Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 44
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 201542
Stærstur hluti verknámsins fer fram
á Landspítalanum og við verðum að
viðurkenna að það kom á óvart hversu
fáar fæðingar voru eðlilegar. Þá er
átt við fæðingu án inngripa, eins og
gangsetningar, belgjarofs í fæðingu,
örvunar með hríðaörvandi lyfjum,
mænurótardeyfingar, áhaldafæðingar og
keisaraskurðar. Fyrir mörgum er fæðing
Gerður Eva Guðmundsdóttir og Sigrún Huld Gunnarsdóttir, gerdureva@gmail.com
um leggöng „eðlileg fæðing“. Hins vegar
getur hugtakið „eðlileg fæðing“ verið
varasamt þar sem það gefur til kynna að
fæðingar með inngripum séu óeðlilegar
og sendir þar með neikvæð skilaboð út
í þjóðfélagið.
Nýverið birtist grein eftir þekkta persónu
á vefmiðli og var fyrirsögnin „Gerðu það
sem er best fyrir þig og barnið þitt“.
Greinin er um reynslu höfundarins af sinni
fyrstu fæðingu. Við getum tekið undir
margt í þessari grein, svo sem að konur
eigi ekki að bera saman fæðingar sínar,
þær séu ekki í keppni og að sú standi
ekki uppi sem sigurvegari sem fæðir
án deyfingar eða annarra inngripa. Það
er upplifun konunnar sem skiptir mestu
ÞANKASTRIK
SJÚKDÓMSVÆÐUM EKKI BARNEIGNARFERLIÐ
Gerður Eva Guðmundsdóttir er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og vinnur í hlutastarfi á skurð og þvag færaskurðdeild og á fæðingarvakt
Landspítalans. Sigrún Huld Gunnarsdóttir er hjúkrunar fræðingur og ljósmóðir og vinnur á vökudeild Landspítalans.
Þegar við hófum nám í ljósmóðurfræði var mikil áhersla lögð á eðlilegt ferli
meðgöngu, fæðingar og sængurlegu. Fljótlega eftir að starfsnámið hófst kom í
ljós hvers vegna.
Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki gefst
hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt sem varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta fjallað um ákveðin
málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitthvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvaðeina
annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess.