Morgunblaðið - 14.12.2019, Page 54

Morgunblaðið - 14.12.2019, Page 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2019 Celestial, en Halford leiðir sem kunnugt er þungarokksguðina í Judas Priest. Platan kemur út í kjölfar Winter Songs, sem hann gaf út fyrir tíu árum. Hafið það í öllu falli gott um hátíðirnar, kæru les- endur, og fyllið húsið af mannbæt- andi ljúflingstónum. Ekki má gleyma Paul Og í allra allra síðasta lagi. Þegar blaðið var að fara í prentun, eða svo gott sem, bárust fréttir frá Bretlandi þess efnis að Paul McCartney hefði tilkynnt jólaplötu, nokkurs konar leynijólaplötu. Í við- tali við BBC sagði hann frá því að hann ætti heila þannig plötu, en hún væri hins vegar aðeins dregin fram á jólunum fyrir nánustu fjöl- skyldu. Hann bætti því svo við að hann myndi aldrei gefa hana út á almennum markaði, þó að börnin Robbie rokkar inn jólin Jóla hvað? Efri röð frá vinstri: Jólaplötur Los Lobos, Kate Rusby, Robs Halfords og Molly Burch. Arnar Eggert tekur þær til kostanna. og barnabörnin væru hrifin af því hvernig hann nálgaðist sígilda jóla- sálma. Þess má líka geta að fyrr- verandi hljómsveit hans, Bítlarnir, tók líka upp jólalög en dreifði ein- göngu í gegnum aðdáendaklúbbinn sinn á sjöunda áratugnum. Vonandi verðum við bænheyrð á komandi jólum, því að þetta efni væri ansi gott í skóinn, verður að segjast. »Ef þú ert með gottlag eða plötu í þess- um flokki ertu í nokkuð góðum málum launalega um ófyrirséða tíð og því ekki nema von að marg- ir freisti þess að henda í eins og eina jólaplötu. Á hverju ári koma út nýjar jólaplötur sem bætast við þennan undirfurðulega geira dægurtónlistarinnar. Höfundur rekur hér nokkra kostagripi. Jólastrákur Robbie Williams á umslagi jólaplötu sinnar. AFP Jólabítl? Paul McCartney sagði í viðtali við BBC að hann ætti heila jóla- plötu sem væri aðeins dregin fram á jólunum fyrir nánustu fjölskyldu. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Er jólatónlist sérstakur geiri undir dægurtónlistinni? Nei, eiginlega ekki. En samt. Hér erum við með tónlist sem er aldrei spiluð nema einu sinni á ári, í u.þ.b. mánuð, og þá er spilað mikið af henni. Mikið, mikið. Ef þú ert með gott lag eða plötu í þessum flokki ertu í nokkuð góðum málum launalega um ófyr- irséða tíð og því ekki nema von að margir freisti þess að henda í eins og eina jólaplötu. Það er mismikið um endurnýj- un og árið í ár er ekkert sérstak- lega fengsælt, slæðingur af nýju efni mætti segja. Umfangsmesta útgáfan þetta árið er hiklaust plata Robbies Williams, The Christmas Present. Þetta er um margt dálítið merkileg útgáfa. Williams, sem er vanur því að vera „stór“ popp- stjarna, sagði í gríni að það þyrfti að taka krúnuna frá hinum kana- díska Michael Bublé en plata hans Christmas (2011) er með mest seldu jólaplötum frá upphafi. Willi- ams, og þetta er eitthvað svo dæmi- gert fyrir hann, neitar þó að feta troðna stíga og býður okkur upp á tvöfalda, 24 laga plötu. Þar sem flest lögin eru frumsamin! Og það merkilega er; hann kemst upp með þetta. Frumsömdu lögunum er öll- um snúið inn í hæfilega jólalegan gír og mörg þeirra hljóma þegar eins og „klassísk“ jólalög. Þau eru vel samin; gráglettin, falleg, stuð- væn, flippuð, væmin og allt þar á milli. Nógu jólaleg, nógu grípandi og alltaf fyllt þessum prakkara- sjarma sem er helsta vopn Willi- ams. Hann fer stundum langt yfir strikið, hvort heldur í tilfinninga- vellu eða misráðnum töffarastæl- um, en kemst samt upp með það allt saman. Óknyttastráks-orðspor- ið er svo undirstrikað enn frekar með vel útfærðu umslagi, þar sem Skröggs-ára hangir yfir. Mektarsveitin Los Lobos var með fyrstu listamönnum til að til- kynna jólaplötu í ár. Llegó Navidad er einstaklega … ójólaleg, hljómar meira eins og frábær Los Lobos- plata. Ég er svona enn að klóra mér í hausnum yfir þessu, en plat- an endar þó á slagaranum „Feliz Navidad“. Þess má geta að hinn mikli gítarleikari sveitarinnar, David Hidalgo, lék inn á jólaplötu Bobs Dylans, Christmas in the Heart, sem er ein besta jólaplata sem gerð hefur verið (sjá arnar- eggert.is um það mál). Í þjóðlagageiranum breska koma oft fín tillegg. Á síðustu ár- um hafa Cara Dillon og Emily Smith t.d. átt algerlega frábær verk. Kate Rusby hin enska hefur gefið út nokkrar jólaplötur hin síð- ustu ár og snarar nú út sinni fimmtu, Holly Head. Nýbylgju- popparar og -rokkarar hafa líka verið duglegir að skreyta sig með jólakúlum í gegnum tíðina og ég bendi áhugasömum á framúrskar- andi plötur með Low, Bright Eyes og Mark Kozelek. Austin-mærin Molly Burch gaf út skemmtilega jólaplötu í ár, sem er í senn hátíð- leg og svöl. Josh Rouse á einnig slíka plötu. Ávallt koma líka út plötur sem fá mann til að klóra sér mjög harkalega í kollinum, þetta með Los Lobos er barnaleikur í saman- burði við jólaplötu Robs Halfords, Ljóðmælandi tengir tilverufiska og mannkyns samaná afhjúpandi hátt í Svart-uggum. Fiskar eru ekki lengur fiskar heldur einhvers konar táknmyndir fyrir tilveruna sem mannkynið lifir í og er veruleiki þeirra bæði raunverulegur og tilbú- inn. Fiskarnir eru staddir í ljóðunum til þess að útskýra hinn jarðneska dvalarstað betur. Ljóðmælandi ber saman hegðun fiska og mannkyns á sama tíma og hann gagnrýnir hegðun síðarnefndu dýrategundarinnar eins og í ljóðinu „Sjálfsmynd fiska“. Í hugum fiska hugsun undirniðri Er sjálfsmyndin enginn vafi fiskar eru fiskar og þurfa ekki stéttaskiptingu grímur eða tilbúið stjórnmálasjálf til að fela minnimáttarkenndina kannski eru fiskar okkur framar í þroska Ljóðin eru misgóð, sum þeirra framúrskarandi en önnur virðast varla gerð til að heilla. Ljóðin verða betri eftir því sem líður á bókina, sem lýkur því í raun á stórgóðan hátt og skilur lesandann eftir saddan með hugmyndafræðilega fiska í kolli og vömb. Vísanir í bókinni eru alltumlykj- andi, þá sérstaklega augljósar vís- anir í fræði um fiska, en vísunum í sagnfræði og íslenskan skáldskap er einnig sáldrað yfir ljóðin eins og salti, rétt til að bragðbæta örlítið. Svartuggar er sjöunda ljóðabók Gísla Þórs Ólafs- sonar en vinkillinn í henni er for- vitnilegur og ferskur. Höf- undur fjallar um gamalkunnug við- fangsefni ljóðlist- arinnar, mannlega tilveru, þung- lyndi og samtímann, í dulbúningi viðfangsefnis sem ljóðlistin þekkir verr, nema þá sem tákn fyrir kristni. Í dulbúningi hryggdýra sem lifa í vatni, fiska sem uppfullir eru af köldu blóði. Höfundi tekst vel upp í þessari sérkennilegu vegferð sinni en hún hefur áhrif á lesandann, stuð- ar hann örlítið og vekur athygli hans. Ljóðskáld Gísli Þór Ólafsson. Mannleg tilvera í líki fiska Ljóð Svartuggar bbbmn Eftir Gísla Þór Ólafsson. gu/gí gefur út, 2019. Kilja, 57 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Síðustu tónleikar ársins í röðinni Á ljúfum nótum verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík í dag kl. 11.30. Flutt verða gömul, bandarísk jóla- lög. Flytjendur verða söngkon- urnar Ragnhild- ur Þórhallsdóttir, Lilja Eggerts- dóttir og Ólöf G. Sigurðardóttir, píanóleikarinn Aðalheiður Þor- steinsdóttir, Jón Rafnsson kontra- bassaleikari og Erik Qvick trommu- leikari. Ljúfar jólanótur Ragnhildur Þórhallsdóttir Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '*-�-��,�rKu�, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali Hugarró á að- ventu er yfir- skrift tónleika sem haldnir verða í dag kl. 16 í Glerárkirkju á Akureyri og á morgun í Árbæj- arkirkju í Reykjavík. Mar- grét Árnadóttir söngkona mun flytja róleg og falleg bænalög úr ýmsum áttum í bland við hugljúf jólalög. Kristján Edelstein og Dani- ele Basini leika á gítar og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir á selló. Ágóði rennur til Pieta á Akureyri. Hugarró á aðventu Margrét Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.