Morgunblaðið - 14.12.2019, Page 24

Morgunblaðið - 14.12.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ófremdar-ástand hef-ur ríkt víða um land vegna óveðursins, sem gekk yfir um miðja vikuna. Veðrið olli miklum usla og tjóni auk þess sem piltur lést í Sölva- dal í hamförunum og er það þyngra en tárum taki. Vitað var að óveðrið væri í vændum og almannavarnir voru vel undirbúnar fyrir atganginn. Tæplega fimm hundruð björg- unarsveitarmenn hafa tekið þátt í verkefnum undanfarna daga, að mestu á Norðvestur- og Norðausturlandi. Hins vegar var ekki búist við því að rafveitukerfið væri jafn berskjaldað og raun bar vitni og samskiptakerfi væru svo við- kvæm að heilu byggðarlögin gætu hreinlega misst allt sam- band við umheiminn, þannig að þau fengju hvorki fréttir né gætu kallað á hjálp. Sér- staklega er uggvekjandi að Tetra-kerfið, sem á að tryggja að hægt sé að hafa samskipti þegar annað bregst, hafi einnig dottið út. Í Morgunblaðinu og á mbl.is hefur undanfarna daga mátt lesa sláandi frásagnir af ástand- inu og hvernig verðmæti hafa farið forgörðum eða legið undir skemmdum. Ólafur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Ramma hf. í Fjallabyggð, lýsti því í Morgun- blaðinu í gær hvaða áhrif raf- magnsleysið hefði haft á vinnslu sjávarfangs og hvernig beðið væri milli vonar og ótta vegna ástands á rafmagnslausum frystiklefum þar sem geymd væru mörg hundruð milljóna króna verðmæti. Raforkukerfið hefði brugðist og allt legið niðri, frá hitaveitu til samskipta. Meira að segja Tetra-kerfið, sem ætti að tryggja örugg sam- skipti, hefði dottið út. „Þetta er algjörlega óþolandi ástand,“ segir Ólafur og er erfitt að mót- mæla því. Ekki voru aðeins verðmæti úr hafinu í húfi. Bændur lýstu því að mjaltavélar hefðu orðið óvirkar í rafmagnsleysinu og ekki hefði verið hægt að mjólka kýrnar með höndunum því að þær væru allsendis óvanar slík- um vinnubrögðum. Á mbl.is var rætt við Jóhann Birgi Magn- ússon og Guðnýju Helgu Björnsdóttur á Bessastöðum á Heggstaðanesi við Miðfjörð. Sögðu þau að tveggja daga raf- magnsleysi hefði haft talsverð áhrif. Þau hefðu þurft að hella niður 2.000 lítrum af mjólk og sæju fram á að nytin í kúnum myndi versna verulega til fram- búðar. Ekki er síður uggvekjandi að lesa viðtal í blaði gærdagsins við Aldísi Olgu Jóhannesdóttur, svæðisfulltrúa heil- brigðismála á Hvammstanga. Á sjúkrahúsinu fór rafmagnið af og engin aukarafstöð, hvorki hjá stofn- uninni, né sveitar- félaginu. Sjúkling- arnir voru því í myrkri, starfsmenn gengu um með höfuðljós, eldhúsið óvirkt og ekki hægt að ná í lækna vegna þess að samskipti lágu niðri. Hjálparsveitarmenn hjálpuðu mikið til og óku meðal annars starfsmönnum til og frá vinnu. Þannig var ástandið í tvo daga og í raun var mildi að ekk- ert alvarlegt skyldi gerast. Ástandið vegna óveðursins vekur margar spurningar. Aug- ljóst er að flutningskerfið fyrir raforku er vanbúið. Ugglaust eru ýmsar ástæður fyrir því að ekki hafi verið meira gert til þess að styrkja kerfið á undan- förnum árum. Síðustu daga hef- ur ítrekað verið nefnt að leyfis- veitingakerfið sé of þungt í vöfum. Atburðir vikunnar sýna að skilvirkni og öryggi rafveitu- kerfisins varðar einfaldlega þjóðaröryggi. Vissulega þurfa að vera öryggisventlar þegar kemur að leyfisveitingum og framkvæmdavaldið getur ekki haft frítt spil, en hins vegar er ótækt að hægt sé með endalaus- um áfrýjunum og kærum að tefja nauðsynlegar fram- kvæmdir svo árum skipti. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórn- arráðherra, kom inn á það í Morgunblaðinu í gær hvort ástæða væri til að gera breyt- ingar á lögum þannig að lands- skipulag hefði meiri völd þegar kæmi að meginleiðum, hvort heldur sem væri í samgöngum eða raflögnum, og nefndi um- ræðuna um veginn um Teigs- skóg og lagningu byggðarlínu fyrir norðan. Í fyrradag sagði Þórdís Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra, í Morgunblaðinu að sterkt raforkukerfi væri þjóð- þrifamál og ítrekaði mikilvægi þess að styrkja kerfið hið snar- asta í grein í Sunnudagsblaðinu, sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Þessi orð leiða hugann að hugmyndum um að stofna þjóð- arsjóð til að mæta ytri áföllum sem kynnu að dynja á ríkissjóði. Tjónið vegna óveðursins gæti hlaupið á milljörðum króna og mikið verk er framundan að bæta innviði. Það væri full ástæða til, þar til öryggi innviða er komið í viðunandi horf, að verja þeim fjármunum sem ætl- aðir eru í þjóðarsjóð fremur í uppbyggingu innviða og úrbóta á þeim veikleikum sem afhjúp- aðir voru í ofsaveðrinu í vik- unni. Rafmagnsleysi svo dögum skiptir og al- gert sambandsleysi vegna óveðursins í vikunni sýna að styrkja þarf innviði } Óviðunandi veikleikar M ér bregður alltaf í brún þegar Íslendingar slá sér á brjóst og fullyrða að við búum við „besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi“. Mér þykir þetta lýsa ótrúlegum hroka í garð annarra þjóða. Við er- um ekki þau einu sem búa við stjórnkerfi við fiskveiðar. Allar okkar nágrannaþjóðir gera það og mörgum gengur ágætlega. Við eigum ekki að tala niður til þeirra með þessum hætti. Við erum ekkert betri en annað fólk. Þegar kemur að fiskveiðum ættum við að sýna auðmýkt og hógværð og ástunda sjálfsgagnrýni, ekki síst í ljósi nýjustu fregna af „afrekum“ okkar manna í Afríku. Innihaldslaust gaspur um eigið ágæti mun ekki skila okkur neinu, heldur frekar færa okkur sofandi að feigðarósi. Ég hef verið að renna í gegnum skýrslur Hafrann- sóknastofnunar um ástand nytjastofna og finn fátt sem beinlínis er hægt að gleðjast yfir. Með hugtakinu „hrun- inn“ á ég við að veiðar úr viðkomandi stofn eru aðeins lítið brot af því sem áður var eða þær hafa hreinlega verið af- lagðar vegna þess að menn treysta sér ekki til að leyfa neinar veiðar úr þeim. Loðnustofninn: Hruninn. Allir rækjustofnar, bæði inn- fjarða og úthafs: Hrundir. Humarstofninn: Hruninn. Út- hafskarfi, efri stofn: Hruninn. Úthafskarfi, neðri stofn: Ár- leg veiði aðeins um einn fimmti þess sem var. Lúða: Hrunin. Hörpudiskur: Hruninn. Skötuselur: Hruninn. Hörpudiskur: Hruninn. Makríllinn virðist vera að tygja sig af Ís- landsmiðum. Einungis réttur helmingur makrílaflans í sumar veiddist innan íslenskrar lögsögu. Ýsustofninn virðist standa þokka- lega. Ekki verður annað sagt en brösuglega hafi gengið að byggja upp þorskveiðar hér við land. Eftir nálega 40 ára þrotlausa friðun er árlegur heildarafli úr þorskinum aðeins um helmingur þess sem hann var fyrir 1980. Eng- inn veit hvaða áhrif hrun loðnustofnsins mun hafa á vöxt og viðgang þorsksins. Á næstu dögum eru væntalegar niðurstöður úr haust- ralli Hafrannsóknastofnunar. Fróðlegt verður að lesa um þær. Heilt yfir þá er staðan alls ekki til þess að hrópa húrra yfir. Í ljósi þess hvernig til hefur tekist með fiskveiðistjórnunina eins og rakið er hér að of- an, þá hljóta það að teljast mikil öfugmæli að fullyrða að hún sé sú „besta í heimi“. Frekar er óhætt að segja að eitt- hvað mikið sé að og þörf á endurskoðun. Allan tímann frá því að núgildandi hugmyndafræði varðandi nýtingu Ís- landsmiða var í gadda slegin og nánast tekin upp sem ný ríkistrúarbrögð hefur því verið haldið fram að þetta myndi skila árangri. Ástandsskýrslur Hafrannsóknastofnunar sýna hins vegar svart á hvítu að það er ekki svo. Það er full ástæða til að efast um hvort við höfum með réttu gengið götuna til góðs. Hvernig væri nú að við tækjum alvöru um- ræðu um árangurinn af fiskveiðistjórnuninni? Inga Sæland Pistill Nokkur orð um fiskveiðistjórnun Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að auknu norrænusamstarfi í rannsóknum áloðnu og var slík samvinnaÍslendinga, Norðmanna og Grænlendinga rædd á fundi í Noregi nýlega. Birkir Bárðarson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnun, segir að á liðnum árum hafi talsverð sam- skipti verið á milli þessara aðila og gjarnan fundað einu sinni á ári. Nú sé til umræðu að fara sameiginlega í ýmis verkefni. „Það er margt sameiginlegt í vistkerfunum í Barentshafi og við Ísland og á báðum hafsvæðunum er loðnan í lægð,“ segir Birkir. „Í þess- um loðnustofnum er hugsanlega ein- hvers konar nýliðunarbrestur og ekki ómögulegt að sú hlýnun sem hefur orðið í sjónum síðustu ár hafi haft áhrif. Í Barentshafi hafa menn gleggri mynd af þessu því þar er far- ið árlega í seiðamælingar en síðan árið 2003 höfum við sparað okkur að fara í slíka leiðangra hér, því miður.“ Spurður hvort hugsanlegt sé að gengið hafi verið of nærri stofnunum með veiði segir Birkir að ekki séu vísbendingar um það. Á báðum haf- svæðum gangi ráðgjöfin út á að skilja nóg eftir til hrygningar og ráð- gjöf hafi verið fylgt mjög vel. Þorskurinn fái nóg að éta Í ár var ekki leyfilegt að veiða loðnu við Ísland og ekki hefur verið gefinn út kvóti fyrir næsta ár. Hér- lendis byggist gildandi aflaregla á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í mars 2020 með 95% lík- um. Tekur aflareglan tillit til óvissu- mats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk afráns þorsks, ýsu og ufsa á loðnu. Mikið vantaði upp á í mælingu í haust til að þessi viðmið næðust. Í Barentshafi eru rannsóknir og veiðistjórnun sameiginlega á forræði Norðmanna og Rússa. Heimilt var að veiða 205 þúsund tonn af loðnu í Barentshafi 2018, en hvorki á þessu ári né því næsta. Loðnustofninn í Noregi var lengi talinn sá stærsti í heimi, en sveiflur í stofnstærð hafa verið miklar síðustu 30 ár. Í Noregi er nálgunin við stjórn- un loðnuveiða þannig að lögð er áhersla á mikilvægi loðnunnar fyrir vistkerfið. Tryggja verði að þorsk- urinn fái nóg að éta og veiðar aðeins leyfðar á því sem verður umfram þegar þorskurinn hefur fengið sitt. Þorskstofninn hefur verið sterkur í Barentshafi undanfarin ár og síð- ustu 15 ár hefur mest verið leyft að veiða 360 þúsund tonn af loðnu, að því er fram kemur á heimasíðu norsku hafrannsóknastofnunar- innar. Í haust mældist veiðistofninn um 300 þúsund tonn, sem er langt undir viðmiðunarmörkum til að tryggt verði að 200 þúsund tonn komi til hrygningar næsta vor með 95% líkum. Norðmenn og Íslendingar hafa stundað rannsóknir á loðnu í ára- tugi, enda fiskurinn mikilvægur bæði fyrir vistkerfið í sjónum og efnahag þjóðanna. Grænlendingar hafa hins vegar verið að byggja upp sínar hafrannsóknir og hafa komið að loðnurannsóknum á síðustu árum. Þeir hafa m.a. leigt skip til loðnu- mælinga á hausti og hafa íslenskir rannsóknamenn verið um borð, að sögn Birkis. Þar sem er loðna, þar er líf Loðnan við Ísland hefur á síð- ustu árum leitað vestar en áður og í mælingum í haust mældist mest af ungloðnu á grænlenska land- grunninu. Það varð til þess að gefin var út upphafsráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár, vertíðina 2021, upp á tæplega 170 þúsund tonn. Sú ráðgjöf byggist á varúðarnálgun enda lang- ur tími fram að vertíð. Margir lifa á loðnunni, t.d. hvalir, selir og þorsk- fiskar og „þar sem er loðna, þar er líf“, segir Birkir. Loðnan í lægð í Bar- entshafi og við Ísland Ljósmynd/Svanhildur Egilsdóttir Birkir Bárðarson Við rannsóknir á loðnu um borð í Árna Friðrikssyni. Ráðgert er að farið verði í hefð- bundinn leiðangur til að mæla út- breiðslu og magn loðnu um miðj- an janúar. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur þá til mælinga og tvö veiðiskip á sama tíma, en ekki er ákveðið hvaða skip það verða. Áhersla verður lögð á mæl- ingar á landgrunnsbrúninni norð- vestan, norðan og norðaustan við land. Tæki í fjórum uppsjávarskipum hafa verið kvörðuð, Aðalsteini Jónssyni SU, Berki NK, Bjarna Ólafssyni AK og grænlenska skip- inu Polar Amaroq. Með kvörðun er farið yfir næmi bergmálsmæla og þeir stilltir til að hægt sé að ná marktækri magnmælingu og í samræmi við það sem er um borð í rannsóknaskipinu. Til skoðunar var að eitt veiðiskip færi í vöktun á svæðinu fyrir norðan land núna um miðjan desember en af því verður ekki. Í fyrra fór Heimaey VE í slíkan leiðangur. Aðspurður hvort Hafrann- sóknastofnun hafi fengið ein- hverjar fréttir af loðnu úti fyrir Vestfjörðum síðustu daga segir hann að slíkt sé árvisst á þessum árstíma. Einhver slæðingur sé á ferðinni, en engar stórfréttir. Leiðangur um miðjan janúar RANNSÓKNIR Á LOÐNU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.