Fréttablaðið - 08.02.2020, Page 104
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Margrétar
Kristmannsdóttur
BAKÞANKAR
Það hefur f leiri kosti en færri að vera miðaldra, en helsti kosturinn er að
maður nennir engu kjaftæði
lengur. Maður hefur lært af
reynslunni að allt of mikill tími
í gegnum tíðina fór í að tipla á
tánum í kringum menn og mál-
efni – tími sem maður dauðsér
eftir. Eina huggunin er að þessi
tími stækkaði reynslubankann
– en mikið fjárann gat verið
leiðinlegt meðan á því stóð.
Í dag er maður mun oftar
í þeirri stöðu að velja í hvað
tímanum er varið og miðaldra
manneskja á einnig að hafa
öðlast það þor að segja einfald-
lega nei takk og láta ekki hvað
sem er yfir sig ganga! Vinkonur
mínar hafa kallað það … þið
afsakið orðbragðið … að vera
kominn í „fuck you“ stöðu.
Ekki síðri kostur við að ná
miðjum aldri er að maður viður-
kennir óhikað að maður hafi
ekki lengur skoðun á öllu og
engu. Ég nenni einfaldlega ekki
að setja mig inn í mörg málefni
og þykjast síðan hafa eitthvað
merkilegt fram að færa. Vera
þessi þreytandi týpa á kaffi-
stofunni sem endalaust þarf að
láta ljós sitt skína.
Hálendisþjóðgarður og
raforkudreifing eru góð dæmi
um málefni sem ég ætla ekki að
kynna mér ítarlega, en treysti
á að gott fólk geri það og breyti
rétt fyrir mig og komandi kyn-
slóðir.
Þegar aldurinn færist yfir
neitar maður að umgangast nei-
kvætt fólk sem dregur úr manni
lífslöngunina. Miðaldra mann-
eskja velur sína slagi – vandar
valið og drekkur gott rauðvín!
Að vera
miðaldra
LAUGARÁSVEGI 1
Tilboðið inniheldur
tvö pizzadeig, pizzasósu,
ost, pepperoni, skinku
og grænmetisbakka.
Gildir út morgundaginn.