Morgunblaðið - 23.11.2019, Side 51
DÆGRADVÖL 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Skiltagerð
Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
Laugalandsskóla. Þau eru búsett í
Fellsmúla í Landsveit. Foreldrar
Sigurjóns eru Bjarni E. Sigurðs-
son, f. 27.6. 1935, fyrrverandi kenn-
ari, skólastjóri og bóndi á Hvoli í
Ölfusi, og Kristín Björg Jónsdóttir,
f. 22.11. 1936, húsmóðir og fyrrver-
andi starfsmaður Pósts og síma.
Börn Halldóru og Sigurjóns eru
1). Þorvarður Kjerúlf, f. 4.12. 1982,
viðskiptastjóri hjá Trackwell í
Reykjavík. Maki: Kristín Lena
Þorvaldsdóttir, forstöðumaður
samskiptamiðstöðvar heyrnar-
lausra og heyrnarskertra. Börn
þeirra eru Óttar Kjerúlf, f. 12.6.
2011, og Kári Kjerúlf, f. 19.12.
2017; 2) Sigurjón Bjarni, f. 30.7.
1988, stundar meistaranám í Den
Danske Scenekunstskole í Kaup-
mannahöfn. Maki: Sara Ragnars-
dóttir dansari; 3) Vésteinn, f. 4.1.
1994, verkfræðingur, búsettur í
Hollandi. Maki: Marieke Huuren-
kamp, nemi í Hollandi.
Alsystir Halldóru er Ólína, f. 8.9.
1958, fyrrverandi alþingismaður og
skólameistari. Hálfsystkini Hall-
dóru samfeðra, eru Einar, f. 16.3.
1944, verkfræðingur; Sigríður Dýr-
finna, f. 9.2. 1947, skólaliði; Sigríður,
f. 3.8. 1948, verslunarmaður; Mar-
grét, f. 22.11. 1949, hjúkrunarfræð-
ingur; Guðbjörg Anna, f. 30.3. 1951,
dýralæknir; Þórunn, f. 18.8. 1955,
verslunarmaður, Þorsteinn, f. 10.8.
1956, búfræðiráðunautur; Dagbjört
Þyri, f. 19.3. 1958, hjúkrunarfræð-
ingur.
Foreldrar Halldóru voru hjónin
Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson, f.
24.11. 1917, d. 31.8. 1983, sýslu-
maður og bæjarfógeti á Ísafirði, og
Magdalena Ólafsdóttir Thoroddsen,
f. 7.2. 1926, d. 3.5. 2018, húsfreyja og
blaðamaður.
Halldóra Jóhanna
Þorvarðardóttir
Jóna Einarsdóttir
húsfr. á Vaðli á Barðaströnd
Andrés Björnsson
bóndi á Vaðli á Barðaströnd
Ólína Andrésdóttir
húsfr. í Vatnsdal
Magdalena Ólafsdóttir
Thoroddsen húsfr. og blaðamaður
Ólafur E. Thoroddsen
útvegsbóndi og kennari í Vatnsdal
Sigríður Ólafsdóttir
húsfr. í Vatnsdal
Einar J. Thoroddsen
bóndi í Vatnsdal, Rauðasandshreppi
Guðríður Hjaltested Ólafsdóttir
húsfr. á Ormarsstöðum
Þorvarður Kjerúlf Andrésson
læknir og alþm. á
Ormarsstöðum í Fellum
Sigríður Þorvarðardóttir Kjerúlf
húsfr. á Reyðarfi rði
Þorsteinn Jónsson
kaupfélagsstjóri á Reyðarfi rði
Margrét Pétursdóttir
húsfr. á Egilsstöðum
Jón Bergsson
bóndi og kaupfélagsstjóri á Egilsstöðum á Völlum
Úr frændgarði Halldóru J. Þorvarðardóttur
Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson
sýslumaður og bæjarfógeti á Ísafi rði
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... söngur í dúr og moll.
VIÐ ÆTTUM AÐ
STANDA SAMAN
OG GERA
HVAÐ
UM … EKKERT? JÁ
TAKK
ERTU MEÐ EINHVERS KONAR
FJÁRHAGÁÆTLUN FYRIR
FRAMTÍÐINA?
AUÐVITAÐ! AÐ VERA SYKURSÆTUR VIÐ MÖMMU ÞÍNA OG BÍÐA!
„HANN VIRÐIST ÆTLA AÐ TÓRA. ÉG
SAMHRYGGIST.”
„ÞAÐ STENDUR „EKKI FÓÐRA DÝRIN”. AÐ
SJÁ SPARIJAKKANN ÞINN!”
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Illt er að hafa á hendi þann.
Hann þér veginn lýsa kann.
Í næturvakt er nafnið hans.
Náinn vinur húsbóndans.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Illt er með fjölda hunda á hendi.
Hundur við iðju lýsir mér.
Hundur þjófi frá húsi renndi.
Hundurinn bestur vina er.
Guðrún Bjarnadóttir svarar:
Í gærkvöld fékk á hendi hunda,
hurðum skellt’, tók ljóshund brott.
Á hundavakt sá Drífu dunda.
Á dyggum hundi beið mín skott.
„Lausnin er eitthvað á þessa leið“
svarar Helgi R. Einarsson:
Vonlaust spil og vinnuljós,
vinur hals og sprundar,
eymdarvakt, sem er til sjós,
því okkur birtast hundar.
Þessi er skýring Guðmundar:
Illt á hendi er hund að fá.
Hundur lýsa veg þér má.
Í hundavakt er hundurinn.
Hundur er besti vinur þinn.
Þá er limra:
Þeir Sigmundur lóðs á Sundhana,
er sótti í björgin lundana,
og Ingimundur
og hans hundur
eru farnir í hundana.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Harla grár er himinninn,
heldur dauft mitt þankafar,
þung er gáta í þetta sinn,
þó mun fást við henni svar:
Vegur, sem umferð vagna ber.
Verið getur stefna.
Bil, sem milli boða er.
Bragnar þing svo nefna.
Þessi limra flaug með svari
Helga R. Einarssonar:
Þegar að Guðmundur grallari
og kappinn Svanlaugur svallari
kepptust um Bínu,
Kötu og Stínu,
hvor þá öðrum var snjallari
Að lokum er gömul vísa:
Rýkur í koti, vindurinn voti
vill á dynja.
Hundur í skoti fullur af floti
fer að stynja.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hundur gjörir
hundsgjörning