Morgunblaðið - 23.11.2019, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019 47
Stafrænn leiðtogi
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að öflugum og reynslumiklum leiðtoga til að leiða stafræna
umbreytingu í þjónustu ríkisins. Um er að ræða nýtt starf og hefur viðkomandi tækifæri til að koma að
mótun stafrænnar þjónustu hjá ríkinu.
Efling stafrænnar þjónustu er eitt af forgangsmálum stjórnvalda og hefur ríkisstjórnin ákveðið að stafræn
samskipti verði meginsamskiptaleið almennings við hið opinbera fyrir lok ársins 2020.
Umsóknarfrestur er til og með 2. desember. Nánari upplýsingar
um starfið má finna á Starfatorgi og heimasíðu Capacent.
Helstu verkefni
Stýra starfi verkefnastofu um Stafrænt Ísland.
Móta markmið, áherslur og forgangsröðun verkefna.
Tryggja samstarf um stafræna þjónustu við hagaðila
m.a. ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög.
Annast áætlanagerð, framkvæmd og eftirfylgni
verkefna.
Taka þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði stafrænnar
þróunar.
Gert er ráð fyrir því að stafrænn leiðtogi gegni
hlutverki formanns í stýrihópi fjármála- og
efnahagsráðherra um Stafrænt Ísland.
Menntunar og hæfniskröfur
Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í
starfi.
Yfirgripsmikil reynsla af stjórnun innleiðingar
stafrænnar þjónustu.
Víðtæk yfirsýn yfir hagnýtingu upplýsingatækni.
Stjórnunarreynsla og reynsla af samningagerð.
Leiðtogahæfileikar og rík aðlögunarhæfni.
Hæfileiki til að miðla upplýsingum og afla verkefnum
stuðnings.
Rík þjónustulund, frumkvæði og drifkraftur.
Góð kunnátta í íslensku og ensku.
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
·
Félagsráðgjafi starfar í teymi Austurlandslíkansins er kemur að málefnum barna og
fjölskyldna í samstarfi við skóla, leikskóla og heilsugæslu. Teymið starfar að hluta til í
leik- og grunnskólum þeirra sex sveitarfélaga sem standa að Félagsþjónustu Fljóts-
dalshéraðs. Auk þess að sitja í teyminu, starfar félagsráðgjafi innan fjölskyldusviðs og
sinnir m.a. barnaverndarmálum ásamt öðrum þeim störfum sem almennt tilheyra sviðinu.
Félagráðgjafi starfar meðal annars eftir barnaverndarlögum nr. 80/2002, og lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni fatlaðs fólks með lang-
varandi stuðningsþarfir nr. 38/2018, stjórnsýslulögum nr. 37/1993 og öðrum lögum er
lúta að sviðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
· Starfsréttindi í félagsráðgjöf
· Þekking og reynsla af félagsþjónustu og barnavernd
· Getu og vilja til samvinnu og hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum
· Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu
· Góð alhliða tölvukunnátta, þekking á Navision og OneSystems er kostur
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
· Kostur að hafa PMTO meðferðarmenntun
· Bílpróf
Umsóknarfrestur er til og með 13. desember 2019.
Störfin eru laus frá og með næstu áramótum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsókn ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og
rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið julias@egilsstadir.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Júlía Sæmundsdóttir, félagsmálastjóri, í síma
4700700.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags.
Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um.
Vinnustaðir Fljótsdalshéraðs eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Félagsráðgjafar í Austurlandslíkaninu
Tvær lausar stöður félagsráðgjafa í Austurlandslíkaninu hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs.
Önnur staðan er til eins árs, með möguleika á framlengingu, hin er framtíðarráðning.
capacent.is
– erum við með réttu manneskjuna
Ráðgjafar okkar búa