Morgunblaðið - 14.12.2019, Side 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
Vatnaskil í Bretlandi
Íhaldsmenn unnu 24 kjördæmi sem alltaf höfðu kosið Verkamannaflokkinn
Corbyn og Swinson hrökklast frá völdum Sturgeon þrýstir á um sjálfstæði
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Segja má að vatnaskil hafi orðið í
breskum stjórnmálum eftir að
Íhaldsflokkurinn vann þingkosning-
arnar í fyrrinótt með miklum yf-
irburðum. Hlaut flokkurinn 365
þingsæti af þeim 650 sem í boði
voru og um 80 þingsæta meirihluta.
Hefur meirihluti Íhaldsflokksins
ekki mælst svo mikill frá því í for-
sætisráðherratíð Margaret Thatc-
her á níunda áratugnum.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Breta, þakkaði í gær kjósendum
sínum fyrir það mikla traust sem
þeir hefðu sýnt sér og hét því að nú
væri lag til þess að klára útgöngu
Breta úr Evrópusambandinu, en
það var hans helsta slagorð í kosn-
ingabaráttunni. Hin þunga áhersla
Johnsons á útgöngumálið skilaði
greinilega árangri en Íhaldsflokk-
urinn vann í gær marga óvænta
sigra í kjördæmum, sem áður voru
talin óvinnandi vígi Verkamanna-
flokksins.
Snemma ljóst í hvað stefndi
Ljóst var í hvað stefndi um leið
og kjörstöðum var lokað kl. tíu um
kvöldið, en þá birtu helstu sjón-
varpsstöðvar Bretlands vandaða út-
gönguspá, þar sem Íhaldsflokknum
var spáð 368 þingsætum, á meðan
Verkamannaflokkurinn átti einungis
að fá 191 þingmann kjörinn. Þó að
nokkur frávik ættu sér stað fylgdu
úrslit kosninganna að miklu leyti
þeirri forspá.
Fyrsti skellur kvöldsins fyrir
Verkamannaflokkinn kom svo laust
upp úr ellefu, þegar tilkynnt var að
Blyth Valley-kjördæmi í Northum-
berland hefði kosið sinn fyrsta þing-
mann úr röðum íhaldsmanna frá því
að kjördæmið var myndað árið 1950.
Sú saga endurtók sig hvað eftir
annað eftir því sem leið á kosn-
inganótt og unnu íhaldsmenn í
heildina 24 kjördæmi sem áður
höfðu alltaf kosið sér fulltrúa úr
röðum Verkamannaflokksins. Voru
þau flest í norðausturhluta Eng-
lands, þar sem stuðningur við út-
gönguna úr Evrópusambandinu var
mjög mikill í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni 2016.
Það var því táknrænt fyrir kvöld-
ið að meirihlutasigur Íhaldsflokks-
ins var endanlega tryggur kl. fimm
um morguninn, þegar tilkynnt var
að kjördæmið Bolsover hefði svikið
lit og farið til íhaldsmanna, en sitj-
andi þingmaður kjördæmisins,
Dennis Skinner, hafði setið á þingi
fyrir Verkamannaflokkinn frá árinu
1970.
Flokkurinn beið því sitt versta af-
hroð frá árinu 1935 og endaði með
203 þingsæti, 42 færri en þegar kos-
ið var fyrir tveimur árum. Jeremy
Corbyn, leiðtogi flokksins, tilkynnti
um kvöldið að hann hygðist stíga til
hliðar, en Corbyn hugðist fyrst gefa
flokksmönnum tækifæri til þess að
íhuga hvað hefði farið úrskeiðis áður
en hann segði af sér.
Hófst leit að eftirmanni Corbyns
þegar á kosninganótt, en John
McDonnell, skuggafjármálaráð-
herra og hægri hönd Corbyns, til-
kynnti að hann myndi ekki sækjast
eftir leiðtogahlutverkinu, hvorki
varanlega né til bráðabirgða.
Vonbrigði fyrir Swinson
Frjálslyndir demókratar fóru
sömuleiðis illa út úr kosningunum,
en þeir höfðu gert sér vonir um góð-
an árangur þegar boðað var til
þeirra í síðasta mánuði. Jo Swinson,
leiðtogi flokksins, gerði út á harða
andstöðu við brexit-málið, og sýndu
kannanir fyrst um sinn nokkurn
stuðning við þann málflutning.
Hins vegar fjaraði hægt og bít-
andi undan flokknum eftir því sem
leið á baráttuna og endaði hann með
ellefu þingmenn, einu færri en
flokkurinn hlaut árið 2017.
Sárasti ósigur Frjálslyndra
demókrata kom í kjördæmi leiðtog-
ans sjálfs, en Swinson tapaði kjör-
dæmi sínu, East Dunbartonshire, til
Skoska þjóðarflokksins. Munaði að-
eins 149 atkvæðum á Swinson og
Amy Callaghan, frambjóðenda þjóð-
ernissinna.
Sigurinn á Swinson kórónaði gott
kvöld fyrir Skoska þjóðarflokkinn,
sem bætti við sig 13 sætum frá síð-
ustu kosningum og endaði með 48
þingmenn af þeim 59 sem Skotar fá.
Nicola Sturgeon, leiðtogi flokksins,
sagði úrslitin veita sér skýrt umboð
til þess að sækjast eftir annarri at-
kvæðagreiðslu fyrir Skota um sjálf-
stæði frá Bretlandi.
Óvíst þykir hins vegar hvort Bor-
is Johnson muni verða við þeirri bón
enda má einnig túlka úrslit kosning-
anna sem skýrt umboð til hans til
þess að stýra Bretlandi í gegnum
þann ólgusjó sem útgangan úr ESB
mun hafa í för með sér.
AFP
Stórsigur Boris Johnson snýr aftur í Downingstræti 10 eftir að drottningin bauð honum að mynda nýja ríkisstjórn.
1 7
Kosningar í Bretlandi 2019
Græningjar Sinn Féin
ÍhaldsflokkurinnFrjálslyndir dem.Verkamannafl.
Skoski þjóðar-
flokkurinn
Plaid Cymru,
Wales
DUP,
N-Írlandi
*Forseti þingsins, sem greiðir ekki atkvæði, meðtalinn
Aðrir flokkar á N-Írlandi
48
203*
4 3
365
8
650
þingmenn
11
Dómsmálanefnd
fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings
samþykkti í gær
að afgreiða til-
lögu um ákæru til
embættismissis á
hendur Donald
Trump Banda-
ríkjaforseta út úr
nefndinni.
Atkvæði í
nefndinni féllu alfarið eftir flokks-
línum, og studdu allir 23 demókratar
nefndarinnar ákærurnar en 17 repú-
blikanar lögðust gegn þeim. Full-
trúadeildin í heild sinni mun nú
greiða atkvæði um málið í næstu
viku.
Samkvæmt tillögu nefndarinnar
ber fulltrúadeildinni að ákæra
Trump fyrir tvö atriði, að hann hafi
annars vegar misbeitt valdi sínu með
því að skilyrða hernaðaraðstoð við
Úkraínu við þarlenda rannsókn á
pólitískum andstæðingum sínum, og
fyrir að hafa staðið í vegi réttvís-
innar með því að neita alfarið að að-
stoða við rannsókn nefndarinnar.
Talið er líklegt að tillagan verði
samþykkt í fulltrúadeildinni, þar
sem demókratar hafa traustan
meirihluta. Verði sú raunin fer málið
til öldungadeildarinnar, sem þá ber
samkvæmt stjórnarskrá að efna til
réttarhalda yfir Trump. Mitch
McConnell, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, sagði hins vegar í
gær að engar líkur væru á því að for-
setinn yrði sakfelldur, en 53 af 100
þingmönnum öldungadeildarinnar
eru repúblikanar.
Ákærur
afgreiddar
úr nefndinni
Donald
Trump
Fulltrúadeildin
kýs eftir helgi
Stjórnvöld í Tyrklandi kölluðu Dav-
id Satterfield, sendiherra Banda-
ríkjanna, á sinn fund í gær eftir að
öldungadeild Bandaríkjaþings stað-
festi í vikunni tillögu fulltrúadeild-
arinnar um að viðurkenna ofsóknir
Ottómana gegn Armenum árið
1915 sem þjóðarmorð. Varaði Sedat
Onal, aðstoðarutanríkisráðherra
Tyrklands, Satterfield við því að
samþykkt þingsins gæti skaðað
samskipti ríkjanna tveggja.
Talsmaður bandaríska sendi-
ráðsins í Ankara sagði hins vegar í
gær að ályktun þingsins hefði ekki
breytt afstöðu ríkisstjórnar Banda-
ríkjanna, sem hefur ekki viljað
ganga svo langt að kalla atburðina
þjóðarmorð.
Sendiherrann
kallaður á teppið
TYRKLAND