Morgunblaðið - 14.12.2019, Síða 38

Morgunblaðið - 14.12.2019, Síða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 ✝ KristinnBjarnason fæddist í Reykjavík 9. október 1948 og lést á Landspítala Fossvogi gjör- gæsludeild 26. nóv- ember 2019. For- eldrar hans voru Bjarni Henriksson málari og listmál- ari, f. 9. maí 1927 á Höfn Hornafirði, d. 29. sept 1989, og Hjördís Guð- mundsdóttir, verka- og versl- unarkona, f. 20. febrúar 1929 í Reykjavík, síðar búsett í Dan- mörku, d. 9. nóv. 2012. Systkini Kristins í móðurætt eru: Helga Jenný Guðnadóttir, f. 6. ágúst 1954, Ólöf G. Leifs- dóttir Christensen, f. 10. júlí 1961, og Ari G. Leifsson, f. 20. júlí 1962. Í föðurætt: Henrik, f. 1. apríl 1954, Friðrik, f. 9. apr- íl 1955, Ingibjörg, f. 24 júní 1956, Brynhildur, f. 14. mars 1963, d. 16. des. 1965, Bryn- hildur, f. 11. febrúar 1966, d. 17. febrúar 1971, Valgerður, f. 28. mars 1967, og Fanný Rósa, f. 25. júlí 1974. Kristinn kvæntist hinn 25. desember 1973 Sveinfríði Sig- urpálsdóttur hjúkrunarfræð- ingi MS, f. 4. ágúst 1948 í Mól- ömmu og afa. Hann lauk námi í Iðnskólanum við múrverk 1963 til 1967 og lærði prent- verk 1967 til 1971 hjá Alþýðu- blaðinu og vann þar sem setj- ari. Hann stundaði sjóinn sem háseti á togurum frá Reykja- vík og lauk 80 tonna réttindum á bátum 1987 og skipstjórn- arprófi 1. stigi frá Stýrimanna- skólanum 1988. Var víða á bát- um og á Blönduósi sem háseti og stýrimaður með hléum um árabil. Starfaði á Blönduósi við sjúkrahúsið, múrverk, hús- byggingar og bílaviðgerðir og við vélaverkstæðið Árvirkni. Kristinn sótti fjölda tölvu- námskeiða, m.a. við Tölvuskóla Reykjavíkur, og nam í þrjár annir tölvunarfræði í Háskól- anum í Reykjavík. Hann sinnti almennri tölvuþjónustu við fyrirtæki og stofnanir og að- stoðaði við tölvur á Blönduósi og víðar jafnhliða öðrum störf- um. Var mjög laginn við tölv- ur, sem voru hans áhugamál. Kristinn var í Kiwanisklúbbn- um Borgum á Blönduósi og síðar gekk hann til liðs við Lionsklúbbinn Víðarr í Reykja- vík, smíðaði heimasíðu þeirra og var með umsjón hennar al- farið síðustu ár sín. Var hann heiðraður með skildi fyrir vik- ið. Útför Kristins fer fram frá Blönduóskirkju í dag, 14. des- ember 2019, klukkan 13. andi, Hauganesi. Foreldrar hennar voru Sigurpáll Sigurðsson og Halldóra Guð- mundsdóttir, bú- sett í Mólandi. Börn Kristins eru: Barn hans: 1) Dagný Hrönn, f. 29. júní 1969. Dætur hennar: Bryndís, f. 18. febrúar 1989, og tvö langafa- börn og Bergdís, f. 15. júní 1998. Börn þeirra Sveinfríðar: 2) María Ingibjörg, f. 10. apríl 1973, búsett í Hafnarfirði, börn hennar: Kristinn Hrann- ar, f. 23. júní 1991, Bjartmar Freyr, f. 23. nóvebmber 1994, og Guðrún Alma, f. 30. maí 2001. 3) Dagur Bjarni, f. 20. septe,ber 1978, búsettur í Reykjavík, barn hans Krista Nótt, f. 20. júlí 2006. Barna- börnin eru sex og tvö langafa- börn. Kristinn og Sveinfríður fluttust á Blönduós 1973 með unga dóttur sína og byggðu sér hús í Brekkubyggð 11 þar sem hann átti heima síðan. Kristinn ólst upp í Reykja- vík á Barónsstígnum og í Hlíð- unum hjá móður sinni og Elsku hjartans pabbi minn er fallinn frá, fluttur eitthvað ann- að, á stilltu fallegu vetrarkvöldi. Ég var ekki tilbúin að missa þennan yndislega pabba og besta vin en sennilega er maður aldrei tilbúinn í það verkefni. Við töl- uðum saman á hverjum degi og stundum oft á dag, um alla heima og geima og alltaf var pabbi tilbúinn í að spjalla og hlusta á mann og leysti lífsins verkefni með mér. Aðeins í símtalsfjar- lægð norður yfir heiðar var pabbi minn á línunni með kaffi- bollann og jákvæðnina við hönd enda voru verkefnin til að leysa þau, ekki til að sýta þau. Hann vissi svo margt og fyrir mér gat hann allt enda einstaklega lausnamiðaður og handlaginn og klár kall. Hann gerði alla við- burði fyrir okkur glæsilega, hvort sem það voru jól eða páskar, afmæli eða bara sunnu- dagsmorgunkaffið, heit rúnn- stykki og gúmmelaði úr bakarí- inu, og vissi allt hvað hver vildi þaðan. Hann var listakokkur og fátt vafðist fyrir honum í eldhús- inu, hvort sem það var elda- mennskan eða baksturinn eða kaffibollinn og spjall því allt mátti leysa með kaffibollanum. Þær eru ófáar afmælishnallþór- urnar sem hann bakaði fyrir okkur öll í allskonar formum, hvort sem það var fótboltavöllur, prinsessukökur eða sveitabær, því vippaði hann upp með glæsi- brag. Pabbi minn var líka ætíð mikill höfðingi heim að sækja og alltaf til nóg af mat og með kaffinu. Hann var einstaklega góður afi og fátt var ekki gert með barnabörnunum. Hann bar mikla væntumþykju til þeirra og sinnti þeim að alúð. Það var mik- ið brasað í afa- og ömmuhúsi og bílskúrinn var engin undantekn- ing. Hann var mjög liðtækur í því að hafa til spýtur og nagla og hamra og það sem börn vilja brasa þar, og hafði þau með sér í allskonar verkefnum sem mikið var lært af. Þar voru óteljandi verkefni leyst, hvort sem átti að smíða báta, bíla, kofa eða bara krossa fyrir dýrin þegar þau féllu frá. Frystikistan var alltaf full af ís enda átti að verðlauna börnin með ís, helst í hvert mál, fyrir allt gott sem þau gerðu og fyrir allar sorgir líka. Þeirra er missirinn mikill, að þessum frá- bæra afa Kidda sem var svo stoltur af þeim öllum með tölu og fylgdist svo vel með. Hann var mjög duglegur að keyra hingað til okkar í höfuðborgina og sinna okkur krökkunum, fara með okk- ur á allskonar viðburði, í bíó, leikhús, á tónleika og kaffihús og alltaf var hann tilbúinn að skutl- ast suður ef það var eitthvað sem þarfnaðist viðveru hans. Ég á eftir að sakna pabba míns lengi og vel og sennilega alla ævi en mikið er ég þakklát fyrir að hafa átt hann að, fyrir tímann okkar saman, hef lært svo mikið af honum og oft tekið hann mér til fyrirmyndar. Hann var okkur svo kær og svo mikill klettur í okkar lífi, sinnti okkur svo vel, kenndi okkur svo mikið, nærvera hans var svo mikilvæg og einhvern veginn var allt yf- irstíganlegt með hann sér við hlið. Já, pabbi, ég skal láta stelp- urnar klæða sig vel og, já, ég skal gefa öllum krökkunum ís við öll tækifæri. Elska þig, pabbi minn, og takk fyrir allt og allt. Þín dóttir, María Ingibjörg Kristinsdóttir. Afi minn hann Kiddi afi var besti afi í öllum heiminum. Hann fékk alltaf fólk til að hlæja og all- ir voru alltaf glaðir í kringum hann. Afi var besti vinur minn og langbesti afi í öllum heiminum. Alltaf að passa upp á okkur og fylgdist vel með öllu sem við gerðum. Hann verður alltaf í hjarta mínu. Hvíldu í friði, elsku afi minn, og þakka þér fyrir að vera besti afinn. Manstu afi þegar við stóðum á bryggjunni og þú hélst ákveðið í hönd mína? Þú sagðir sögu og saman horfðum við á eyju vonar og kærleiks. Manstu afi þegar þú brostir svo hlýlega og stoltur á börnin þín? Myrkt herbergið varð uppljómað af ánægju og ilmur blómanna varð sterkari. En nú kveð ég þig með tár í augum og bros í hjarta. Því ég man! (Eðvald Einar Stefánsson) Þín afastelpa, Krista Nótt Dagsdóttir. Elsku afi minn, ég elska þig mjög heitt og þú átt alltaf stað í hjarta mínu. Ég mun sakna þín endalaust. Þú varst svo góður afi og minn besti vinur. Ég leit mik- ið upp til þín og þú varst alltaf til í að hjálpa mér við hvað sem var, stórt sem smátt. Í hvert sinn sem ég kom til ykkar ömmu á Blönduós fannst mér eins og ég væri komin heim því húsið ykkar ömmu er eins og mitt annað heimili. Ég vona þér líði vel núna og ég mun hugsa til þín alla daga og allar nætur. Takk fyrir allt, elsku afi, minning þín lifir í hjarta mínu. Þín afastelpa. Guðrún Alma Atladóttir Elsku afi minn, þú varst mér svo margt og jafnvel allt, svo mikil fyrirmynd fyrir mig sem sjómann og skipstjóra, algjör nagli alltaf. Alveg eins og þú varst, þá feta ég í fótspor þín sem skipstjóri og ég er svo stolt- ur af því og þú átt svo mikinn part af mér þar. Ég þakka þér fyrir fyrir alla hjálpina í gegnum Stýrimannaskólann, öll símtölin á sjónum um aflatölur og veiði- skap, allar minningarnar sem þú bjóst til með mér, öll yndislegu sumrin sem við krakkarnir nut- um hjá þér á Brekkubyggðinni, alla visku og gleði sem þú veittir okkur fjölskyldunni og ég mun sakna þín að eilífu, elsku afi minn. Hvíldu í friði og við sjáumst aftur við tækifæri. Þinn afastrákur, Kristinn Hrannar Hjaltason. Lionsklúbburinn Víðarr í Reykjavík hefur starfað í nær 35 ár og er hann einn fjölmargra klúbba sem starfa á þeim vett- vangi. Lionsstarfið felst fyrst og fremst í því að þjóna – leggja lið þeim málefnum sem eru til góða fyrir land og lýð. Allt starf er unnið í sjálfboðavinnu og ágóði rennur til hinna ýmsu verkefna. Til að svo geti orðið þarf góða klúbbfélaga sem eru tilbúnir að fórna tíma sínum í þágu annarra en fá í staðinn að njóta samvista í traustum félagsskap. Kristinn Bjarnason, sem hér er kvaddur, var einn af þessum góðu traustu félögum og var árið 2017 gerður að Melvin Jones-fé- laga, sem er æðsta viðurkenning klúbbfélaga. Þótt hann væri bú- settur á Blönduósi lét hann ekki fjarlægðina frá höfuðborginni aftra því að hann gengi í okkar raðir. Þótt langt væri að fara mætti hann samviskusamlega á fundi nema í þeim tilvikum þegar Holtavörðuheiðin var ófær; bætti þá mætinguna upp með annarri vinnu í þágu klúbbsins. Kristinn var frumkvöðull að heimasíðu Víðarrs; hannaði síðuna og að sjálfsögðu kjörinn til að annast hana – afla efnis, skrá það og halda síðunni við en allir sem til þeirra verka kunna vita að það er ærið starf. Þetta fórst Kristni vel úr hendi. Fyrir vikið eru til- tækar flestar fundargerðir klúbbsins frá upphafi og mikill fjöldi mynda, bæði frá hinum ýmsu fundum og atburðum sem klúbburinn hefur staðið að. Fyrir þetta verk allt þakkar klúbbur- inn sérstaklega. Lkl Víðarr hefur ætíð verið með fjölmennari Lionsklúbbum landsins. Lögð hefur verið áhersla á vináttu félaga á milli; gleði ríkt á fundum og í öðrum þeim fjölbreyttu verkefnum sem klúbburinn hefur tekið sér fyrir hendur. Við leggjum einnig áherslu á að viðhalda fjölda klúbbfélaga og bjóða gestum að kynnast starfi hans. Kristinn tók virkan þátt í því – hefur mætt með tvo til þrjá gesti, svo og á Víðarrsblótið sem er helsta fjár- öflunarverkefni Víðarrs. Við fé- lagarnir fundum og höfum fengið það staðfest að Kristinn var stoltur af sínum Lionsklúbbi og mikið mátum við allt hans starf. Kallið kom snöggt og allt of fljótt, en þannig er gangur lífs- ins. Lkl. Víðarr saknar góðs og trausts félaga og þakkar allar góðar samverustundir. Mestur er missir eiginkonu Kristins, Sveinfríðar Sigurpálsdóttur, barna þeirra og annarra ástvina sem klúbburinn sendir sínar ein- lægustu samúðarkveðjur. Farðu vel kæri vinur – friður Guðs þig blessi. Fyrir hönd klúbbfélaga, Níels Árni Lund. Kristinn Bjarnason Sálm. 10.14 biblian.is Þú gefur gaum að mæðu og böli og tekur það í hönd þér. Hinn bágstaddi felur þér málefni sitt, þér sem hjálpar munaðarlausum. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför okkar ástkæra föður, afa og langafa, ÓLAFS TH ÓLAFSSONAR myndlistarmanns og kennara, áður til heimilis á Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Áss í Hveragerði fyrir góða umönnun. Elín Vigdís Ólafsdóttir Hrund Ólafsdóttir Bragi Ólafsson Sigrún Sól Ólafsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar okkar ástkæru SIGURLAUGAR SVANHILDAR ZOPHONÍASDÓTTUR, Kópavogsbraut 1a. Anna Soffía Gunnarsdóttir Ólafur Kvaran Guðný Gunnarsdóttir Friðþjófur K. Eyjólfssson Guðrún Gunnarsdóttir Valþór Hlöðversson Emilía María Gunnarsdóttir Eyjólfur Guðmundsson Hákon Gunnarsson Björn Gunnarsson Elísabet Kvaran barnabörn og barnabarnabörn Hugheilar þakkir til allra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og útfarar okkar elskulega, eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, ÓLAFS HELGASONAR, Borgarnesi. Sigríður Karlsdóttir Gunnfríður, Ingi Rúnar Elfar Már, Erla Katrín Styrmir Már, Bessý Berglind Ólöf og barnabörn Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ERLINGS LOFTSSONAR bónda, Sandlæk, Gnúpverjahreppi, sem lést á Landspítalanum, Fossvogi, 26. október. Elín Erlingsdóttir Bjarni Jón Matthíasson Valgerður Erlingsdóttir Brian R. Haroldsson Loftur Erlingsson Helga Kolbeinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.