Morgunblaðið - 14.12.2019, Síða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla
Taflfélag Reykjavíkur hefurundanfarin ár staðið fyrirmóti þar sem teflt er einusinni í viku og er opið skák-
mönnum undir 2000 elo-stigum. Á
mótinu sem lauk í nóvemberlok
gerðist það að Hrund Hauksdóttir,
sem er 23 ára gömul, vann nokkuð
óvæntan sigur og varð yfir ofan
gamalreynda meistara á borð við
Harald Haraldsson, Þór Valtýsson
og Harald Baldursson. Ein ánægju-
legasta niðurstaða mótsins var sú að
í efstu sætum mátti finna fjórar ung-
ar konur: 1.-3. Hrund Hauksdóttir,
Þór Valtýsson og Páll Andrason 6 v.
(af 7). 4.-10. Tinna Kristín Finn-
bogadóttir, Lisseth Acevedo, Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir, Agnar
Darri Lárusson, Sigurjón Haralds-
son, Loftur Baldvinsson og Har-
aldur Haraldsson 5 v. Keppendur
voru 64 talsins.
Hrund var með bestu mótsstigin
og telst því sigurvegari mótsins.
Fyrir lokaumferð mótsins voru
fimm keppendur í efsta sæti. Hrund
átti því krefjandi verkefni sem hún
leysti prýðilega af hendi:
U-2000-mótið; 7. umferð:
Sigurjón Þór Friðþjófsson –
Hrund Hauksdóttir
Skoska bragðið
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. d4 exd4 4.
Bc4
Skoska bragðið getur verið stór-
hættulegt ef svartur er ekki vel með
á nótunum. Mun algengara er þó 4.
Rxd4.
4. … Rf6 5. e5 d5 6. Bb5 Re4 7.
Rxd4 Bd7 8. Bxc6 bxc6 9. c3?!
Alltof hægfara leikur í hvassri
byrjun.
9. … Be7 10. f3 Rg5 11. f4 Re4 12.
Rd2 Rxd2 13. Bxd2 Hb8!
Góður leikur sem truflar liðskipan
hvíts.
14. f5?!
Annar hæpinn peðsleikur og
Hrund bregst rétt við.
14. … c5! 15. e6 cxd4 16. exd7+
Dxd7 17. Dg4 Bf6 18. 0-0 Hxb2 19.
Hfe1+ Kf8 20. Bc1
20. … dxc3!
Gott var einnig 20. … h5. Skipta-
munarfórnin er fullkomlega réttmæt
því að frípeðið á b2 er illviðráðan-
legt.
21. Bxb2 cxb2 22. Db4+ Dd6 23.
Db8+ Dd8 24. Db4+ c5 25. Dxc5+
Be7 26. Hxe7 Dxe7 27. Dc8+ De8
28. Dc5+ Kg8 29. Hb1 h6
Hvítur vonast til að ná b2-peðinu
og kannski öðru peði til viðbótar.
Hér var eilítið kröftugra að leika
29. … h5.
30. Dc2 De3+ 31. Df2 Dc1+ 32.
De1 Dxe1+ 33. Hxe1 Kh7 34. Hb1
Hb8 35. Kf2 g6
Hvítur er bundinn í báða skó og
svartur þarf aðeins að virkja kóng-
inn. Það reynist létt verk.
36. Ke3 Hb4 37. Kd3 a5 38. Kc2
Hc4+ 39. Kxb2 Hb4+ 40. Kc2 Hxb1
41. Kxb1 Kg7 42. fxg6 Kxg6 43. Kc2
Kf5 44. Kd3 Ke5 45. Ke3 d4+ 46.
Kd3 Kd5 47. a4 h5 48. g3 f6 49. h3
f5 50. Ke2 Ke4 51. h4 d3+ 52. Kd2
Kd4 53. Kd1 Ke3 54. Ke1 d2+ 55.
Kd1 Kd3 56. g4 f4!
Sneiðir hjá einfaldri gildru,
56. …fxg4 og hvítur er mát. Nú
rennur f-peðið upp í borð og mátar
um leið. Hvítur gafst upp.
