Fréttablaðið - 08.02.2020, Síða 49

Fréttablaðið - 08.02.2020, Síða 49
Rannsóknarstaða í nafni dr. Kristjáns Eldjárns Þjóðminjasafn Íslands auglýsir lausa til umsóknar sérstaka rannsóknarstöðu tengda nafni dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands, sbr. 3. gr. a. laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011. Helstu verkefni og ábyrgð Staðan er auglýst til eins árs. Fræðimaður skal senda inn umsókn, þar sem verkefnið er vandlega skilgreint og hvernig það verði til að efla menningarsögulegar rannsóknir. Verkefnið skal skilgreint sem eins árs verkefni. Verkefni, eins og það er afmarkað, lýkur með formlegum verklokum að ráðningartíma liðnum. Stefnt skal að því að niðurstöður rannsókna verði birtar á viðurkenndum fræði­ legum vettvangi eftir verklok en auk þess skulu þær kynntar með fyrirlestri, sýningu eða öðrum hætti innan Þjóðminja­ safns Íslands. Rannsóknarniðurstöður skulu jafnframt varðveittar í Þjóðminjasafni Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2020. Sótt er um starfið á heimasíðu safnsins: https://www.thjodminjasafn. is/starfsemi­safnsins/um­stofnunina/starfsfolk/laus­storf/ Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir mannauðsstjóri í síma: 530­2239, netfang: hildur@thjodminjasafn.is Hjúkrunarstjóri óskast - Skjólgarður öldrunarheimili Hlutverk Skjólgarðs er að veita fjölbreytta öldrunar- og sjúkraþjónustu fyrir íbúa sveitarfélagsins. Þar eru í dag rekin 24 hjúkrunarrými, 6 dvalarrými og 7 dagdvalarrými með opinni dagþjónustu eldri borgara. Á hjúkrunardeild eru 4 sjúkrarými. Á Skjólgarði eru samtals 26 stöðugildi. Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfi til að sinna starfinu. Umsóknir skulu sendar á netfangið gudrundadda@hornafjordur.is. Kjör fara eftir kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Launanefndar sveitarfélaga. Aðilar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Dadda Ásmundardóttir, framkvæmdastjóri - gudrundadda@hornafjordur.is - 4708616/8488828. Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar 2020. Hornafjörður er blómstrandi 2400 manna samfélag sem byggir á sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Öflugt menningar- og félagslíf er í sveitarfélaginu. Fjölbreytt íþróttastarf fyrir börn og ungmenni. Nýheimar þekkingarsetur er mennta- og fræðastofnun þar sem koma saman Rannsóknasetur Háskóla Íslands, Náttúrustofa Suðausturlands, Framhaldsskóli, Hornafjarðarsöfn, Matís og Fræðslunet Suðurlands. Stuðningur við frumkvöðla, t.d. FAB LAB smiðja er í Vöruhúsi.Öll almenn þjónusta er til staðar í sveitarfélaginu og þar má nefna tónskóla, líkamsrækt, knatthús, sundlaug og heilbrigðisstofnun. Samgöngur til Hafnar eru greiðar, beint flug og strætó. Helstu verkefni • Ber ábyrgð á hjúkrun, ráðgjöf og þjónustu á hjúkrunar-, dvalar- og dagdvalardeild • Ábyrgð á faglegri framkvæmd þjónustu í samræmi við gæðavísa heilbrigðisráðuneytis og Landlæknisembættis um heilbrigðisþjónustu • Ber ábyrgð á að rekstur sé í samræmi við rekstraráætlanir • Ber ábyrgð á starfsmannamálum og starfar í samræmi við mannauðsstefnu sveitarfélagsins • Þátttaka í stefnumótun og eftirfylgd stefnu Hæfnikröfur • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi • Reynsla af stjórnun með mannaforráð • Reynsla af þátttöku í gerð fjárhags- og launaáætlana kostur • Reynsla af uppbyggingu eða endurskipulagningar hjúkrunarstarfsemi kostur • Þekking á Eden-hugmyndafræðinni eða sambærilegri stefnu æskileg • Þekking á RAI-mælitækinu kostur • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum • Góð yfirsýn og skipulagshæfni • Geta til þess að starfa undir álagi Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is VILTU TAKA ÞÁTT? Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins – Skógarhlíð 14 – S: 528 3000 – www.shs.is Slökkvilið höfuðborgarsvæðis ins (SHS) vill ráða starfsfólk í sumar­ afleys­ingar­fyrir­sumarið­2020­til­að­ sinna­sjúkra­flutningum.­Við­erum­ að­leita­að­einstak­lingum­sem­vilja­ láta­gott­af­sér­leiða­og­hafa­áhuga­ á­að­tilheyra­öflugu­liði­sem­hefur­ það­hlutverk­að­sinna­útkalls­ þjónustu­á­höfuðborgarsvæðinu.­ Við­viljum­gjarnan­sjá­fleiri­konur­í­ liðinu­og­hvetjum­þær­til­að­sækja­ um.­Um­er­að­ræða­vaktavinnu,­ 8­12­tíma­vaktir­á­öllum­tímum­ sólarhrings. Til­að­starfa­við­sjúkraflutninga­ þarf­að­hafa­starfsréttindi­sem­ sjúkraflutninga­maður.­Hægt­er­ að­sækja­um­án­þess­að­hafa­ réttindin,­en­þá­er­gert­ráð­fyrir­að­ þeir­sem­verða­ráðnir­hafi­tíma­til­ að­ná­sér­í­rétt­indin­áður­en­þeir­ hefja­störf. Umsóknarfrestur­er­til­16. febrúar. nk.­Nánari­upplýsingar­um­umsóknar­ ferlið,­hæfnis­kröfur­og­inntökuferlið­ er­að­finna­á­heima­síðu­SHS.­ Sumarstörf www.shs.is Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. ATVINNUAUGLÝSINGAR 15 L AU G A R DAG U R 8 . F E B R ÚA R 2 0 2 0
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.