Morgunblaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla Taflfélag Reykjavíkur hefurundanfarin ár staðið fyrirmóti þar sem teflt er einusinni í viku og er opið skák- mönnum undir 2000 elo-stigum. Á mótinu sem lauk í nóvemberlok gerðist það að Hrund Hauksdóttir, sem er 23 ára gömul, vann nokkuð óvæntan sigur og varð yfir ofan gamalreynda meistara á borð við Harald Haraldsson, Þór Valtýsson og Harald Baldursson. Ein ánægju- legasta niðurstaða mótsins var sú að í efstu sætum mátti finna fjórar ung- ar konur: 1.-3. Hrund Hauksdóttir, Þór Valtýsson og Páll Andrason 6 v. (af 7). 4.-10. Tinna Kristín Finn- bogadóttir, Lisseth Acevedo, Jó- hanna Björg Jóhannsdóttir, Agnar Darri Lárusson, Sigurjón Haralds- son, Loftur Baldvinsson og Har- aldur Haraldsson 5 v. Keppendur voru 64 talsins. Hrund var með bestu mótsstigin og telst því sigurvegari mótsins. Fyrir lokaumferð mótsins voru fimm keppendur í efsta sæti. Hrund átti því krefjandi verkefni sem hún leysti prýðilega af hendi: U-2000-mótið; 7. umferð: Sigurjón Þór Friðþjófsson – Hrund Hauksdóttir Skoska bragðið 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4. Bc4 Skoska bragðið getur verið stór- hættulegt ef svartur er ekki vel með á nótunum. Mun algengara er þó 4. Rxd4. 4. … Rf6 5. e5 d5 6. Bb5 Re4 7. Rxd4 Bd7 8. Bxc6 bxc6 9. c3?! Alltof hægfara leikur í hvassri byrjun. 9. … Be7 10. f3 Rg5 11. f4 Re4 12. Rd2 Rxd2 13. Bxd2 Hb8! Góður leikur sem truflar liðskipan hvíts. 14. f5?! Annar hæpinn peðsleikur og Hrund bregst rétt við. 14. … c5! 15. e6 cxd4 16. exd7+ Dxd7 17. Dg4 Bf6 18. 0-0 Hxb2 19. Hfe1+ Kf8 20. Bc1 20. … dxc3! Gott var einnig 20. … h5. Skipta- munarfórnin er fullkomlega réttmæt því að frípeðið á b2 er illviðráðan- legt. 21. Bxb2 cxb2 22. Db4+ Dd6 23. Db8+ Dd8 24. Db4+ c5 25. Dxc5+ Be7 26. Hxe7 Dxe7 27. Dc8+ De8 28. Dc5+ Kg8 29. Hb1 h6 Hvítur vonast til að ná b2-peðinu og kannski öðru peði til viðbótar. Hér var eilítið kröftugra að leika 29. … h5. 30. Dc2 De3+ 31. Df2 Dc1+ 32. De1 Dxe1+ 33. Hxe1 Kh7 34. Hb1 Hb8 35. Kf2 g6 Hvítur er bundinn í báða skó og svartur þarf aðeins að virkja kóng- inn. Það reynist létt verk. 36. Ke3 Hb4 37. Kd3 a5 38. Kc2 Hc4+ 39. Kxb2 Hb4+ 40. Kc2 Hxb1 41. Kxb1 Kg7 42. fxg6 Kxg6 43. Kc2 Kf5 44. Kd3 Ke5 45. Ke3 d4+ 46. Kd3 Kd5 47. a4 h5 48. g3 f6 49. h3 f5 50. Ke2 Ke4 51. h4 d3+ 52. Kd2 Kd4 53. Kd1 Ke3 54. Ke1 d2+ 55. Kd1 Kd3 56. g4 f4! Sneiðir hjá einfaldri gildru, 56. …fxg4 og hvítur er mát. Nú rennur f-peðið upp í borð og mátar um leið. Hvítur gafst upp. Krókur á móti bragði Helgi Áss Grétarsson virtist hafa gefið frá sér vinningsvon í skák sem hann tefldi í 4. umferð Evrópu- keppni einstaklinga í Tallinn á dög- unum: Demidov – Helgi Áss Rússinn gat nú leikið 41. Rxb7 og staðan er dautt jafntefli. En þess í stað kom 41. Dxh6+?? Virðist ekki breyta miklu eða hvað? 41. … Kxh6 42. Rf7+ Kh5! 