Morgunblaðið - 14.12.2019, Síða 4

Morgunblaðið - 14.12.2019, Síða 4
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Þyrla LHG flutti lík Leifs heitins til Akureyrar síðdegis gær. Lík Leifs Magnúsar Grétarssonar Thisland fannst neðan við Fossgil þar sem það mætir Núpá í Sölvadal í Eyjafirði laust eftir hádegi í gær. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann hinn látna sem leitað hafði ver- ið frá því á miðvikudagskvöld. Leif heitinn var til heimilis á Heiðarvegi 58 í Vestmannaeyjum og var 16 ára gamall, fæddur í Noregi 22. janúar 2003. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra var fund- arstaðurinn um 2,5-3 km neðan við stífluna við Eyvindarstaði þar sem Leif féll í ána síðastliðið miðvikudagskvöld. Að- standendur og norska sendiráðið á Íslandi voru strax látin vita að Leif væri fundinn, samkvæmt tilkynn- ingu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Lögreglan var upplýst um það laust fyrir kl. 15 í gær að búið væri að ná líkinu úr ánni og var það flutt til Akureyrar með þyrlu Land- helgisgæslu Íslands. 400 manns komu að verkefninu Erfiðar aðstæður voru á leitar- svæðinu, að sögn Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra. „Rúmlega 400 manns komu að þessu verkefni frá því að það byrjaði og þar til því lauk nú um fimmleytið. Þar af tóku um 200 manns þátt í dag og var leitað á 26 leitarsvæðum,“ sagði Halla Bergþóra síðdegis í gær. Hún sagði að leitarskilyrðin hefðu verið gríðarlega erfið, bæði vegna erfiðs tíðarfars, slæmra birtuskil- yrða og mikils krapa í Núpá. gudni@mbl.is Þyrla LHG fann lík pilts- ins í Núpá  Var töluvert langt neðan við stífluna þar sem slysið varð á miðvikudagskvöld Leitin Loftmyndir ehf. Eyvindarstaðir Fundarstaður Stíflan N ú p á Fossgil Illagil Leif Magnús Grétarsson Thisland Ljósmynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg Leitin við Núpá Þyrla Landhelgisgæslunnar og liðsmenn björgunarsveita leituðu meðfram og í ánni við erfiðar að- stæður. Óveður, kuldi, ofankoma, krapi og skammdegismyrkur juku á erfiðleika björgunarfólksins. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 SÓL ÉG SÁ eftir Ólöfu Nordal Allur ágóði af sölu rennur til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA Kúlan sem gleður alla 2019 Söluaðilar Kærleikskúlunnar 2019 eru: Casa Kringlunni, Skeifunni og Akureyri · Epal Kringlunni, Skeifunni, Laugavegi og Hörpu · Hafnarborg Hafnarfirði · Húsgagnahöllin Reykjavík og Akureyri · Kokka Laugavegi · Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsinu og Kjarvalsstöðum · Hönnunarsafn Íslands Garðabæ · Listasafn Íslands Reykjavík · Líf og list Smáralind · Þjóðminjasafnið Suðurgötu og Hverfisgötu · Snúran Ármúla · Blómaval um allt land · Bústoð Reykjanesbæ · Blóma- og gjafabúðin Sauðárkróki · Norska húsið Stykkishólmi · Póley Vestmannaeyjum Guðni Einarsson Þorsteinn Ásgrímsson Til stendur að þyrla Landhelgis- gæslunnar fari nú í birtingu frá Ak- ureyrarflugvelli og fljúgi meðfram nokkrum háspennulínum á Norður- landi til fá endanlega yfirsýn yfir ástand þeirra. Helgi B. Þorvaldsson, sérfræð- ingur í háspennulínum hjá Lands- neti, sagði að skoða ætti Kópaskers- línu og Húsavíkurlínu og fleiri línur. Hann segir að Laxárlínan sé tölu- vert mikið skemmd og Dalvíkurlína hafi farið mjög illa. „Við teljum okkur vera komna með þokkalega góða yfirsýn yfir þetta. Svo erum við að sjá ísingu á línum sem eru í rekstri hjá okkur og ætlum að skoða það betur,“ sagði Helgi. Hann kom að því verkefni að bregðast við eftir að um 600 raf- magnsstaurar hjá Rarik brotnuðu í miklu óveðri árið 1991. Annað áfall, en minna, kom árið 1995. Helgi sagði að Rarik hefði þá hafið átak í að setja raflínur í jörð þar sem reyndi mest á raflínurnar og ísingarhættan var mest. Það átak stendur enn yfir. Unnið að viðgerð Dalvíkurlínu Um fjörutíu manna vinnuflokkur á vegum Landsnets vann í gær hörð- um höndum að því að hreinsa Dal- víkurlínu af ísingu og brotnu efni. Þegar því er lokið verður farið í að endurreisa línuna. Samtals eru um 30 stæður skemmdar og vitað er um slit á einum stað á línunni. Smári Jónasson, forstöðumaður netþjónustu hjá Landsneti, stýrir hópnum rétt sunnan við Dalvík. Hann sagði við blaðamann mbl.is að menn vissu núna hvernig ætti að vinna verkið eftir að hafa náð að mestu utan um það. „Við erum komnir með öll tæki á staðinn, efni er til staðar og það er meira að koma, en það kemur allt í ákveðinni röð,“ sagði hann. Ágætis veður var á staðnum í gær, þó að nokkuð dökkt væri yfir á köfl- um. „Þetta er æðislegt núna, besti dagurinn frá því að óveðrið gekk yf- ir,“ sagði Smári. Allur hópurinn var úti og nýtti birtuna. Fyrsti hópur frá Landsneti lagði af stað strax á mið- vikudag og aðfaranótt fimmtudags komu fyrstu bílar með efni. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Eftirlit Þyrla LHG fór í stutta eftirlitsferð í gær en varð að hætta snemma vegna myrkurs. Í dag á að fljúga með- fram nokkrum háspennulínum á Norðurlandi til að ganga úr skugga um ástand þeirra eftir ofsaveðrið á dögunum. Fljúga meðfram háspennulínum  Lokaátak í eftirliti með línum á Norðurlandi eftir ofsa- veðrið  Dalvíkurlína fór illa í óveðrinu  Viðgerð hafin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.