Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Nýtt línuskip Grindvíkinga fær
formlega nafnið Páll Jónsson GK 7 á
þriðjudag í næstu viku. Skipið er
væntanlegt fullbúið heim vel fyrir jól
og fer til veiða í byrjun nýs árs.
Skipið er fyrsta nýsmíði Vísis af
þessari stærðargráðu í yfir 50 ára
sögu fyrirtækisins. Samningurinn
við Alkor-skipasmíðastöðina í Pól-
landi nam 7,5 milljónum evra eða
sem nemur rúmlega einum milljarði
króna. Gamli Páll Jónsson GK 7 fer
úr flota Vísismanna þegar nýja skip-
ið byrjar veiðar. Skipstjóri á nýjum
Páli verður Gísli Jónsson, sem nú er
með gamla Pál Jónsson, og hefur
verið skipstjóri hjá Vísi í tæpan
aldarfjórðung.
Öllum prófunum lokið
Formlega tók Vísir við nýja skip-
inu með rafrænum samskiptum fyrir
tveimur vikum. Öllum prófunum er
lokið á skipinu og verið er að ljúka
uppsetningu á búnaði. Verktakar frá
Íslandi og starfsmenn skipasmíða-
stöðvarinnar í Gdansk hafa annast
þau verkefni. Í skipinu eru Caterpill-
ar-vélar, bæði aðal- og ljósavélar.
Hönnun skipsins var í höndum
NAVIS í samstarfi við Kjartan
Viðarsson, útgerðarstjóra Vísis. Um
eftirlit á smíðinni í Póllandi hefur
Willum Andersen séð.
Skipið er 45 metra langt og 10,5
metrar á breidd. Það er búið full-
komnum búnaði til línuveiða, m.a.
Mustad Autoline-línukerfi frá Ísfelli
ehf. og með sjálfvirkt rekkakerfi
sem léttir álag og vinnu um borð.
Fiskvinnslubúnaðurinn er frá Skag-
anum 3X og Marel. Hann bætir með-
höndlun afla, svo sem blæðingu, kæl-
ingu, flokkun og frágang í lest.
Sviplegt og hörmulegt sjóslys
Dagsetningar eru ekki tilviljun
frekar en fyrri daginn hjá þeim
Vísismönnum. Skrifað var undir
samning um smíðina 12. desember
2017 á fæðingardegi Páls Jónssonar,
afa systkinanna í Vísi. Hann fórst
með Hilmi frá Þingeyri ásamt áhöfn
og fjórum farþegum, alls 11 manns, á
Faxaflóa 1943. Fjölskyldan hefur
miðað við að skipið hafi farist 25.
nóvember, en opinberlega var skipið
talið af 26. nóvember. „Við miðum
því við opinberu dagsetninguna að
þessu sinni þar sem 25. ber upp á
mánudag, sem er ekki góður dagur
til athafnar eins og nafngjafar,“ segir
Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri
Vísis.
Í Morgunblaðinu 30. nóvember
1943 var sagt frá slysinu og í upphafi
fréttar á forsíðu segir: „Óttast er að
sviplegt og hörmulegt sjóslys hafi
orðið hjer í Faxaflóa fyrir helgina.
Vjelskipið Hilmir frá Þingeyri fór
hjeðan aðfaranótt föstudags s.l.
áleiðis til Arnarstapa. Síðan hefir
ekkert til skipsins spurst og leit flug-
vjela og varðskipsins „Ægir“ engan
árangur borið. Er skipið talið af og
leit að því hætt. Með skipinu voru 11
menn, 7 skipverjar og 4 farþegar.“
Í fréttinni segir einnig: „Skipstjóri
á Hilmi var einn af kunnari fiski-
mönnum fiskiflotans, Páll Jónsson,
sem lengst af var á „Fjölni“. Hann
var búsettur á Þingeyri, giftur mað-
ur og átti 4 börn.“ Aðrir skipverjar
eru nafngreindir og einnig farþeg-
arnir, tvær konur og eitt barn og
„Anton Björnsson, kunnur íþrótta-
maður hjeðan úr bænum, sonur
Björns í Ánanaustum. Hann var
íþróttakennari á vegum SÍ og var á
leið vestur á Snæfellsnes í þeim er-
indum“. Anton var faðir Markúsar
Arnar, borgarstjóra og útvarps-
stjóra, og var Markús Örn sex mán-
aða þegar faðir hans fórst.
