Morgunblaðið - 14.12.2019, Side 49

Morgunblaðið - 14.12.2019, Side 49
ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 Í vikunni sá ég síðari hálfleik hjá Ajax og Valencia í Meistaradeild UEFA. Valencia vann 1:0 og Ajax komst ekki áfram þótt liðið hefði safnað saman 10 stigum í nokkuð erfiðum riðli. Ajax nægði jafntefli til að kom- ast áfram. Leikmenn Ajax eru hæfileikaríkir og liðið leikur skemmtilega knattspyrnu eins og það hefur svo oft gert. Ég varð hins vegar fyrir vonbrigðum þegar ég sá unga leikmenn liðsins falla á hverju prófinu á fætur öðru þeg- ar leið á leikinn. Eins og stundum er með lítt reynda leikmenn þá vantaði öll klókindi þegar spennustigið var hátt. Leikmenn Ajax fórnuðu höndum yfir hinu og þessu þegar enn var hálftími eftir. Leikmenn Ajax féllu í alls kyns gryfjur sem reyndari og klókari menn gera sig ekki seka um. Brutu til dæmis ítrekað af sér síð- asta korterið. Akkúrat þegar menn þurfa að gæta þess að nýta tímann vel. Spánverjarnir græddu þar af leiðandi margar mínútur við að taka aukaspyrnur og sleikja minniháttar sár. Ofan á allt saman þá virtust Ajax-menn halda að þeir hefðu tíma í alls kyns rifrildi við dómarann og andstæðinga. Á vissan hátt er upplýsandi að sjá frábært knattspyrnulið gera öll þessi mistök og minnir mann á að allir þurfa tíma til að læra. Ekki er nóg að spila skemmtilegustu knattspyrnuna í keppninni og skora 4 mörk á útivelli gegn Chelsea og 3 mörk á útivelli gegn Valencia. Stigin gilda. Ajax var hársbreidd frá úrslita- leiknum í fyrra eftir frábæra framgöngu gegn Real Madrid og Juventus. Tottenham skoraði á síðustu stundu í undanúrslitum. Ajax virtist þá ekki ráða við að leggja rútunni fyrir framan eigið mark í uppbótartíma eins og það er kallað. Hjá Ajax kunna menn það ekki. Þar er enginn með meirapróf. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is KÖRFUBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stjarnan vann sinn sjötta sigur í röð er liðið vann sannfærandi 106:86-sigur á Haukum á útivelli í 10. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í gær. Með sigrinum varð Stjarnan fyrsta liðið til að vinna Hauka í deildarleik í Ólafs- sal á Ásvöllum, en fram að leikn- um höfðu Haukar unnið alla fimm leiki sína á heimavelli. Haukar byrjuðu miklu betur og voru með 33:22-forskot eftir fyrsta leikhluta, en eftir það tóku Stjörnumenn völdin með sjóðheit- an Kyle Johnson í aðalhlutverki. Þá spilaði Ægir Þór Steinarsson virkilega vel á báðum endum vall- arins. Stjörnumenn voru sár- svekktir með að falla úr leik í und- anúrslitum á síðustu leiktíð gegn ÍR. Garðbæingar eru í sókn og mun innkoma Gunnar Ólafssonar inn í liðið eftir áramót styrkja það enn frekar. Stjarnan ætlar sér tveimur skrefum lengra eftir ára- mót. Liðið verður að gera það án Jamar Akoh, sem hefur yfirgefið félagið vegna veikinda. Það verður áhugavert að sjá hvort Stjarnan fái bandarískan leikmenn í hans stað. Haukar verða að spila mun betur ætli þeir sér í úrslitakeppn- ina. Þór getur unnið hvern sem er Í Þorlákshöfn unnu heimamenn í Þór sterkan 89:81-sigur á Keflavík. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, en Þórsarar voru sterkari í spennunni í lokin. Eftir glæsilega byrjun á tímabilinu hef- ur Keflavík tapað þremur af síð- ustu fjórum leikjum sínum og er liðið nú tveimur stigum á eftir Stjörnunni. Halldór Garðar Her- mannsson fór á kostum fyrir Þór og skoraði 34 stig. Halldór hefur verið einn besti íslenski leikmaður deildarinnar til þessa og er gaman að sjá ungan íslenskan leikmann taka af skarið þegar mest er undir og eiga stórleik. Þórsarar eru ólík- indatól og geta unnið alla á góðum degi, en einnig tapað fyrir öllum á slæmum degi. Keflvíkingar þurfa að spila mun betur, ætli þeir sér að eiga mögu- leika í toppbaráttunni gegn Stjörn- unni. Dominykas Milka átti enn og aftur stórleik og skoraði 24 stig og tók 14 fráköst, en hann fékk sína fimmtu villu á lokakaflanum og missti af mikilvægum lokamín- útum. Milka hefur verið besti leik- maður Keflavíkur á tímabilinu, en hann hefur verið klaufi af og til. Grindavík á sigurbraut Grindvíkingar unnu sinn þriðja deildarsigur í röð er liðið hafði betur gegn Þór Akureyri á heima- velli, 100:94. Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Grindavík sann- arlega rétt úr kútnum. Þórsarar, sem hafa bætt sig töluvert á síð- ustu vikum, stóðu vel í Grindavík stærstan hluta leiks, en Grindvík- ingar lögðu grunninn að sigrinum með 34:19-sigri í þriðja leikhluta. Leikmannahópur Grindvíkinga er sterkur og gátu þeir leyft sér að byrja með Ólaf Ólafsson á bekkn- um. Dagur Kár Jónsson er svo frá vegna meiðsla. Sigtryggur Arnar Björnsson, Jamal Olasawere og Ingvi Þór Guðmundsson stóðu allir fyrir sínu í gær og þá er Kristófer Breki Gylfason búinn að koma mjög sterkur inn í síðustu leiki. Grindavík virðist vera í betri mál- um en lið eins og Haukar í barátt- unni um sæti í úrslitakeppninni. Stjarnan skín ein á toppnum  Stjarnan með tveggja stiga forskot á toppnum  Fyrsta liðið til að vinna úti- leik í Ólafssal  Þrjú töp í síðustu fjórum hjá Keflavík  Grindavík á sigurbraut Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ólafssalur Stjarnan varð í gærkvöld fyrsta liðið til að vinna deildarleik á útivelli í Ólafssal í Hafnarfirði. Breiðablik fór upp í toppsæti 1. deild- ar karla í körfubolta með 125:101- sigri á Hamri á útivelli í toppslag deildarinnar í gærkvöldi. Breiðablik er með 20 stig, eins og Höttur, tveim- ur stigum á undan Hamri sem er í 3. sæti. Árni Elmar Hrafnsson kom gríðarlega sterkur af bekknum hjá Breiðabliki og skoraði 28 stig og Hilmar Pétursson gerði 24 stig. Eve- rage Lee Richardson skoraði 26 fyrir Hamar. Vestri er í fjórða sæti með 12 stig eftir 69:62-útisigur á Selfossi. Marko Dmitrovic skoraði 15 stig fyrir Vestra. Breiðablik sterk- ari í toppslagnum Morgunblaðið/Hari Efstir Hilmar Pétursson og félagar í Breiðabliki eru í toppsætinu. Íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu fellur um eitt sæti á heims- lista FIFA sem gefinn var út í gær- morgun. Ísland var í 17. sæti á síðasta lista í september en sígur niður í 18. sætið. Íslenska liðið hefur leikið tvo leiki frá því listinn kom síðast út en það tapaði 4:0 fyrir Frökkum í vin- áttulandsleik í október og sigraði síðan Letta 6:0 í undankeppni EM nokkrum dögum síðar. Það eru Belgar sem hafa sæta- skipti við Íslendinga á listanum og fara upp í sautjánda sætið í staðinn. Ísland sígur niður um eitt sæti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landsliðskonur Dagný Brynj- arsdóttir og Hallbera Gísladóttir. Dominos-deild karla Haukar – Stjarnan ............................. 