Morgunblaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
Þetta verður allt í lagi,“sagði Böddi prentari viðfréttastjóra áður en degitók að halla fyrir margt
löngu og reyndist sannspár, blaðið
var tilbúið til prentunar á réttum
tíma. Síðan hafa
þessi fleygu orð
ratað víða og les-
andi spennusög-
unnar Úr myrkr-
inu er reglulega
minntur á þau í
bókinni, sem
minnir annars á
glímu engilsins við
djöfulinn.
Ragnheiður Gestsdóttir er þekkt
fyrir unglingasögur og hetjur ævin-
týrabókanna eftir Enid Blyton
koma óneitanlega upp í hugann við
lestur þessarar fyrstu spennubókar
hennar fyrir fullorðna. Tvær stúlk-
ur á unglingsaldri eru í aðal-
hlutverki, þurfa að takast á við
svipuð vandamál og eiga í erfið-
leikum með að ná sambandi þegar
mest ríður á. En þar sem er vilji
þar er von.
Djöflar í mannsmynd leynast
víða og jafnvel þar sem síst skyldi.
Englar alheimsins mega sín gjarn-
an lítils gegn þeim sem svífast
einskis og það getur verið erfitt að
vera barn í heimi fullorðinna.
Ragnheiður dregur þessa ólíku
heima saman í bókinni, sem lýsir
viðbjóðslegri veröld í aðra röndina
en ber með sér von um betra líf í
hina. Lýsingar hennar eru trúverð-
ugar og eftirtektarvert er að hún
vekur athygli á björtum hliðum
starfsstétta sem hafa annars átt
undir högg að sækja að undan-
förnu.
Spennan er töluverð á stundum
og þess er vandlega gætt að halda
jafnvægi á milli illvirkja og fólks
með stórt og gott hjarta. Boðskap-
urinn leynir sér heldur ekki – brot
eru ekki brotaþola að kenna.
Þetta verður
allt í lagi
Spennusaga
Úr myrkrinu bbbmn
Eftir Ragnheiði Gestsdóttur.
Björt, 2019. 301 bls.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Golli
Jafnvægi „Þess er vandlega gætt að
halda jafnvægi á milli illvirkja og
fólks með stórt og gott hjarta,“ seg-
ir um bók Ragnheiðar Gestsdóttur.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Platan var öll tekin upp á einum
degi í september og fóru upptökur
fram upp á gamla mátann. Þannig
tóku allir upp á sama tíma í sama
herbergi og því ekkert hægt að
klippa eða bæta við. Sú nálgunarleið
hentar mjög vel í djassinum þar sem
tengslin við hitt tónlistarfólkið er
lykilatriði,“ segir djasssöngkonan
Stína Ágústs um jóladjassplötuna
Hjörtun okkar jóla sem nýverið kom
út. Plötuna vann Stína í samvinnu við
djasssöngkonuna Marínu Ósk og gít-
arleikarann Mikael Mána Ásmunds-
son. Auk þeirra Marínu, Stínu og
Mikaels, leika þeir Þorgrímur Jóns-
son á kontrabassa og Matthías M.D.
Hemstock á trommur. Upptökum
stjórnaði Þórður Magnússon og sá
hann einnig um að hljóðblanda.
Sinntu eftirspurn með plötu
Spurð um tilurð plötunnar rifjar
Stína upp að Marína hafi flutt til
Stokkhólms 2018 til að fara í meist-
aranám, en Stína býr í sömu borg.
„Okkur langaði að halda saman tón-
leika og skelltum í jólatónleika bæði í
Stokkhólmi og Reykjavík, en alls
staðar var uppselt,“ segir Stína og
rifjar upp að þær hafi sett saman
dagskrá sem innihélt jólalög frá
Íslandi, Svíþjóð, Danmörku, Noregi
og Finnlandi sem þær þýddu sjálfar
á íslensku.