Slysið enn ráðgáta
Hilmir var nýtt skip, smíðað á
Akureyri, og voru flutningar á vikri
frá Arnarstapa til Reykjavíkur
fyrsta verkefni skipsins, sem var í
sinni sjöundu ferð með vikur þegar
það fórst. Í frétt Morgunblaðsins
segir að veður hafi verið slæmt að-
faranótt föstudagsins þegar skipið
hélt í sína síðustu ferð, en skipið hafi
þó lent í verra veðri. Það sé mönnum
ráðgáta hvernig þetta hörmulega
slys hafi borið að höndum. Hilmir
hafi verið traust skip.
Pétur segir að slysið sé mönnum
enn ráðgáta. Ein skýringin sé að
skipið hafi orðið fyrir tundurdufli, en
líklegra sé að stöðugleika skipsins
hafi verið ábótavant og það hafi vald-
ið slysinu. Við brottför frá Akureyri
hafi það þótt mjúkt á bárunni og hafi
fjörugrjót verið sett í lestar þess til
að bæta kjölfestu. Þá hafi verið
steypt yfir brúarloftið í Hilmi til að
verjast mögulegum árásum á stríðs-
tímum. Þessi atriði gætu hafa valdið
skipskaðanum, en úr því fáist trúlega
aldrei skorið.
Jóhanna Daðey Gísladóttir, ekkja
Páls, hélt áfram útgerð, en félagið
átti einnig Fjölni frá Þingeyri. Í
stríðinu var það skip á síldveiðum og
einnig leigt til flutninga á fiski frá Ís-
landi til Bretlands. Undir lok seinni
heimsstyrjaldarinnar, í mars 1945,
fórst Fjölnir undan ströndum Eng-
lands eftir árekstur við breskt póst-
skip. Skipin voru bæði ljóslaus vegna
stríðsins og sigldi póstskipið á Fjölni
miðjan, sem var hlaðinn fiski, og
sökk hann á augabragði. Fimm Ís-
lendingar fórust með Fjölni og munu
þeir hafa verið síðustu Íslending-
arnir sem fórust af völdum stríðsins,
að sögn Péturs.
Jóhanna Daðey Gísladóttir og Páll
Jónsson voru foreldrar Páls Páls-
sonar, sem ungur hóf að sækja sjó-
inn, en hann var 11 ára þegar faðir
hans fórst. Páll stofnaði með fleirum
Vísi í Grindavík árið 1965, en hann
lést í febrúar 2015.
Viðræður um sameiningu
Á undanförnum árum hefur Vísir
látið endurbyggja línuskipin Fjölni
og Sighvat hjá Alkor í Póllandi, en
tvö skip bíða endurnýjunar í ein-
hverju formi, Kristín og Jóhanna
Gísladóttir. Vísir hafði tryggt sér
rétt á annarri nýsmíði hjá Alkor, en
Pétur segir að fallið hafi verið frá
hugmyndum um aðra nýsmíði að svo
stöddu.
Viðræður um sameiningu við Þor-
björn í Grindavík eru í gangi og segir
Pétur að menn gefi sér góðan tíma í
það verkefni. Línur ættu þó að skýr-
ast á fljótlega á nýju ári.
Hann segir að mjög góð aflabrögð
hafi verið hjá línubátunum undan-
farið og markaðir verið sterkir. Vísir
og dótturfyrirtæki annast sölu á sölt-
uðum og léttsöltuðum afurðum fyrir-
tækisins til landa við Miðjaðarhafið.
Í Norður-Evrópu er fyrirtækið með
Samherja í sölusamstarfi á ferskum
og frystum fiski og segir Pétur að vel
hafi gengið að selja afurðir.
Nýtt línuskip Vísis heim fyrir jól
Fer til veiða frá Grindavík í upphafi næsta árs Ber nafn Páls Jónssonar, afa systkinanna í Vísi Dagsetningar
eru ekki tilviljun Búið fullkomnum búnaði og mikil sjálfvirkni Góð aflabrögð undanfarið og sterkir markaðir
Á heimleið Nýr Páll Jónsson GK 7 á leið í reynslusiglingu hjá Alkor skipasmíðastöðinni í Gdansk. Skipið leysir eldra skip með sama nafni af hólmi.
Ljósmynd/Alkor
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Nánar á
kronan.is/
jolahladbord