Fréttablaðið - 26.02.2020, Blaðsíða 12
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Valgeir Guðmundsson
(Bjarni á Jörfa)
bifvélavirki,
lést á Landakoti 19. febrúar.
Útför hans fer fram frá Bessastaðakirkju
mánudaginn 2. mars klukkan 13.00.
María Birna Sveinsdóttir
Sveinn Bjarnason
Salbjörg Bjarnadóttir Victor R. Viktorsson
Anna María Bjarnadóttir Ólafur K. Ólafsson
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
kærleika og hlýjar kveðjur við andlát
og útför elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa, sonar, bróður
og mágs,
Hjálmars Kristins
Aðalsteinssonar
íþróttakennara.
Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hann í
veikindunum, samkennara hans í Hagaskóla og
útskriftarhóps íþróttakennara ´82.
Margrét Björnsdóttir
Aðalsteinn Hjálmarsson Rósa Halldóra Hansdóttir
Kristín Ásta Hjálmarsdóttir Erik Ensjö
Margrét Sigríður Árnadóttir
Ásta Aðalsteinsdóttir Aðalsteinn Guðmundsson
Ólafur Aðalsteinsson Arna Guðlaug Einarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Dagbjört Guðmundsdóttir
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
sunnudaginn 23. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Unnarsson Kristín Sveinsdóttir
Guðfinna Eyjólfsdóttir Sigurður G. Marteinsson
Jón Þór Eyjólfsson Kolbrún Ögmundsdóttir
Emil Þór Eyjólfsson Jónína Valtýsdóttir
Erla Eyjólfsdóttir Ingi Gunnlaugsson
Eydís Eyjólfsdóttir Stefán G. Einarsson
Ómar Þór Eyjólfsson Þórey S. Þórðardóttir
barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Guðný Ragnarsdóttir
Skipalóni 22, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þann 16. febrúar síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 2. mars klukkan 13.00.
Ragnheiður Gunnarsdóttir Jón Guðni Kristinsson
Sigurður Gunnarsson Salóme Eiríksdóttir
Ragnar Þór Gunnarsson
Bjarni Bergþór Eiríksson
ömmu- og langömmubörn.
Merkisatburðir
1797 Englandsbanki gefur út fyrsta eins punds seðilinn.
1891 Hedda Gabler, hið kunna leikrit Ibsens, frumsýnt í
Ósló.
1914 Britannic, systurskipi Titanic, hleypt af stokkunum í
skipasmíðastöðinni í Belfast.
1930 Fyrstu umferðarljósin þar sem notað er grænt og
rautt ljós tekin í notkun á Manhattan í New York.
1970 Platan Hey Jude með Bítlunum kemur út.
1983 Thriller, plata Michaels Jackson, nær fyrsta sæti á
vinsældalistum vestan hafs og situr þar í 37 vikur.
1993 Bílsprengja springur undir World Trade Center í
New York-borg.
2000 Eldgos hefst í Heklu og stendur í um það bil ellefu
daga.
2017 Snjódýpt í Reykjavík mælist 51 sentimetri og hafði
ekki verið meiri jafnfallinn snjór í febrúarmánuði frá upp-
hafi mælinga árið 1921.
Katherine Johnson er fallin
frá. Stærðfræðikunnátta
hennar varð hornsteinn
margra geimferða NASA.
Stærðfræðingurinn Katherine Johnson lést í vikunni, 101 árs að aldri. Johnson starfaði lengi fyrir NASA þar sem hún reikn-aði meðal annars farbrautir
fyrir eldf laugaferðir stofnunarinnar.
Johnson fæddist í litlum bæ í Vestur-
Virginíufylki í Bandaríkjunum árið
1918 og fékk snemma áhuga á stærð-
fræði. Hún var af burðanámsmaður og
útskrifaðist úr háskóla aðeins 18 ára
gömul, en á þeim tíma var svart fólk í
Bandaríkjunum að jafnaði látið hætta
í skóla í 8. bekk. Eftir að hafa starfað
sem kennari og heimavinnandi móðir
hóf Johnson störf fyrir forvera NASA,
NACA, þar sem hún hafði starfsheitið
„tölva“ og vann við að reikna farbrautir
fyrir fyrstu eldflaugaferðir þeirra.
Í geimkapphlaupi Bandaríkjanna og
Sovíetríkjanna unnu Johnson og aðrar
svartar samstarfskonur hennar í vinnu-
rýmum sem voru aðskilin frá hvítu
samstarfsfólki þeirra. Johnson sagðist
alltaf vera of upptekin við vinnuna sína
til að geta velt sér upp úr misréttinu
sem þær urðu fyrir barðinu á.
Saga Johnson fékk mikla athygli í
kvikmyndinni Hidden Figures frá árinu
2016 sem var tilnefnd til Óskarsverð-
launa. Myndin segir frá svörtum konum
sem beittu stærðfræðikunnáttu sinni
til að koma geimfaranum John Glenn á
sporbaug árið 1962. Hæfni Johnson var
slík að Glenn neitaði að taka þátt í leið-
angrinum nema hún færi yfir tölurnar
sem tölvurnar reiknuðu fyrir f lugið.
Johnson hafði þá áður reiknað far-
brautirnar fyrir Alan Shephard sem var
fyrsti Bandaríkjamaðurinn í geimnum.
Hún tók einnig þátt í að reikna far-
brautina fyrir leiðangur Appolló 11
farsins til tunglsins.
arnartomas@frettabladid.is
Stærðfræðiséní fallið frá
Kristjánsborgarhöll varð íbúðarhæf
árið 1740, níu árum eftir að Kaup-
mannahafnarkastali hafði verið rifinn
til að rýma fyrir höllinni. Miklu fé hafði
verið varið í byggingu hallarinnar, yfir
helmingi árstekna ríkisins, og hafði
Kristján VI Danakonungur fylgst grannt
með að hún uppfyllti kröfur hans.
Höllin var öll hin glæsilegasta, alls sex
hæðir, með kapellu og umfangsmiklum
reiðvelli í grenndinni.
Þann 26. febrúar 1794 braust út eldur
frá skorsteini í herbergi í höllinni sem
brann ásamt hallarkirkjunni og húsum
í nærliggjandi hverfum. Aðalbústaður
dönsku konungsfjölskyldunnar eyði-
lagðist en einnig glataðist mikið af
dýrmætu innbúi og listaverkum.
Árið 1803 hófst uppbygging nýrrar
hallar í frönskum keisaraveldisstíl að
tilskipan Kristjáns VII. Hægt var að
endurnýta stóran hluta veggjanna og
múra sem stóðu eldinn af sér og var
nýja höllin einnig sex hæðir. Þegar
byggingu hallarinnar lauk árið 1828
ákvað Friðrik VI hins vegar að hann
hefði ekki áhuga á að búa þar og nýtti
höllina einvörðungu til skemmtana-
halds. Friðrik VII var eini konungurinn
sem bjó í höllinni sem kviknaði aftur
í árið 1884. Þá tókst að bjarga stærri
hluta hallarinnar, en rústirnar stóðu í
um 23 ár vegna stjórnmálaátaka.
Þriðja Kristjánsborgarhöllin var
byggð á árunum 1907-1928. Höllin var
byggð í ný-barokk stíl, úr járnbentri
steinsteypu með granítklæðningu.
Höllin átti að bæði að hýsa konungs-
fjölskylduna og löggjafarvaldið. Við
uppbyggingu hallarinnar komu í
ljós rústir af köstulunum sem höfðu
þar staðið fyrir uppbyggingu fyrstu
hallarinnar og var haldin sýning sem var
opin almenningi.
Í dag hýsir höllin danska þingið
og viðburði á vegum konungsfjöl-
skyldunnar, ásamt því að vera vinsæll
ferðamannastaður. Þar er meðal ann-
ars hægt að skoða reiðvagn, hesthúsin,
kapelluna og ýmsa muni sem bjargað
var úr eldsvoðunum tveimur ásamt
nýrri listaverkum og skreytingum.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 26 . F E B R ÚA R 179 0
Kristjánsborgarhöll brann í fyrsta sinn
Katherine Johnson við störf í Langley, rannsóknarstöð NASA, árið 1966. MYND/GETTY
Eftir að hafa starfað sem
kennari og heimavinnandi
móðir hóf Johnson störf fyir
forvera NASA, NACA, þar sem
hún hafði starfsheitið „tölva“ og
vann við að reikna farbrautir
fyrir fyrstu eldflaugaferðirnar.
2 6 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT