Fréttablaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 28
Það væri í raun ótrúlegt ef aðrar matvöruverslanir væru ekki að undirbúa innkomu á markaðinn. Þorsteinn Friðrik Halldórsson tfh@frettabladid.is 250.000.000 kr. 200 150 100 2016 2017 2018 2019 ✿ Afslættir sem viðskiptavinir Nettó hafa fengið vegna verkefnisins Minni sóun Net tó hef u r náð markmiði sínu um að tífalda veltu í netverslun sinni á innan við þremur ár u m. Net versl­ unin er að ná þeirri stærðarhag­ kvæmni sem þarf til að hún verði arðbær og fyrirtækið býr sig undir að samkeppnin harðni á þessu ári. Þetta segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa sem reka Nettó. „Við höfum séð stöðugan vöxt frá því að við settum netverslunina í loftið og janúar var stærsti mánuð­ urinn frá upphafi. Hins vegar höfum við vísvitandi reynt að stjórna vext­ inum til þess að passa upp á gæðin og forðast of mörg mistök. Allir sem hafa verslað á netinu vita að það þarf ekki mikið til að fæla viðskiptavini frá kaupum og þá er erfitt að ná þeim til baka. Okkur hefur tekist þetta og nú förum við að stíga á bensíngjöfina,“ segir Gunnar Egill í samtali við Markaðinn. Netverslun Nettó fór í loftið haustið 2017 í samstarf við Aha, sem þróaði tæknina og sér um heim­ sendingar. Viðskiptavinir geta einn­ ig valið að sækja pantanir í verslanir Nettó. Upphaflega var aðeins einn afhendingarstaður en í sumar var lokið við að innleiða afhendingu á öllum þeim svæðum þar sem Nettó rekur verslanir. Samkvæmt tölum Rannsóknar­ seturs verslunarinnar jókst net­ verslun í f lokki stórmarkaða og dagvöruverslana um 230 prósent í nóvember 2019 miðað við sama mánuði árið 2018. Veltan á netinu í nóvembermánuði í fyrra nam alls 180 milljónum króna samanborið við 54 milljónir í nóvember 2018. Gunnar Egill segir að hlutfall net­ verslunar í rekstri Nettó sé hátt í samanburði við það sem gengur og gerist í nágrannalöndum. „Ef við skoðum til dæmis breska markaðinn þá er hlutfallið hjá okkur með því besta sem finnst. Þetta segir okkur að þótt Íslendingar séu stund­ um seinir að innleiða tækninýjung­ ar eru þeir mjög fljótir að tileinka sér þær. Við höfum séð svipaða þróun með sjálfsafgreiðslukassana sem eru nokkuð nýleg tækni hér á landi en hafa verið til staðar í meira en 10 ár í sumum nágrannalöndum,“ segir Gunnar Egill. „Það tekur á bilinu þrjú til fimm skipti fyrir fólk að byrja að tileinka sér regluleg innkaup á netinu og við höfum reynt að hanna kerfið þann­ ig að innkaupin séu eins auðveld og mögulegt er. Til dæmis man kerfið hvað þú hefur keypt áður og auð­ veldar þér að velja vörurnar sem þú kaupir í hverri viku. Ef þú vilt bæta einhverju við þá er leitarvélin síðan mjög skilvirk.“ Hafa vaxið í góða stærð Sérfræðingar á sviði netverslunar hafa bent á að fá dæmi séu um arð­ bærar netverslanir. Spurður hvort hann sjái fram á að rekstur net­ verslunar Nettó verði arðbær svarar Gunnar Egill játandi. „Þú getur rekið arðbæra net­ verslun ef þú færð viðskiptavini til að sækja vörurnar. En ef þú ætlar að bjóða upp á heimsendingar þarftu að ná stærðarhagkvæmni sem ég held að við séum að ná núna. Við erum búin að vaxa í góða stærð á flestum afhendingarstöðum,“ segir Egill Gunnar og nefnir þrjú atriði sem hann telur að muni gera Nettó kleift að reka arðbæra netverslun til framtíðar litið. Búa sig undir innreið keppinauta Nettó náði markmiði sín um að tífalda veltu netverslunarinnar á innan við þremur árum. Er að ná stærðarhagkvæmni sem þarf til að hún verði arðbær. Framkvæmdastjórinn býst við að stórir keppinautar í smásölu komin inn á markaðinn á þessu ári. Stöðugur vöxtur hefur verið frá því að netverslunin var sett í loftið og janúar var stærsti mánuðurinn frá upphafi. Gunnar Egill segir að mesta áskorunin sé að halda verkferlum nógu einföldum svo að hver starfsmaður geti tínt pantanir til. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 800 milljónir í afslætti Árið 2015 ýttu Samkaup verkefn- inu „Minni Sóun – Allt nýtt“ úr vör þar sem áherslan er á aukna flokkun og minni sóun matvæla. Allar verslanir Samkaupa bjóða nú stigvaxandi afslátt af vörum sem nálgast síðasta söludag. Vöruverð lækkar eftir því sem líftími vöru styttist og stuðlar þetta að minni sóun matvöru. Samkvæmt gögnum frá Sam- kaupum hafa afslættirnir sem viðskiptavinir hafa fengið vegna verkefnisins numið tæpum 800 milljónum króna frá árinu 2016. „Íslenski markaðurinn er lítill og þess vegna ákváðum við að fara þá leið að tína vörur til afhendingar í verslunum okkar í stað þess að reka miðlægt vöruhús. Við fundum Aha sem samstarfsaðila til að geta notað tæknigrunn sem var þegar til staðar frekar en eyða tíma og orku í að þróa tæknina frá grunni. Og svo erum við að nota heimkeyrslukerfi Aha sem eru sérfræðingar í því að besta heim­ keyrsluna,“ segir Gunnar Egill. Aðspurður segir Gunnar að mesta áskorunin sé að halda verkferlum nógu einföldum þannig að hver starfsmaður geti stokkið til og tínt pantanir til. „Ég tel að við séum búin að ná stærðarhagkvæmni í mörgum versl­ unum og nú er verkefnið að besta tínsluna. Á ákveðnum tímum dags getur myndast mikið álag á vinsæl­ ustu afhendingarstöðunum og þá er meiri hætta á að einhver geri mistök. En ég lít á það sem lúxusvandamál,“ segir Gunnar Egill. Fóru inn á réttum tíma Nettó og Heimkaup eru nú stærstu fyrirtækin í sölu á matvöru á netinu. Önnur stór smásölufyrirtæki á borð við Hagkaup hafa ekki hætt sér inn á markaðinn en samkeppnin mun harðna á þessu ári að sögn Gunnars Egils. „Það væri í raun ótrúlegt ef aðrar matvöruverslanir væru ekki að und­ irbúa innkomu á markaðinn. Sér­ staklega í ljósi árangursins sem við erum að sjá og mikils vaxtar í sölu á matvöru á netinu. Maður hittir fleiri og fleiri sem hafa prófað á að kaupa matvöru á netinu og sú þróun mun fyrirsjáanlega halda áfram. Ég er viss um að eftir tíu ár muni kröfur viðskiptavina verða mjög ólíkar því sem við erum vön í dag,“ segir Gunn­ ar Egill. „Við erum allavega að búa okkur undir harðari samkeppni á þessu ári. Ég tel að við höfum farið inn á markaðinn á hárréttum tíma en aftur á mót geta keppinautarnir lært af mistökum sem við höfum gert. Það er ókosturinn við það að vera fyrstur af stað.“ Ánægjulegar hliðarsögur Þá segir Gunnar Egill að netverslun sé umhverfisvænn valkostur í inn­ kaupum. Til að mynda notast Aha, sem keyrir vörurnar út fyrir Nettó, eingöngu við rafmagnsbíla og í lok árs var milljónasti kílómetrinn ekinn í heimkeyrslu. „Samkvæmt rannsóknum sem hafa verið framkvæmdar í Banda­ ríkjunum kemur fram að hver við­ skiptavinur eyðir um það bil 40 mínútum í að versla á um það bil fimm daga fresti. Eldra fólk, slasað eða veikt fólk segir okkur reglulega sögur af því hvernig þetta léttir því lífið. Þetta eru ánægjulegar hliðar­ sögur sem voru ekki inni í hug­ myndafræðinni til að byrja með.“ 2 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.