Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.02.2020, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 08.02.2020, Qupperneq 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103, Anton Sveinn segist hafa lært að hann sé svo miklu meira en íþróttin sem hann iðkar og er því hættur að taka því inn á sig ef illa gengur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ég ræð ekki hversu hratt aðrir synda né í hvaða sætum þeir lenda. Ég ræð bara hversu hratt ég syndi. Þar liggja mín markmið og ég hef mjög háleit markmið um að standa mig vel. Ég mun ekkert gefa eftir. Framhald af forsíðu ➛ hugsa til baka og ylja sér við minn- ingarnar þegar maður tók þátt í sundsýningum til að sýna mömmu og pabba hvað maður hafði lært í sundi en klessti á bakkann og línuna en hafði stórgaman af því öllu í stað þess að stressa sig yfir tímatökum eða tæknimistökum,“ segir Anton, sem æfði líka fótbolta, frjálsar íþróttir og tafl á upp- vaxtarárunum. „Ég var í öllu sem mér þótti skemmtilegt en sundið varð alltaf ofan á. Pabbi, sem var mikið í frjálsum á sínum tíma, hefur alltaf hvatt mig til að vera í íþróttum. Ég hef keppnisskapið frá bæði honum og mömmu og það er hart tekist á þegar spilað er heima og ekkert gefið eftir, hvort sem það eru borðspil eða Hornafjarðar- Manni,“ segir Anton, sem nýtur hverrar stundar í faðmi foreldra sinna og tveggja systkina þegar hann kemur heim til Íslands. „Ég sakna fjölskyldunnar mikið þegar ég er úti og hún mun alltaf kalla á mig heim. Við njótum þess að vera saman og ég reyni að vera eins mikið með mínum nánustu og ég get. Það hefur fengið meira vægi með auknum aldri og þroska: maður áttar sig á hvað er mikil- vægast í lífinu.“ Fékk upp í kok af sundinu Anton Sveinn býr nú í Bandaríkjun um þar sem hann undirbýr sig fyrir þátttöku í Ólympíuleikunum en enn sem komið er er hann eini Íslendingur- inn sem kominn er með þátttöku- rétt á leikunum sem fara fram í Tókýó í sumar. „Sundferillinn hefur verið eins og annað í lífinu, maður tekur eitt skref í einu. Mér fannst ég taka risavaxið skref þegar ég varð aldursflokkameistari í fyrsta sinn og enn stærra skref þegar ég varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn. Svo setur maður markið hærra og þegar ég fór að æfa með Jackie Pellerin, þáver andi yfirþjálfara í Ægi, hvatti hann mig til að setja mér háleit markmið því þá ætti ég möguleika á að komast á Ólympíu- leikana. Mér fannst það ekki endi- lega raunhæft en það er magnað hvað getur gerst þegar maður setur traust sitt á aðra og treystir því að útkoman verði góð. Ég hafði tvö tímabil til að æfa mig og trúði ekki að ég ætti möguleika því þetta var langsótt þegar maður skoðar tímana mína á þessum tíma. En sem betur fer urðu góðar bætingar og ég náði á mína fyrstu Ólympíu- leika árið 2012. Það gaf mér sjálfs- traust og ég fann að ég var á réttum stað,“ segir Anton Sveinn. Hann segist þakklátur fyrir tækifærin sem honum hafa hlotnast í gegnum sundið. „Ég var heppinn að fá skólastyrk til náms við háskólann í Alabama, sem er mjög góður sundskóli. Þar lærði ég upp lýsingatæknifræði og eftir útskrift réði ég mig til starfa við fyrirtækja ráðgjöf á tæknisviði Ernst &Young í Boston. Það var áhugaverð reynsla og gaf mér góða innsýn í bandaríska vinnumark- aðinn, sem er á svo miklu stærri skala en hér heima, og vikulega var flogið með mann í verkefni með stórum ráðgjafarteymum víðs vegar um Bandaríkin,“ upplýsir Anton Sveinn, sem eftir sjö mánuði í starfi upplifði mikla togstreitu gagnvart sundinu. „Þessi tími reyndi mikið á til- finninga- og sálarlíf mitt. Ég hafði