Krókur á móti bragði
Helgi Áss Grétarsson virtist hafa
gefið frá sér vinningsvon í skák sem
hann tefldi í 4. umferð Evrópu-
keppni einstaklinga í Tallinn á dög-
unum:
Demidov – Helgi Áss
Rússinn gat nú leikið 41. Rxb7 og
staðan er dautt jafntefli. En þess í
stað kom
41. Dxh6+??
Virðist ekki breyta miklu eða
hvað?
41. … Kxh6 42. Rf7+ Kh5! 43.
Rxe5 Rg4+! 44. Rxg4 Kxg4 45. Kg2
b5?
Of fljótur á sér en tíminn var
naumur, 45. … Kf5 vinnur. Staðan
er nú jafntefli en nákvæmni skorti
hjá Demidov.
46. f3+ Kf5 47. Kf2 b4 48. Ke3
Ke5 49. Kd3 b3 50. Kc3 b2 51. Kxb2
Kd4 52. g4??
Jafntefli var að hafa með 52. f4,
t.d. 52. … Ke3 53. Kc3 Kf3 54. Kd4
Kxg3 55. Ke5 o.s.frv.
52. … Ke3!
– svartur náði báðum peðunum og
vann létt.
Hrund sigraði á
U-2000-mótinu
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Heimasíða TR
Sigurvegarinn Hrund Hauksdóttir einbeitt að tafli á U-2000-mótinu.
Váleg skekja veður þjóð,
víða náttúruöflin bresta.
Ef enn við bætist eldsins slóð,
öryggi má ekki fresta.
Leiðir færar um landið allt,
í lofti, landi og á sjó,
af trúmennsku þú tryggja skalt,
traustar stoðir, fólksins ró.
Tenging orku um allan hring,
sem öll við skulum ráða.
Nýtum hana í þarfaþing,
sem þjóðina hvetur til dáða.
Fyrirbyggjum og forðumst vá,
feigðinni höldum frá þjóðarsál.
Ýtum slægð og falsi frá,
forgang hafi brýnust mál.
Trúmennska
við land og þjóð
Ólafur F. Magnússon
Morgunblaðið/RAX
Náttúruperla Langt að kominn rekaviður á grasbala við Rauðasand.
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON,
læknir og fv. borgarstjóri..
Sigurgeir Sigurðsson fæddist
14. desember 1934 á Sauðár-
króki og ólst þar upp. For-
eldrar hans voru hjónin Sig-
urður P. Jónsson, f. 1910, d.
1972, kaupmaður og Ingibjörg
Eiríksdóttir, f. 1908, d. 1979.
Eiginkona Sigurgeirs var Sig-
ríður Gyða Sigurðardóttir
myndlistarkona, f. 1934, d.
2002. Þau eignuðust þrjú börn
en fyrir átti Sigurgeir einn son.
Sigurgeir var sveitarstjóri á
Seltjarnarnesi 1965-1974 og
bæjarstjóri 1974-2002, en þau
hjónin höfðu flutt þangað 1957.
Sigurgeir var kjörinn í hrepps-
nefndina árið 1962 og var frá
þeim tíma í sveitar- og bæjar-
stjórn Seltjarnarness í samfellt
40 ár. Áður en hann varð bæj-
arstjóri hafði Sigurgeir m.a.
verið sölumaður hjá Kr. Krist-
jánsson hf. 1960-1964.
Sigurgeir var varaþingmað-
ur Reyknesinga fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn 1980-1981.
Hann var í stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga 1978-
1990 og formaður þess 1987-
1990. Sigurgeir sat að auki í
fjölda nefnda fyrir Sambandið
og Seltjarnarnesbæ, var for-
maður Skipulagsstjórnar rík-
isins 1986-1990 og um skeið
formaður Íþróttafélagsins
Gróttu. Sigurgeir hlaut fálka-
orðuna árið 2000.
Sigurgeir lést 3.10. 2017.
Merkir Íslendingar
Sigurgeir
Sigurðsson