43. Rxe5 Rg4+! 44. Rxg4 Kxg4 45. Kg2 b5? Of fljótur á sér en tíminn var naumur, 45. … Kf5 vinnur. Staðan er nú jafntefli en nákvæmni skorti hjá Demidov. 46. f3+ Kf5 47. Kf2 b4 48. Ke3 Ke5 49. Kd3 b3 50. Kc3 b2 51. Kxb2 Kd4 52. g4?? Jafntefli var að hafa með 52. f4, t.d. 52. … Ke3 53. Kc3 Kf3 54. Kd4 Kxg3 55. Ke5 o.s.frv. 52. … Ke3! – svartur náði báðum peðunum og vann létt. Hrund sigraði á U-2000-mótinu Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Heimasíða TR Sigurvegarinn Hrund Hauksdóttir einbeitt að tafli á U-2000-mótinu. Váleg skekja veður þjóð, víða náttúruöflin bresta. Ef enn við bætist eldsins slóð, öryggi má ekki fresta. Leiðir færar um landið allt, í lofti, landi og á sjó, af trúmennsku þú tryggja skalt, traustar stoðir, fólksins ró. Tenging orku um allan hring, sem öll við skulum ráða. Nýtum hana í þarfaþing, sem þjóðina hvetur til dáða. Fyrirbyggjum og forðumst vá, feigðinni höldum frá þjóðarsál. Ýtum slægð og falsi frá, forgang hafi brýnust mál. Trúmennska við land og þjóð Ólafur F. Magnússon Morgunblaðið/RAX Náttúruperla Langt að kominn rekaviður á grasbala við Rauðasand. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON, læknir og fv. borgarstjóri.. Sigurgeir Sigurðsson fæddist 14. desember 1934 á Sauðár- króki og ólst þar upp. For- eldrar hans voru hjónin Sig- urður P. Jónsson, f. 1910, d. 1972, kaupmaður og Ingibjörg Eiríksdóttir, f. 1908, d. 1979. Eiginkona Sigurgeirs var Sig- ríður Gyða Sigurðardóttir myndlistarkona, f. 1934, d. 2002. Þau eignuðust þrjú börn en fyrir átti Sigurgeir einn son. Sigurgeir var sveitarstjóri á Seltjarnarnesi 1965-1974 og bæjarstjóri 1974-2002, en þau hjónin höfðu flutt þangað 1957. Sigurgeir var kjörinn í hrepps- nefndina árið 1962 og var frá þeim tíma í sveitar- og bæjar- stjórn Seltjarnarness í samfellt 40 ár. Áður en hann varð bæj- arstjóri hafði Sigurgeir m.a. verið sölumaður hjá Kr. Krist- jánsson hf. 1960-1964. Sigurgeir var varaþingmað- ur Reyknesinga fyrir Sjálf- stæðisflokkinn 1980-1981. Hann var í stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga 1978- 1990 og formaður þess 1987- 1990. Sigurgeir sat að auki í fjölda nefnda fyrir Sambandið og Seltjarnarnesbæ, var for- maður Skipulagsstjórnar rík- isins 1986-1990 og um skeið formaður Íþróttafélagsins Gróttu. Sigurgeir hlaut fálka- orðuna árið 2000. Sigurgeir lést 3.10. 2017. Merkir Íslendingar Sigurgeir Sigurðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.