fagfélögin, í samvinnu við ofangreinda aðila, þurfa að leggja sitt af mörkum til að hvetja og styðja félagsmenn sína til símenntunar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vinnur að því að efla fagmennsku hjúkrunar­ fræðinga og þróa hjúkrun sem fræðigrein með ýmsu móti. Auk þess að halda Á vormánuðum munu Mínar síður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga líta dagsins ljós en um er að ræða lokaðar síður félagsmanna þar sem rafræn sjálfsafgreiðsla fer fram. Til að fá aðgang að slíku lokuðu svæði þarf Íslykil eða rafræn skilríki en margir félagsmenn hafa þegar orðið sér úti um lykil til þess að komast á orlofsvefinn. Síðurnar verða aðgengilegar á vef félagsins og munu allir fullgildir félags­ menn FÍH geta nýtt sér þær. Við hönnun útlits hefur sérstaklega verið hugað að því að viðmótið sé aðgengilegt á öllum skjástærðum og verður því einnig auðvelt að nýta sér þjónustuna á snjallsímum sem og spjaldtölvum. Viðmótið lagar sig einfaldlega að því tæki sem nýtt er. Mínar síður verða þó nokkur aukning við sjálfsafgreiðslumöguleika á vefnum en hingað til hefur verið mögulegt að sækja þar um styrki á rafrænu formi. Með Mínum síðum verða allir rafrænir möguleikar sameinaðir á einum stað, og Herdís Lilja Jónsdóttir, herdis@hjukrun.is MÍNAR SÍÐUR – LOKAÐ SVÆÐI Á VEF FÉLAGSINS

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.