86:106 Grindavík – Þór Ak............................. 100:94 Þór Þ. – Keflavík................................... 89:81 Staðan: Stjarnan 10 8 2 943:842 16 Keflavík 10 7 3 887:843 14 Tindastóll 10 7 3 871:823 14 Njarðvík 10 6 4 831:735 12 ÍR 10 6 4 845:854 12 KR 10 6 4 826:816 12 Þór Þ. 10 5 5 799:814 10 Haukar 10 5 5 890:879 10 Grindavík 10 5 5 868:871 10 Valur 10 3 7 804:863 6 Fjölnir 10 1 9 857:933 2 Þór Ak. 10 1 9 801:949 2 1. deild karla Hamar – Breiðablik.......................... 101:125 Selfoss – Vestri ..................................... 62:69 Staðan: Breiðablik 11 10 1 1132:913 20 Höttur 11 10 1 962:853 20 Hamar 11 9 2 1068:989 18 Vestri 10 6 4 871:775 12 Selfoss 11 4 7 845:879 8 Álftanes 11 4 7 882:942 8 Snæfell 11 2 9 865:1037 4 Skallagrímur 11 2 9 921:1066 4 Sindri 9 1 8 726:818 2 Svíþjóð Borås – Luleå ....................................... 98:88  Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig, tók 1 frákast og gaf 11 stoðsendingar á 30 mínútum fyrir Borås. NBA-deildin Boston – Philadelphia ...................... 109:115 San Antonio – Cleveland ......... (frl.) 109:117 Detroit – Dallas ................................ 111:122 Denver – Portland.............................. 114:99 KÖRFUBOLTI Íslenska karlalandsliðið í íshokkí leikur á morgun úrslitaleik gegn Rúmeníu um að komast áfram á næsta stig undankeppninnar fyrir Vetrarólympíuleikana í Peking ár- ið 2022. Riðill Íslands er leikinn í Brasov í Rúmeníu og hafa Íslendingar og Rúmenar unnið báða sína leiki til þessa. Ísland vann Kirgistan 9:4 á fimmtudag og í gær vann liðið sannfærandi 5:0 sigur á Ísrael. Í 2. deild HM fyrir um hálfu ári hafnaði Ísrael ofar en Ísland og íslenska liðið virðist því vera að sækja í sig veðrið eftir mikla endurnýjun á síð- ustu árum. Varnarjaxlinn Róbert Freyr Pálsson er fyrirliði Íslands í mótinu í fjarveru Ingvars Þórs Jónssonar sem verið hefur landsliðsfyrirliði í meira en áratug en meiddist í baki rétt áður en liðið hélt utan. „Ég er nú bara með fyrirliðahlutverkið að láni. Ingvar verður kominn aftur í apríl þegar við verðum á heima- velli á HM. Ég er alveg viss um að hann eigi eitthvað eftir,“ sagði Ró- bert og neitar því ekki að því fylgi stolt að skauta í landsliðstreyjunni með C á brjóstkassanum. „Það er gríðarlegur heiður að fá að leiða liðið. Ég fæ góðan stuðning frá strákunum sem er frábært,“ sagði Róbert og hann er mjög ánægður með hið unga lið sem Ísland teflir nú fram. „Ég efast um að A-landsliðið hafi nokkurn tíma verið jafn ungt. Eftir að Ingvar meiddist þá lækkaði meðalaldurinn um heilan helling,“ sagði Róbert og hló. „Mér finnst við vera að standa okkur vel. Mórall- inn er mjög góður í liðinu og þetta lofar góðu fyrir framtíðina.“ Markvörðurinn Jóhann Björgvin Ragnarsson lék sinn fyrsta A- landsleik í gær og hélt markinu hreinu. Hann er aðeins 16 ára gam- all og ungu mennirnir fá því aug- ljóslega sín tækifæri hjá landsliðs- þjálfaranum Vladimir Kolek. Axel Orongan skoraði tvívegis gegn Ísrael og þeir Miloslav Rac- ansky, Jóhann Már Leifsson og Ólafur Hrafn Björnsson gerðu sitt markið hver. kris@mbl.is Ungt landslið virðist á réttri leið  16 ára markvörður, Jóhann Björgvin Ragnarsson, hélt hreinu í fyrsta A-landsleiknum Aðgangsharður Axel Orongan í leiknum gegn Ísrael í gær. Ljósmynd/Íshokkísamband Rúmeníu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.