„Við erum báðar mjög virkar í því
að semja texta og fannst gaman að
spreyta okkur á þessum þýðingum,“
segir Stína, en þær Marína hafa báð-
ar verið tilnefndar til Íslensku tón-
listarverðlaunanna fyrir djassplötur
á íslensku með textum eftir þær
sjálfar, Stína fyrir Jazz á íslensku frá
2017 og Marína fyrir Beint heim f́rá
2018. „Í framhaldinu af jólatónleik-
unum í fyrra fengum við fjölda fyrir-
spurna um það hvort við hefðum gef-
ið lögin út og ákváðum þá bara að
skella í eina plötu.“
Hlý jólastemning
Spurð hvað hafi ráðið lagavalinu
segir Stína að þær Marína hafi lagst í
mikla rannsóknarvinnu. „Við hlust-
um á mikið magn jólalaga og spurð-
um fólk sem við þekkjum frá öllum
löndunum á Norðurlöndum hvert
væri uppáhaldsjólalagið frá þeirra
heimalandi. Við völdum síðan þau lög
sem okkur fannst búa yfir ein-
hverjum gneista sem við löðuðumst
að,“ segir Stína og tekur fram að þær
hafi lagt áherslu á að skapa hlýja
jólastemningu á plötunni.
Að sögn Stínu fóru þær Marína í
jólatónleikaferð fyrr í þessum mán-
uði og héldu tónleika í Osló, Kaup-
mannahöfn, Stokkhólmi og Reykja-
vík. „Við eigum enn eftir að halda
jólatónleika í Finnlandi, þannig að
hver veit nema við tökum aðra nor-
ræna jólatónleikaferð á næsta ári,“
segir Stína sem var á leið aftur til
Stokkhólms daginn eftir að blaða-
maður náði tali af henni í vikunni.
„Ég kem aftur til Íslands 27. des-
ember og syng á tónleikunum Gull-
öld sveiflunnar með Stórsveit
Reykjavíkur í Eldborg Hörpu
sunnudaginn 5. janúar kl. 20. Í fram-
haldinu er ég að fara að taka upp
næstu sólóplötu mína í samstarfi við
Mikael Mála og Önnu Grétu Sigurð-
ardóttur píanóleikara,“ segir Stína
og tekur fram að þar verði aðallega
um að ræða frumsamið efni með
enskum texta.
Þess má að lokum geta að platan
Hjörtun okkar jóla er aðgengilega á
streymisveitum á borð við Spotify.
Norrænn jóladjass
Marína og Stína gefa út Hjörtun okkar jóla Stína syng-
ur með Stórsveitinni í janúar Á leið í stúdíó með nýtt efni
Jólarautt Marína Ósk og Stína Ágústs í jólalitnum eina sanna.
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða
haldnir í Eldborg Hörpu í dag og á morgun, laugardag
og sunnudag, kl. 14 og 16 báða dagana. Á efnisskránni
eru „Jólaforleikur“ eftir Leroy Anderson, „Litli
trommuleikarinn“ eftir Katherine K. Davis, „Það á að
gefa börnum brauð“ eftir Jórunni Viðar, „Þá nýfæddur
Jesús í jötunni lá“ eftir William J. Kirkpatrick og
„Skautavalsinn“ eftir Émile Waldteufel auk fleiri
sígildra jólalaga. Trúðurinn Barbara, sem Halldóra
Geirharðsdóttir leikur, er kynnir og sögumaður tón-
leikanna, einsöngvarar eru Hrafnhildur Árnadóttir
Hafstað, Unnsteinn Manuel Stefánsson og Kolbrún
Völkudóttir og hljómsveitarstjóri Bjarni Frímann
Bjarnason. Að vanda tekur fjöldi ungra listamanna þátt
í tónlistarflutningnum um helgina. Fram koma
Stúlknakór Reykjavíkur, blokkflautusveit Tónlistar-
skóla Árnesinga, ungir trommuleikarar, dansarar úr
Listdansskóla Íslands, Hörpuhópur, bjöllukór Tónlist-
arskóla Reykjanesbæjar og táknmálskórinn Litlu
sprotarnir, en tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli.
Hátíðarstemning í Eldborg
Morgunblaðið/Eggert
Trúður Barbara, sem Halldóra Geirharðsdóttir leikur, er kynnir og sögumaður tónleikanna um helgina.
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús
með góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á
öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg