Morgunblaðið - 23.11.2019, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 2019
bara á þessu ári hafa komið tilkynn-
ingar um tugþúsundir uppsagna frá
stærstu bönkum heims. Ofan á þessar
breytingar sjáum við svo líka hærri
skatta á fjármálafyrirtæki hér en í
löndunum í kringum okkur.“
Ásta segir aðspurð að skattar og
álögur hafi áhrif á þróunina.
„Bankarnir greiða um 10 milljarða
króna á ári í sértæka skatta og vegur
bankaskatturinn þar þyngst. Áætla
má að sársaukafullar hagræðingarað-
gerðir hjá bönkunum síðustu mánuði
skili broti af þeirri upphæð. Því má
auðvitað velta fyrir sér hvort þær
hefðu verið nauðsynlegar ef t.d.
bankaskattsins nyti ekki við. Vissu-
lega stendur til að lækka skattinn lítil-
lega á næsta ári en það hefði þurft að
byrja fyrr og lækka hann meira.“
Spurð hvort Viðskiptaráð telji að
grípa beri til aðgerða til að sporna
gegn frekari fækkun bankafólks segir
Ásta Sigríður menntun mikilvæga.
Hlúa þarf að nýsköpun
„Ég tel mikilvægt að huga að
endurmenntun starfsfólks og styðja
frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun
byggða á þeirri reynslu og þekkingu
sem fyrirfinnst innan bankanna.“
Rætt hefur verið um fækkun starfa
í verslun, ekki síst vegna netverslunar
og tækja sem gera viðskiptavinum
kleift að afgreiða sig sjálfir.
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjónustu,
segir fækkun starfa í verslun á Ís-
landi í takt við alþjóðlega þróun.
„Ég held það megi fullyrða að þró-
unin, sem við höfum spáð og gert ráð
fyrir undanfarin þrjú ár, hafi tekið
stökk á þessu ári, bæði á Íslandi og í
þeim löndum sem við berum okkur
gjarnan saman við,“ segir Andrés og
vísar til hinna Norðurlandaríkjanna,
Bretlands og Bandaríkjanna. Erlend-
ir sérfræðingar hafi áætlað að hefð-
bundnum störfum í verslun fækki um
allt að 25% á næstu árum.
Til dæmis hafi um 4.000 verslunum
verið lokað í Lundúnum og víðar í
Bretlandi á þessu ári. Þá hafi versl-
unum fækkað mikið á Manhattan í ár,
en það svæði hafi lengi verið mjög öfl-
ugt í verslun og viðskiptum.
Netsalan komin í 30-40%
Dæmi séu um að hlutdeild netsölu í
minni raftækjum og ýmsum vörum sé
komin í 30-40% af heildarveltu.
Andrés segir aðspurður að sam-
hliða fækkun hefðbundinna versl-
unarstarfa muni ný störf verða til.
Hins vegar sé erfitt að áætla hversu
mörg störf muni skapast á næstu ár-
um vegna breyttra viðskiptahátta.
„Það nægir að fara í næstu mat-
vöruverslun til að sjá að hefðbundn-
um störfum á afgreiðslukassa hefur
snarfækkað. Hluti skýringarinnar er
hagræðingarkrafa í versluninni.
Launakostnaður er orðinn gífurlega
hátt hlutfall kostnaðar í verslunar-
rekstri enda voru síðustu kjarasamn-
ingar mjög dýrir. Það var ekkert
launungamál að þeir myndu þrýsta á
hagræðingu í öllum atvinnugreinum,
ekki síst mannaflsrekum atvinnu-
greinum eins og í verslun. Það er haf-
ið yfir vafa að þetta tvennt, vaxandi
hlutdeild rafrænna viðskipta og hár
launakostnaður, hefur hraðað þessari
þróun,“ segir Andrés og vísar til
fækkunar hefðbundinna verslunar-
starfa. Samkvæmt tölum Hagstof-
unnar starfi um 30 þúsund manns í
verslun á Íslandi. Hins vegar liggi
hvorki fyrir hversu mikið störfum
fækkaði í ár, né hver þróunin kunni að
verða á næsta ári. „Það má fullyrða að
við höfum náð toppnum í fjölda hefð-
bundinna starfa í verslun á Íslandi.
Héðan í frá mun þeim tvímælalaust
fækka.“
Vildu sjá meiri skattalækkanir
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðu-
maður efnahagssviðs Samtaka at-
vinnulífsins, segir það skipta verulegu
máli að stjórnvöld séu að lækka
skatta nú þegar efnahagsforsendur
hafa breyst og það hægi á hagvexti.
„Mestu munar um skattalækkanir
á tekjur einstaklinga, en þær auka
ráðstöfunartekjur heimila og skapa
aukið svigrúm til neyslu og fjárfest-
inga. Í krónum talið er í fjárlagafrum-
varpinu gert ráð fyrir að skattkerfis-
breytingarnar séu um 20 milljarðar
króna, eða um 0,6% af landsfram-
leiðslu … Þegar horft er til allra
þeirra skattahækkana sem gripið var
til í kjölfar síðustu niðursveiflu verður
að segjast eins og er að við hefðum
viljað sjá stjórnvöld skapa aukið svig-
rúm til frekari skattalækkana.
Við áætlum að um 115 milljarða ár-
lega, eða um 15% af heildarskatt-
tekjum ríkisins, megi rekja til nýrra
skatta eða skattahækkana á síðustu
10 árum. Á sama tíma hafa útgjöld
vaxið um tugi milljarða ár frá ári og
enn eru háværar kröfur um aukin út-
gjöld til ýmissa málaflokka. Lítil
áhersla er því miður á forgangsröðun
fjármuna, aukna skilvirkni eða hag-
ræðingu til að skapa aukið svigrúm til
skattalækkana. Í ljósi þessa eru það
vonbrigði hversu fáir þingmenn al-
mennt stíga fram og koma með til-
lögur um hagræðingar í ríkisrekstri.“
Hagræðing þrýstir á fækkun starfa
Sérfræðingur telur að störfum hjá bönkum á Íslandi geti fækkað um nokkur hundruð á næstu árum
Viðskiptaráð telur rétt að bjóða bankafólki endurmenntun Störfum hefur líka fækkað í versluninni
Morgunblaðið/Samsett mynd
Þróun Störfum hefur fækkað mikið í bönkunum frá efnahagshruninu.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hagræðing þrýstir á fækkun starfa
hjá bönkum og í verslunum.
Sérfræðingur á fjármálamarkaði
telur að starfsmönnum stóru bank-
anna fækki í 2.100 á næstu misserum.
Samkvæmt Samtökum starfsfólks
fjármálafyrirtækja starfa nú um
2.500 manns hjá bönkunum.
Um 150 manns hefur verið sagt
upp hjá bönkunum í haust.
Umræddur sérfræðingur á fjár-
málamarkaði óskaði nafnleyndar
vegna tengsla sinna við bankana.
Hann taldi að bankarnir myndu
fækka starfsfólki enn frekar á næstu
árum. Miðað við reynslu nágranna-
ríkja mætti ætla að hver yrði með 700
starfsmenn innan fárra ára. Með því
yrðu þeir orðnir 2.100, eða um 400
færri en nú. Á hátindi útrásarinnar
2007 störfuðu þar um 4.700 manns.
Fram kom í Morgunblaðinu að
mörgum sem sagt var upp hjá bönk-
unum í september var boðin vinna.
Vegna góðrar menntunar væri
bankafólk eftirsóttur starfskraftur.
Spurð hvað Viðskiptaráð telji
skýra mikla fækkun bankafólks á síð-
ustu árum segir Ásta Sigríður Fjeld-
sted, framkvæmdastjóri ráðsins, að
skattlagning hafi sitt að segja.
Tekur gífurlegum breytingum
„Þótt sárt sé fyrir þá sem hafa
jafnvel misst ævistarfið er stað-
reyndin sú að geirinn er að taka
gífurlegum breytingum sem hefur í
för með sér mikla fækkun fólks.
Þetta einskorðast ekki við Ísland, en
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Bílakjarninn Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum5
ár
a
áb
yr
gð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
up
p
fy
llt
um
ák
væ
ðu
m
áb
yr
gð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fin
na
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
gd
-
V
er
ð
m
ið
as
t
vi
ð
ge
ng
i2
0.
nó
ve
m
b
er
,
20
19
.
Skoðaðu úrvalið á
www.hekla.is/mitsubishisalur
SKAPAÐU ÞITT
EIGIÐ ÆVINTÝRI
Á NÝJUM ASX
Nýr Mitsubishi ASX hefur verið nútímavæddur, fínstilltur og
endurskilgreindur til að mæta þínum þörfum. Hann býður upp á fjöldann
allan af sjónrænum uppfærslum og er einstaklega þýður í akstri sem skilar
sér vel á lengri ferðum. Nýr ASX 2020 hefur allt sem þarf til að skapa þitt
eigið ævintýr. Komdu og hittu nýja andlit ævintýranna;
endurhannaðan ASX 2020.
ASX2020
Verð frá 3.990.000 kr.