Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 55
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 91. árg. 2015 53
Ritrýnd fræðigrein
SCIENTIFIC PAPER
sumarmánuðina júní, júlí og ágúst. Mynd 1 sýnir fjölda stakra
lyfjagjafa á mánuði.
Þegar stakar lyfjagjafir hjúkrunarfræðinga eru skoðaðar með
tilliti til vikudags sést að dreifingin er nokkuð jöfn. Mynd 2
sýnir stakar lyfjagjafir eftir vikudögum. Stakar lyfjagjafir voru
flestar frá þriðjudegi til föstudags og fæstar á sunnudögum
og mánudögum árið 2010. Árið 2011 varð aukning milli ára á
stökum lyfjagjöfum alla vikudagana fyrir utan þriðjudaga þar
sem varð fækkun. Mest var um stakar lyfjagjafir á mánudögum,
fimmtudögum og föstudögum árið 2011.
Þegar stakar lyfjagjafir hjúkrunarfræðinga eru skoðaðar með tilliti
til tíma sólarhrings sjást sveiflur eftir tíma en sama mynstur sést í
dreifingu frá 2010 til 2011. Stakar lyfjagjafir náðu hámarki kl. 22
þar sem er áberandi toppur bæði árin og aukning frá 2010 til
2011. Mynd 3 sýnir dreifingu stakra lyfjagjafa á tíma sólarhrings.
Lyfjaflokkar og lyf
Flestar stakar lyfjagjafir hjúkrunarfræðinga komu úr lyfjaflokki
N, sem inniheldur meðal annars verkjalyf, svefnlyf og róandi
lyf, eða 65,34% árið 2010 og 65,03% árið 2011. Næstflestar
stakar lyfjagjafir voru úr lyfjaflokki A, sem inniheldur meðal annars
ógleðistillandi lyf og sýrubindandi lyf, eða 15,70% árið 2010 og
jókst á milli ára, í 16,78% árið 2011. Þriðji algengasti flokkur
stakra lyfjagjafa var Mflokkur með 6,23% árið 2010 og 5,38%
árið 2011. Mflokkur inniheldur meðal annars bólgueyðandi
gigtarlyf. Stakar lyfjagjafir hjúkrunarfræðinga úr öðrum flokkum
voru fátíðari. Tafla 2 sýnir fjölda stakra lyfjagjafa hjúkrunarfræðinga
eftir lyfjaflokkum og algengustu lyfin í hverjum flokki.
Þegar skoðað var nánar hvaða lyfjum var helst ávísað af
hjúkrunarfræðingum innan algengustu flokkanna kom í ljós að
165 lyfjategundum var ávísað úr Nflokki tauga og geðlyfja.
Þetta voru lyf eins og svefnlyf og róandi lyf, svo sem Imovane og
Sobril, verkjalyf, svo sem Panodil og Parkodin, og eftirritunarskyld
Tafla 1. Fjöldi stakra lyfjagjafa án fyrirmæla lækna eftir klínískum
sviðum árin 2010 og 2011.
Klínísk svið
Fjöldi
Breyting
milli ára
2010 2011 %
Skurðlækningasvið 26.024 29.997 15,27
Lyflækningasvið 23.163 25.359 9,48
Kvenna og barnasvið 8.818 8.049 8,72
Geðsvið 5.449 5.727 5,10
SAMTALS 63.454 69.132 8,95*
* χ2 (1, N=159586) = 243,46, p<0,001
Mynd 1. Fjöldi stakra lyfjagjafa án fyrirmæla lækna eftir mánuðum
árin 2010 og 2011.
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
Ja
nú
ar
Fe
br
úa
r
Ma
rs
Ap
ríl Jú
lí
Nó
ve
mb
erMa
í
Se
pte
mb
er
Jú
ní
Ok
tób
er
Ág
ús
t
De
se
mb
er
2010 2011
Má
nu
da
gu
r
Fö
stu
da
gu
r
Mi
ðv
iku
da
gu
r
Su
nn
ud
ag
ur
Þr
iðj
ud
ag
ur
La
ug
ard
ag
ur
Fim
mt
ud
ag
ur
Mynd 2. Fjöldi stakra lyfjagjafa án fyrirmæla lækna eftir vikudögum
árin 2010 og 2011.
2010 2011
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
Mynd 3. Fjöldi stakra lyfjagjafa án fyrirmæla lækna eftir tímum
sólarhrings árin 2010 og 2011.
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
00 01 02 03 04 05 06 07 08 09 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
Fj
öl
d
i l
yf
ja
gj
af
a
2010 2011