Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 43

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Blaðsíða 43
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 41 ráðstefnur, hjúkrunarþing, málþing og námskeið má fyrst nefna fagdeildir félagsins sem nú eru 19 talsins. Félagið telur mikilvægt fyrir faglega þróun hjúkrunar í landinu að hafa virkar og öflugar fagdeildir starfandi á sem flestum sviðum hjúkrunar. Hlutverk fagdeildanna er að vinna að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sviði í samvinnu við fagsvið félagsins. Félagið styrkir fagdeildirnar árlega til að sinna ýmsum verkefnum bæði innanlands og erlendis auk þess sem það styður við starfsemi fagdeilda á ýmsan hátt, bæði hvað varðar húsnæði og þjónustu. Stór hluti starfsemi fagdeilda felst í fræðslu félagsmanna sinna og er það hluti af því að viðhalda fagmennsku. Þá má nefna sjóði félagsins sem veita styrki til sí­ og endurmenntunar og rannsókna hjúkrunarfræðinga. Starfsmenntunar­ sjóður veitir félagsmönnum styrki til sí­ og endurmenntunar í tengslum við starf þeirra og geta félagsmenn sótt í hann árlega. Vísindasjóði félagsins, sem skiptist í A­ og B­hluta, er ætlað að styrkja bæði sí­ og endurmenntun hjúkrunarfræðinga sem og rannsóknir og fræðiskrif. A­hluti sjóðsins styrkir árlega alla sjóðsfélaga til sí­ og endurmenntunar. B­hluti er hins vegar samkeppnissjóður sem ætlað er að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknir og fræðiskrif félagsmanna. Hefur hann árlega um 10 milljónir króna til að styrkja rannsóknir hjúkrunarfræðinga, bæði meistara­ og doktorsrannsóknir sem og vísindarannsóknir sem sífellt fjölgar. Á hverju ári styrkir sjóðurinn milli 20 og 30 rannsóknir hjúkrunarfræðinga og eru styrkupphæðir frá 150 þúsund krónum til rúmlega einnar milljónar króna. Til að fá aðgang að Mínum síðum þarf að hafa annað tveggja: Íslykil frá island.is eða rafræn skilríki. Íslykill er flestum félags mönnum kunnur en hann hefur verið notaður sem aðgangslykill að orlofsvef félagsins síðan síðast liðið sumar. Hafi maður ekki Íslykil er hægt að fá hann sendan í heima banka, í bréfpósti á lögheimili eða í sendiráð sé við- komandi búsettur á erlendri grundu. Ef Íslykill týnist þarf að panta nýjan lykil en það er gert með sama hætti. Rafræn skilríki er hægt að fá í bönkum, sparisjóðum og hjá Auðkenni. Hægt er að fá skilríkin í síma og á snjallkort. Áður er þó mikilvægt að tryggja að símkort símans styðji rafræn skilríki. Styðji símkortið ekki skilríkin er hægt að fá slíkt símkort hjá símafyrirtækjum. Við hvetjum félagsmenn til að verða sér út um Íslykil eða rafræn skilríki hafi þeir ekki gert það nú þegar. þar geta félagsmenn sinnt erindum sínum sjálfir hvenær sem er sólarhringsins. Þetta er því mikil viðbót við þjónustu félagsins. Á síðunum verður meðal annars gefinn kostur á að uppfæra netfang og símanúmer og þarf því ekki að huga að því að hringja í félagið eða senda póst til að koma slíkum upplýsingum á framfæri. Rafrænar umsóknir félagsins verða fluttar inn á þetta lokaða svæði, og munu félagsmenn geta sótt þar um styrki í starfsmenntunarsjóð og styrktarsjóð. Auk þess verður hægt að fylgjast með ferli umsókna á sínu svæði, fá upplýsingar um nýtingarmöguleika sjóða og eins sjá hversu mikið búið er að nýta af styrkjamöguleikum innan almanaksársins. Aðgangur að Mínum síðum Áhugaverð viðbót við þjónustuna er sú að upplýsingar um eldri umsóknir verða líka aðgengilegar á Mínum síðum, það er að segja yfirlit yfir þær upphæðir sem félagsmenn hafa fengið greiddar úr sjóðum félagsins og hvenær greiðslurnar hafa átt sér stað. Þetta á einnig við um vísindasjóð en árlega er úthlutað úr A­hluta sjóðsins til allra þeirra hjúkrunarfræðinga sem eru félagsmenn í FÍH og voru starfandi samkvæmt kjarasamningi félagsins fyrir 31. desember árið fyrir úthlutun. Orlofsvefurinn verður óbreyttur að því undanskildu að aðgengi að honum verður inni á Mínum síðum. Þetta er þáttur í því að sameina alla rafræna sjálfsafgreiðslu undir einum hatti. Þegar fram í sækir munu auk þess allar viðhorfskannanir og kosningar á vegum félagsins fara fram á Mínum síðum en tilkynningar um slíkar kannanir og kosningar munu berast félagsmönnum með tölvupósti. Það verður því æ mikilvægara að allar upplýsingar, eins og t.d. netfang, séu réttar í skrám félagsins en eins og fram kemur hér á undan verður auðvelt fyrir hvern og einn að uppfæra slíkar upplýsingar. Nánari umfjöllun um Mínar síður og leiðbeiningar varðandi þær verða birtar á vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Facebook­síðu þegar útgáfudagur Minna síðna nálgast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.