Fréttablaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 32
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Valentínusardeginum, degi elskenda, verður fagnað með alþekktum, rómantískum
dægurlögum í Salnum í Kópavogi
á föstudag. Lögin eru sérstaklega
valin fyrir þessa uppákomu. Ný
hljómsveit, Íslenska galasveitin,
sem er skipuð níu valinkunnum
tónlistarmönnum, leikur undir
þegar Þór Breiðfjörð flytur
rómantísk lög af hinum svokölluðu
„American Songbook“-plötum Rod
Stewart, tónlist úr smiðju Frank
Sinatra, Perry Como, Nat King Cole,
Michael Bublé og Elvis Costello.
Öll lögin hafa verið sett í glæsilegar
útsetningar af Lilju Eggertsdóttur
píanóleikara sem leikur undir.
Þetta er níu manna stórsveit, fjórir
strengir, djasstríó og blásari auk
Þórs. Það er því ekkert til sparað
svo kvöldið verði sem notalegast.
„Við erum heldur betur að fara í
rómantískan leiðangur og verðum
á útopnu. Það verður tekið á móti
fólki í anddyrinu á ljúfum nótum.
Hægt er að fá sér freyðivín og skála
fyrir deginum. Það hefur verið
draumur hjá okkur lengi að troða
upp með stóra hljómsveit, strengi
og blásara og flytja öll þessi róman-
tísku sönglög,“ segir Þór þegar hann
lýsir rómantíkinni í Salnum.
„Lilja hefur sett lögin í glænýjar
og gullfallegar útsetningar sem
munu örugglega falla öllum vel í
geð. Þar utan hefjum við tónleik-
ana kl. 20.30 þannig að það hentar
vel að fara fyrst út að borða með
elskunni sinni og leiðast síðan inn
í rómantíkina í Salnum. Það er svo
sannarlega hægt að gera eitthvað
skemmtilegt úr þessu kvöldi,“ segir
hann.
Þór bætir við að Íslenska gala-
sveitin sé komin til að vera og þetta
sé fyrsti viðburður hennar. „Okkur
langaði til að leyfa gestum að heyra
hvað þessi hljómsveit hefur fram að
færa. Sjálfur hef ég verið að syngja
svona ljúf lög í gegnum árin, til
dæmis í kringum jólin. Ég gaf út
jólaplötuna „Jól í stofunni“ sem er
í svipuðum anda,“ segir hann, en
Þór komst í úrslit í jólalagakeppni
Rásar 2 nú um jólin með frum-
samið lag í „krúner“ stíl. „Núna er
tækifæri til að flytja þessi róman-
tísku lög sem flottast með stórri
hljómsveit. Hver veit nema þetta
verði árlegur viðburður. Mér finnst
Valentínusardagurinn fallegur, það
er gaman að staldra aðeins við með
einhverjum sem maður elskar. Ég er
samt ekkert stressaður yfir þessum
degi, eins og maður sér í amerísk-
um bíómyndum. Við Íslendingar
erum alveg slakir og reynum bara
að njóta. Þetta er frábær dagur til
að hugsa um þá sem við elskum og
þykir vænt um.“
Þegar Þór er spurður hvort hann
sé sjálfur rómantískur, hlær hann
og svarar: „Ætli konan mín verði
ekki að svara þessu.“ Þór viður-
kennir að hann hafi gaman af að
syngja rómantísk lög svo líklegast
er einhver rómantík í honum. „Ætli
það sé ekki einmitt mjög gott að
hafa svona Valentínusardag til
að minna okkur á að vera saman.
Tíminn líður hratt í dagsins önn og
nauðsynlegt að lyfta sér upp. Það er
líka svo frábært að hafa þennan dag
í febrúar þegar fátt er í boði.“
Þór hefur sungið í söngleiknum
Evitu í Eldborg og verður upp-
setning á honum aftur í lok þessa
mánaðar áður en sýningin fer
norður. „Ég er að ljúka við að skrifa
söngleik sem nefnist Rokkarinn og
rótarinn, sem mig langar að koma á
svið. Þar að auki er ég að undirbúa
sólóplötu svo það eru næg verkefni.
Það er æðislegt að vera í tónlist á
Íslandi.“
Blússandi rómantík með
ástarsöngvum í Salnum
Það eru miklir listamenn sem koma fram í Salnum á Valentínusardag. Frá vinstri: Íris Dögg Gísladóttir, fiðla, Sigrún Harðardóttir, fiðla, Lilja Eggertsdóttir, píanó, Ásdís Hildur Runólfsdóttir, víóla,
Þór Breiðfjörð, söngur, Catherine Maria Stankiewicz, selló, Snorri Sigurðarson, trompet og flygilhorn, Jón Rafnsson, kontrabassi, og Þorvaldur Halldórsson, trommur. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þór ætlar að syngja ljúfa söngva fyrir
elskendur á Valentínusardaginn.
Það hefur verið
draumur hjá
okkur lengi að troða upp
með stóra hljómsveit,
strengi og blásara og
flytja öll þessi róman-
tísku sönglög.
Valentínusardagurinn lendir á
föstudegi að þessu sinni. Það er
sannarlega ástæða til að gleðjast
yfir rómantískri tónlist, freyðivíni
og konfekti þann dag. Þór Breið-
fjörð og einvala lið tónlistarmanna
ætla að skapa þá stemningu.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
NÝJAR VÖRUR VOR 2020
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R