Fréttablaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 8 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Gleðilegan
öskudag
Syngjandi
Krónu krútt
velkomin
í dag!
Gestir H10 Costa Adeje Palace hótelsins á La Caleta á Tenerife fylgjast með lífinu fyrir utan veggi hótelsins í
blíðviðrinu í gær. Um 1.000 gestir og starfsfólk H10 verða í sóttkví næstu tvær vikur eftir að gestur sem dvalið
hafði á hótelinu greindist með COVID-19 veiruna. Sjö Íslendingar eru í einangrun á hótelinu. MYND/GETTY
H E I LB R I G Ð I S M ÁL Um þú su nd
manns, þar af sjö Íslendingar, eru
í sóttkví á H10 Costa Adeje Palace
hótelinu á Tenerife eftir að ítalskur
læknir og eiginkona hans, sem dval-
ið höfðu þar, greindust með COVID-
19 veiruna í gær.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir viðbrögðin hér á landi
við smiti á Tenerife svipuð og þegar
smit hafi komið upp annars staðar
í heiminum. „Þetta snertir okkur
meira en fyrri fréttir því þarna eru
Íslendingar,“ segir hann og bætir við
að Íslendingar sem komi heim frá
Tenerife, aðrir en þeir sem dvöldu á
fyrrnefndu hóteli, verði ekki settir
í sóttkví við heimkomu. „Við ein-
blínum á þá sem hafa dvalið á þessu
hóteli,“ segir Þórólfur.
„Það hefur bara komið upp eitt til-
felli þarna og á meðan þau eru ekki
f leiri þá erum við ekki að fara að
setja allt Tenerife undir,“ segir hann.
Þá segir Þórólfur að enginn sér-
tæk meðferð sé til fyrir þá sem
greinast með COVID-19 veiruna en
að 80 prósent þeirra sem með hana
greinist fái einungis væga sýkingu.
„Það þarf bara að gefa fólki ráð
um hitalækkandi og slíkt eins og í
venjulegri pest en ef fólk fær önd-
unarerfiðleika eins og getur gerst í
stöku tilvikum þessarar veirusýk-
ingar getur þurft að leggja viðkom-
andi inn á spítala eða jafnvel inn á
gjörgæslu. En það eru ekki til nein
sérstök lyf til að vinna á veirunni,“
segir hann.
Aðspurður hvort búast megi við
bóluefni í náinni framtíð segir Þór-
ólfur svo ekki vera. „Við bindum
engar vonir við það að bóluefni
verði til á næstunni, það tekur mörg
ár að búa til bóluefni sem er öruggt
og virkt þannig að það er ekkert inni
í myndinni,“ segir hann.
Í gær höfðu um 80 þúsund manns
smitast af veirunni á heimsvísu og
2.700 látist. Þórólfur segir að mögu-
leiki sé á að enn fleiri séu smitaðir af
veirunni. „Það er alltaf möguleiki og
sérstaklega með þessa sýkingu, að
ákveðinn hluti og ábyggilega margir
sem fá væga sýkingu sem kemur út
sem kvefpest leiti ekkert endilega
til læknis. Greinist þess vegna ekki
en geti samt smitað,“ segir Þórólfur.
Þá telur hann ólíklegt að veiran hafi
borist hingað til lands án þess að
vera greind.
„Það er mjög ólíklegt, allavega á
þessum tímapunkti. Hvernig það
verður eftir mánuð eða eitthvað,
við vitum það ekki.“ – bdj / sjá síðu 4
Bóluefni ekki
væntanlegt á
komandi árum
COVID-19 veiran greindist á hóteli á Tenerife í gær.
Sjö Íslendingar eru á hótelinu og segir sóttvarna-
læknir bóluefni ekki í sjónmáli. Þá sé engin með-
ferð til fyrir þá sem greinast með veiruna. Mikil-
vægt að almenningur fylgi opinberum tilmælum.
Þórólfur Guðna-
son, yfirlæknir
á sóttvarnasviði
Landlæknisemb-
ættisins
VIÐSKIPTI Yfirtaka Isavia á rekstri,
viðhaldi og uppbyggingu Egils-
staðaf lugvallar er talin hafa nei-
kvæð áhrif á afkomu félagsins sem
nemur um 500 milljónum á ári.
Óttast er að án annarra fjármögn-
unarleiða verði yfirtakan til þess
að lánaskilmálar brotni með þeim
afleiðingum að möguleikar Isavia
til uppbyggingar verði útilokaðir.
Á stjórnarfundi Isavia var gagn-
rýnt að ekki væri ljóst hvernig bregð-
ast ætti við neikvæðum áhrifum
yfirtökunnar. – hae, kij / sjá Markaðinn
Skilmálar Isavia
gætu brotnað
VIÐSKIPTI Skilyrði samkeppnis-
laga um að úrskurður áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála þurfi að
liggja fyrir áður en höfða megi mál
til ógildingar á ákvörðunum Sam-
keppniseftirlitsins verður fellt brott
samkvæmt frumvarpi Þórdísar Kol-
brúnar Gylfadóttur til breytinga á
samkeppnislögum sem ríkisstjórn-
in samþykkti á fundi sínum í gær.
Ekki er lagt til að málskotsheim-
ild eftirlitsins verði afnumin, eins og
gert var ráð fyrir í drögum að frum-
varpinu í fyrra. – kij / sjá Markaðinn
Geti leitað beint
til dómstóla