Morgunblaðið - 14.12.2019, Side 20
Þá hafi nokkrir aðilar þegar sýnt
því áhuga að kaupa eða taka á leigu
skrifstofuhúsið Sjávarborg sem er í
byggingu austan Stuðlaborgar. Leiga
kemur til greina í heild eða að hluta en
sala eingöngu ef um allt húsið er að
ræða. Afhending er áformuð vorið
2021. „Við erum komin með áhuga-
sama kaupendur og leigjendur. Þetta
verður glæsileg bygging og mikið í
hana lagt,“ segir Kjartan Smári.
Danska arkitektastofan Schmidt
Hammer Lassen (SHL) hannar
íbúðahúsið Stuðlaborg og skrifstofu-
húsið Sjávarborg ásamt VA arkitekt-
um. SHL hannaði Skuggahverfið og
varð í 2. sæti í hönnunarsamkeppni
um Hörpu. Sólborg er hönnuð af THG
og stúdíó Arnhildar Pálmadóttur.
Sækja í vandaðra húsnæði
„Töluvert af atvinnuhúsnæði í
Reykjavík er orðið gamalt og það er
mikil eftirspurn eftir nýju og vönduðu
húsnæði sem stenst nútímakröfur
hvað varðar hönnun og frágang,“
segir Kjartan Smári. Uppbyggingin
sé tvískipt. Annars vegar sé byggt á
reitum B, C og D í fyrsta áfanga og
hins vegar á reit F í síðari áfanga. Síð-
ari áfanginn er nú í fullri þróun og þar
kemur ýmislegt til greina.
Á F-reit, á horni Sæbrautar og
Kringlumýrarbrautar, hefur verið
teiknað 250 herbergja hótel. Suður-
hluti byggingarinnar yrði 10 hæðir en
norðurhlutinn lægri eins og teikningin
hér fyrir ofan sýnir. Mögulegt yrði að
stækka hótelið með því að tengja það
aðliggjandi byggingu.
Kjartan Smári segir fall flugfélags-
ins WOW air og sviptingar í ferða-
þjónustunni vissulega hafa haft tíma-
bundin áhrif á hóteláform.
Hóteláform fara að skýrast
„Við höfum val um að byggja hótel
á reitnum. Húsið er skilgreint sem at-
vinnuhúsnæði með leyfi fyrir hóteli.
Þessar vikurnar erum við í viðræðum
við áhugasama aðila. Erlendir aðilar
hafa lengi sýnt þessum reit mikla at-
hygli fyrir hótel. Þetta er auðvitað
mjög flottur hótelreitur með sjávar-
útsýni sem er staðsettur nærri mið-
borginni og Laugardal. Hins vegar
halda margir að sér höndum og bíða
og sjá hvernig farþegatölur og aðrir
mælikvarðar í ferðaþjónustunni munu
þróast.
Nokkrir aðilar eru að skoða hótel-
reitinn nánar en á fyrri hluta næsta
árs ætlum við að taka ákvörðun um
hvort þarna rís hótel eða skrifstofu-
bygging. Það er alltaf eftirspurn eftir
góðum skrifstofuhúsum á svona góð-
um stað. Það er ekki verið að byggja
mikið af slíku húsnæði miðsvæðis í
Reykjavík, og nú þegar hafa aðilar
haft samband við okkur sem eru að
leita að mjög stóru nýju skrifstofu-
húsnæði,“ segir Kjartan Smári.
Þróun tekur mið af aðstæðum
Sjávarborg er rúmir sjö þúsund
fermetrar á sex hæðum og standa yfir
viðræður við áhugasama leigutaka. Til
samanburðar verða höfuðstöðvar
Landsbankans við Hörpu um 16.500
ferm. og bankinn nota 10.000 ferm.
„Það eru ýmsir möguleikar í stöð-
unni og sem betur fer höfum við þolin-
móða fjárfesta. Verkefnið er vel fjár-
magnað og eigendur eru sterkir fag-
fjárfestar; lífeyrissjóðir, trygginga-
félög og aðrir slíkir aðilar sem hugsa
til langs tíma. Seinni hluti verkefnis-
ins er í þróun og viðræður í gangi við
fjölda aðila um hótel og skrifstofur.
Meiri vissa varðandi flugsamgöngur
mun auðvelda mönnum að taka
ákvarðanir. Vissulega er snúið fyrir
hótelrekendur að taka ákvarðanir um
ný hótel þegar stór spurningarmerki
eru á lofti. Stór hótelverkefni eru í
pípunum í borginni og menn þurfa að
sjá til lands í þeim áður en þeir fjár-
festa í nýjum hótelum,“ segir Kjartan
Smári.
Austan við Sjávarborg stendur
gamla Íslandsbankahúsið. Deiliskipu-
lag er í vinnslu og segir Kjartan
Smári áformað að rífa húsið. Menn
vilji halda í atvinnusögu svæðisins og
byggja nýtt hús í anda gamla frysti-
hússins sem var stækkað í áföngum.
Þar voru síðar höfuðstöðvar SÍS og
enn síðar Glitnis og svo Íslandsbanka.
Milljarða sala á Kirkjusandinum
Seldar hafa verið 25 íbúðir í nýju hverfi á Kirkjusandi Söluverðið líklega á þriðja milljarð króna
Ákvörðun um 250 herbergja hótel verður tekin á næsta ári Fyrirtæki sýna Sjávarborg áhuga
Teikning/Schmidt Hammer Lassen og VA arkitektar
Sjávarborg Horft eftir Sæbraut til miðborgar. Stuðlaborg er til hægri.
Teikning/THG arkitektar
Með 250 herbergjum Hótelið yrði gegnt höfuðstöðvum Origo í Borgartúni.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fyrstu íbúðirnar í nýju hverfi á
Kirkjusandi í Reykjavík koma til
afhendingar með vorinu. Fram-
kvæmdirnar hófust í maí í fyrra en á
lóðinni voru höfuðstöðvar Strætó.
Fyrstu þrjár byggingarnar heita
Stuðlaborg, Sólborg og Sjávarborg.
Þegar hafa selst
14 af 77 íbúðum í
Stuðlaborg og 11
af 52 íbúðum í Sól-
borg. Stuðlaborg
fór í sölu sl. sumar
en Sólborg í haust.
Þar af hafa selst
fjórar af fimm
þakíbúðum á hæð-
um sex og sjö í
Stuðlaborg en
stærsta íbúðin
sem er seld er rúmlega 260 fermetrar.
Íbúðirnar eru af öllum stærðum eða
frá 50 fermetrum. Heilt yfir má áætla
að söluverð seldra íbúða í húsunum
tveimur sé á þriðja milljarð.
Salan er umfram væntingar
Félagið 105 Miðborg byggir á fjór-
um af níu reitum á Kirkjusandi.
Félagið er fagfjárfestasjóður í rekstri
og stýringu Íslandssjóða.
Kjartan Smári Höskuldsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandssjóða, segir söl-
una hafa gengið vonum framar, ekki
síst í ljósi aðstæðna í efnahagsmálum.
Það sé enn ekki búið að setja upp sýn-
ingaríbúðir í húsunum.
Áformað sé að afhenda íbúðir í
Stuðlaborg í vor og íbúðir í Sólborg
næsta sumar. Með því verður búið að
afhenda 129 af 159 íbúðum á reitum
B-F en 30 íbúðir verða í síðasta áfang-
anum á F-reit. Óvíst er hvenær það
hús kemur á markað.
Kjartan Smári
Höskuldsson
Morgunblaðið/Hari
Í gær Stuðlaborg er lengst til hægri en Sólborg er til vinstri baka til. Sjávarborg er byrjuð að rísa.
Teikning/THG arkitektar
Á vinnslustigi Teikning af samtengdum skrifstofum á F-reit á Kirkjusandi.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
UR
B
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM FYRIR ÁRAMÓT
EIGUM TIL AFGREIÐSLU STRAX CREW CAB BIG HORN,
LARAMIE, SPORT OG LIMITED ÚTFÆRSLUR.
EINNIG MEGA CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM.
BJÓÐUM UPP Á 35”, 37” OG 40” BREYTINGAR
RAM 3500 VERÐ FRÁ:6.987.745KR. ÁN VSK.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK.
ramisland.is
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 534 4433 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
BREYTT
MEGA CA