árin á undan æft og keppt fyrir háskólaliðið, þar sem var mikil pressa að ná sem bestum árangri fyrir liðið, en smám saman týndi ég ástinni á sundinu og var síð asta árið óhamingjusamur í sundinu og kominn með upp í kok af því. Ég taldi mig því tilbúinn til að hætta í sundinu, en það liðu ekki nema sjö mánuðir þangað til mig var farið að kitla að byrja aftur,“ segir Anton Sveinn, sem eftir tvö ár í starfi hjá Ernst & Young ákvað að gefa upp vinnudrauminn í bili og eltast við sunddrauminn. Einblínir á hamingjuna Eftir sjö mánaða sundpásu ákvað Anton Sveinn að hefja sundæfing- ar að nýju en nú fyrir sjálfan sig. „Undir eins fann ég hvernig ég virki lega naut þess að æfa og keppa á svona háu sviði. Ég vann langa vinnudaga sem voru ekki til þess gerðir að ná hámarksárangri í íþróttum en samt bætti ég mig meira og komst inn á Ólympíu- leikana. Það þótti mér óraun- hæft í byrjun en með þessum nýju áherslum; að hafa gaman af sundinu, njóta þess að synda og líta á það sem forréttindi, hefur árangurinn fylgt í kjölfarið. Árangur sem fylgir því að einblína á hamingju, ánægju og það að hafa gaman af í stað þess að einblína á það eitt að ná góðum árangri og að þá komi hamingjan. Ég er að átta mig á þessu frekar seint á sund- ferlinum en ég er mjög glaður að geta horft á þetta svona í dag,“ segir Anton Sveinn. Hann varð 26 ára í desember. „Fyrir tíu, fimmtán árum hefði ég þótt orðinn gamall en þetta hefur breyst mikið á undanförnum árum og sundmenn sem keppa á stórmótum í dag og ná þar sínum besta árangri eru að verða æ eldri. Þetta snýst ekki um aldur heldur hvenær maður er í sínu besta líkamsformi og ég hef aldrei verið í betra líkamsformi en nú. Ég veit að ég á helling inni í bankanum og er spenntur að taka það út,“ segir Anton Sveinn, sem gerir sér vonir um að ná eins langt og hann kemst á Ólympíuleikunum. „Um leið og maður fer að setja sér markmið um að ná ákveðnum sætum setur maður markmiðin í hendur annarra. Ég ræð ekki hversu hratt aðrir synda né í hvaða sætum þeir lenda. Ég ræð bara hversu hratt ég mun synda, þar liggja mín markmið og ég hef mjög háleit markmið um að standa mig vel. Svo verðum við bara að sjá hversu langt þau munu fleyta mér þegar kemur að því að keppa. Ólympíuleikarnir eru stærsta íþróttakeppni heims, sam keppnin þar er gífurlega hörð og ekkert er gefið eftir og það mun ég ekki heldur gera,“ segir Anton Sveinn, hvergi banginn að takast á við þá bestu. „Í gamla daga leið mér þannig að ég hefði engan séns í að keppa við þessa risa en viðhorfsbreytingin sem hefur orðið hjá mér í sundinu hefur breytt þessu. Ég lít svo á að ég sé að keppa á móti sjálfum mér og hef gaman af. Það eru auð- vitað forréttindi að keppa á móti bestu sundmönnum heims og ég mun virkilega njóta þess að fá að taka þátt. Af öllum þeim mótum sem ég hef farið á man ég aldrei eftir tímunum sem ég synti á eða í hvaða sæti ég lenti; ég man bara hvað var gaman á mótinu. Þetta viðhorf tekur af mér alla pressu, lætur mig synda mitt sund og njóta þess í botn því um leið og athyglin fer á einhvern annan getur virki- lega eitthvað farið úrskeiðis,“ segir Anton Sveinn. Hann er stoltur af því að synda fyrir Íslands hönd. „Ég vil vitaskuld ná eins langt og ég mögulega get fyrir þjóð mína. Það eru forréttindi að vera sendiboði Íslands og draumurinn að geta sungið þjóðsönginn á verð- launapöllunum.“ Mikilvægast að hafa gaman Anton Sveinn hefur lítinn tíma fyrir önnur áhugamál en sundið. Hann býr nú í Blacksburg á háskólasvæðinu við Virginia Tech- háskólann þar sem sundþjálfarinn hans æfir skólaliðið og nokkra atvinnusundmenn. „Ég æfi ellefu sinnum í viku, þar af átta til níu sinnum í lauginni og svo lyftingar þrisvar í viku. Eftir að ég tók það skref að helga líf mitt sundinu hef ég áttað mig á hversu gífurlega mikilvægur andlegi hlut- inn er og endurheimt. Þetta snýst ekki bara um tímann sem eytt er í lauginni heldur líka hvernig maður notar tímann þegar maður er ekki í lauginni. Að maður undirbúi sig andlega, sé alltaf tilbúinn í næstu æfingu, gefi sig 100 prósent, auki gæðin á hverri æfingu og endur- hlaðist. Allt er það stærra batterí en ég gerði mér grein fyrir áður en ég fór út í það,“ segir Anton Sveinn, sem sinnir andlegu hliðinni hjá íþróttasálfræðingnum Hafrúnu Kristjánsdóttur. „Hafrún hefur kennt mér mikið á lífið og hvernig ég á að haga mér í þess um aðstæðum. Það er skemmtilegt lærdómsferli.“ Fyrirmynd Antons Sveins í sundinu var Örn Arnarson í gamla daga en nú er það þjálfarinn hans, Spánverjinn Sergio Lopez. „Sergio er sannkallaður læri- faðir og hefur kennt mér svo miklu meira en sund, líka um lífið og það allra mikilvægasta, að hafa gaman af sundinu. Hann vann sjálfur til verðlauna á Ólympíu- leikunum og hefur þjálfað marga Ólympíumeistara í sundi, er gífurlega reynslumikill og algjört náttúrubarn í sundi. Það eru for- réttindi að fá að vera á bakkanum með Sergio og meðtaka viskuna sem hann útdeilir þar,“ segir Anton Sveinn. Planið er að fara í MBA-meist- aranám innan tveggja ára í Banda- ríkjunum en framtíðina sér Anton Sveinn á Íslandi. „Ég lít á mig sem afreksmann í íþrótt um frekar en atvinnumann því að vera atvinnumaður er fyrir mér að þiggja laun fyrir en það er ekki þannig. Sundinu fylgir mikill fórnarkostnaður því ég gæti verið í fullri vinnu og unnið mér inn rétt- indi í lífeyris- og eftirlauna sjóðum en það sýnir hvað sundið er mér mikilvægt og ég er ekki tilbúinn að gefa sundferilinn á bátinn þrátt fyrir að erfiða fjárhagslega. Ég fæ afreksstyrki í gegnum Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands til að mæta kostnaði en gæti þetta ekki án þess stuðnings,“ segir Anton Sveinn. Hann segist hættur að taka það inn á sig ef illa gengur. „Það er auðvitað eðlilegt að vera ósáttur ef maður uppsker ekki eins og maður sáði eftir mikinn tíma, orku og áreynslu en ég get ekki dæmt mig eða búið til persónulegt álit eftir því hvernig mér gengur í sundinu. Ég hef þvert á móti lært að þegar gengur bæði vel og illa að ég er svo miklu meira en íþróttin sem ég iðka. Ég er sonur, bróðir, vinur og svo margt f leira sem hefur meira vægi í lífinu.“ Einhleypur eins og er Í frítímum þykir Antoni Sveini best að vera með fjölskyldu og vinum, slaka á og hafa það skemmtilegt. „Ég hef gaman af því að detta í góða sjónvarpsþætti og er mikill aðdáandi Breaking Bad. Ég heillast líka af óraunverulegum heimi ævintýra og drama og horfði sem límdur á Game of Thrones, eða allt þar til þeir ákváðu að klúðra öllu í lok síðustu seríunnar,“ upp- lýsir Anton Sveinn, sem fer líka rakleiðis á KFC þegar hann kemur heim til Íslands. „Það er bara staðreynd að það er ekki til betri KFC-staður í heim- inum en KFC á Íslandi. Ég hef búið og ferðast vítt og breitt um Banda- ríkin og upp lifað þvílík vonbrigði því gæðin eru ekki þau sömu. Því kem ég ekki heim án þess að koma við á KFC og leyfi mér það hressi- lega með fötu af hot wings og fötu af kjúklingalundum; það er ekki til neitt betra,“ segir Anton Sveinn og hlær. Hann er einhleypur. „Já, eins og er. Það er erfitt að púsla öllu saman þegar svona mikill tími fer í sundið og því lítill tími afgangs fyrir ástina.“ 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.