Fréttablaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@ frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is ÉG ER ORÐIN SVO VIÐKVÆM EFTIR AÐ ÉG VARÐ MAMMA SVO ÉG REIKNA MEÐ AÐ BRESTA NOKKRUM SINNUM Í GRÁT. www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 Vertu eins og heima hjá þér www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN SCOTT Hornsófi úr sterku, dökkgráu, Kentucky Stone, bonded leðri (leðurblöndu). Innra byrði púðanna er úr kaldpress­ uðum, mjög endingar góðum, svampi, trefjafyllingu og loks mjúku yfir lagi. Fæturnir eru sterkir úr svörtu járni. Fæst með hægra eða vinstra horni (ekki færanlegt). Stærð: 293 x 217 x 85 cm. 215.992 kr. 269.990 kr. FRIDAY Tungusófi, hægri eða vinstri tunga. Grátt, dökkgrátt og brúnt slitsterkt áklæði. Stærð: 285 × 232 × 91 cm 142.493 kr. 189.990 kr. FRIDAY Hornsófi með hvíld. Rúmgóður sófi með háu baki og góðum bakstuðningi. Hægri eða vinstri tunga (ekki færanleg). Stærð: 370 × 232 × 91 cm 239.993 kr. 319.990 kr. LÍFIÐ ER Á FRETTABLADID.IS Líð á frettabladid.is allar um fólk, menningu, tísku, heilsu og margt eira. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Annað kvöld stend-u r leik kona n og g r í n i s t i n n S a g a Garðarsdóttir fyrir uppistandi í Þjóð-leikhúskjallaranum þar sem hún ætlar að prófa nýtt efni og að eigin sögn, tala um tilfinn- ingar sína. Á viðburðinum fá áhorf- endur tækifæri til að skyggnast inn í frekar óritskoðaðan huga Sögu áður en hún nær að slípa efnið og smyrja fyrir allar árshátíðirnar og aðra við- burði sem fram undan eru. Góð stemning og hlýja „Ég verð að prófa nýtt efni svo ég get ekki lofað að það verði fyndið en það verður pottþétt góð stemning og hlýja,“ segir Saga. Hún segist ekki hafa lent í neinu hræðilegu óhappi á uppistandi. „Það versta sem ég hef lent í er að gleyma að ég eigi að vera einhvers staðar. Og nokkrum sinnum hef ég gleymt að mæta en verið búin að lofa mér í að koma fram,“ segir hún. Saga segist vera að koma af fullum krafti aftur í uppistandið með nóg af nýju efni. „Mér finnst skemmtilegast að vera með uppistand. Og mig langar að endurnýja efnið mitt. Það er kvalafullt ferli. Já, ég ætla að fara á fullt í uppistandið núna,“ segir Saga. Mótunarárin og kynórar Á hvaða málefnum snertir þú í sýn- ingunni? „Núna er enn allt svo opið. Ástin, vináttan og mótunarárin eru til umræðu. Og kynórar.“ Saga segist ekki bara ætla að grín- ast annað kvöld, heldur mun hún líka snerta á tilfinningum og fá til sín hjónabandsráðgjafann Kristínu Tómasdóttir. Hún mun vafalaust gefa gestum góð ráð í makavali. „Ég er orðin svo viðkvæm eftir að ég varð mamma svo ég reikna með að bresta nokkrum sinnum í grát. Hvað hjónabandsráðgjöfina varðar þá þekki ég mjög marga sem ætla að mæta sem eru rangparaðir og ég vona að þeir muni átta sig á því þetta kvöld,“ segir Saga, Pabbi fyndnastur Hvað finnst þér sjálfri fyndnast? „Pabbi minn að segja brandara.“ Að uppistandi loknu tekur Saga nokkur lög með Mána Arnarsyni. „Mig langar að segja að þetta séu töffaralög en einhver töffari myndi kannski kalla þetta lúðalög,“ segir hún og bætir við: „Máni er svo góður, þannig að samstarfið gekk mjög vel.“ Leikritið Veisla Það er nóg að gera hjá Sögu fyrir utan uppstandið og veislustjórn. „Ég er í leikritinu Veislu í Borgar- leikhúsinu, en það er sketsasýning um veislumenningu. Það verður allavega hittari ef uppistandið klikkar,“ segir hún og hlær. Saga á sér líka draumahlutverk. „Mig langar að leika lögreglukonu í sakamálaþætti. Konuna sem er alltaf að senda sýni til Noregs.“ Uppselt er á uppistandið svo lesendur verða einfaldlega að hafa augun opin eftir næsta uppistandi frá Sögu. steingerdur@frettabladid.is Saga býður upp á hjónabandsráðgjöf Annað kvöld prófar Saga Garðarsdóttir nýtt efni í Þjóðleikhús- kjallaranum. Uppselt er á sýninguna, en á henni verður einnig boðið upp á hjónabandsráðgjöf frá Kristínu Tómasdóttur. Saga Garðarsdóttir æfir nýtt uppistand annað kvöld í Þjóðleikhúskjallaranum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Saga stefnir á að fara á fullt í uppi- stand á næstunni. Plakatið skreytti Hugleikur Dagsson. MYND/SAGA SIG 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.