Fréttablaðið - 29.02.2020, Side 42
Uppskriftin
sem Snædís
gefur lesendum
hér, er úr sömu
hráefnum og
kokkalands-
liðið tefldi fram
á Ólympíuleik-
unum, íslensk
bleikja með
froðusósu sem
nú er vinsæl.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANT-
ON BRINK
Mér þótti alltaf
skemmtilegra að
mæta í vinnuna og elda
en að mæta í skólann. Ég
hafði því fundið mína
hillu þótt svo ég hefði
verið blind á það lengi.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
www.kjarnafaedi.is
Inspired by
Iceland‘s best chefs
Icelandic nature
and chefs at its best!
A PROUD SPONSOR
OF THE ICELANDIC
CULINARY TEAM
Snædís Jónsdóttir er stoltur fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins. Hér á Mími þar sem hún vinnur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eftirlætismaturinn minn er íslensk kjötsúpa að hætti pabba míns á Dalvík,“ segir
Snædís Jónsdóttir, fyrirliði
íslenska kokkalandsliðsins.
Hún var ekki nema sjö ára þegar
hún var farin að dunda sér við
bakstur og eldamennsku heima á
Dalvík.
„Ég hef aldrei verið matvönd
en hins vegar alltaf verið spennt
fyrir því að smakka alls konar
mat. Mamma mín er filippseysk
og var ekkert of spennt fyrir
íslenska matnum þegar ég var
lítil en stjúppabbi minn, sem er
íslenskur, vildi sinn íslenska mat
og því var oft tvíréttað á borðum.
Ég fékk að taka þátt í matseldinni
og uppáhaldsmaturinn minn í þá
daga var fiskur í raspi sem ég bar
fram með kartöflum, hrísgrjónum
og tómatsósu,“ segir Snædís, sællar
minningar.
Hún er fædd og uppalin fyrstu
fjögur ár ævinnar á Filippseyjum
þar sem hún á pabba og fjölskyldu
sem hún heimsækir af og til.
„Ég ætlaði mér aldrei að verða
kokkur heldur fatahönnuður. Ég
byrjaði að læra fatasaum á Akur-
eyri og vann alltaf með skólanum
á sushiveitingastað í bænum. Þar
var ég dugleg að taka aukavaktir
því mér fannst gaman að vinna í
veitingabransanum. Svo kom að
því að ég flutti suður til að fara í
fatatækninám í Tækniskólanum
og sótti þá um starf á Sushi Social
að áeggjan vinnuveitanda míns á
Kung Fu Sticks & Sushi á Akur-
eyri. Ég sló til, fór í prufur og fékk
vinnuna og endaði með að vinna
þar í sex ár. Stemningin á Sushi
Social er eins og allir vita ein-
staklega skemmtileg og mér þótti
alltaf gaman að mæta í vinnuna,
fann mig flinka í því sem ég gerði,
fékk stöðuhækkun og eigand-
inn hvatti mig óspart til að fara í
kokkinn. Ég þráaðist við, sagðist
ekki geta hugsað mér að vinna við
eldamennsku það sem eftir væri
ævinnar og vann hörðum höndum
að því að sækja um háskólanám í
fatahönnun á Ítalíu,“ segir Snædís
sem hikaði þó í þeim undirbúningi
og ákvað að taka árspásu frá námi
til að hugsa sinn gang.
„Ég fór þá til fjölskyldunnar á
Filippseyjum og í fjarlægðinni
fann ég að það var eldamennskan
sem togaði í mig. Mér hafði líka
alltaf þótt skemmtilegra að mæta
í vinnuna og elda en að mæta í
skólann. Ég hlustaði því á minn
innri mann og hafði auðvitað
fyrir löngu fundið mína hillu, þótt
ég hafi verið blind á það árum
saman.“
Matarparadísin Ísland
Snædís hafði heyrt ýmsar hryll-
ingssögur um að kokkastarfið væri
alls ekki fyrir kvenfólk.
„Að sumu leyti er það rétt því
starfið er líkamlega erfitt, að
rogast um með 24 kílóa poka og
stóra potta fulla af mat. Þá hentar
vinnutíminn ekki öllum og þetta
er karlaheimur, en sem betur fer
er það að breytast og fleiri konur
að læra til kokks. Mér var strax
tekið opnum örmum og var hvött
til þess að keppa að því að komast
í landsliðið,“ segir Snædís sem
byrjaði snemma í kokkalands-
liðinu.
„Þegar ég er vel undirbúin í
keppni er ég full tilhlökkunar og
aldrei kvíðin eða taugaóstyrk. Það
skiptir líka máli að mæta til leiks
fullur sjálfstrausts. Það var sam-
Heppin að eiga kokk fyrir kærasta
Snædís Jónsdóttir er fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins sem lenti í þriðja sæti á Ólympíuleikum
landsliða á dögunum. Hana dreymdi um að verða fatahönnuður en eldamennska togaði í hana.
vinnan sem kom okkur alla leið í
verðlaunasætið nú, en líka mikill
metnaður og vilji. Landsliðið er
ungt og meðalaldurinn 24,8 ár.
Við fórum í keppnina til að búa til
góðan mat og hafa eldhúsið hreint
því það vegur stundum meira en
maturinn. Við fengum 100 stig
fyrir skipulag og það kom okkur
langt að við unnum fumlaust og af
ástríðu við matseld gómsætra rétta
í hreinu eldhúsi,“ segir Snædís.
Hún segir bragðið af matnum
svo hafa fært landsliðinu bronsið.
„Í keppnum sem þessum eru alls
konar reglur. Það þarf að huga að
árstíðabundnu hráefni, nútíma-
tækni þarf að sjást á diskinum
og rétturinn þarf að vera fínn og
flottur en þó ekki of f lókinn því
þá getur bragðið farið að klikka og
eldhúsið orðið skítugra en ella. Því
er í mörg horn að líta, en ef maður
hannar rétt sem er fallegur, góður
og meikar sens er hann eiginlega
algjör negla,“ segir Snædís.
Hún segir Ísland verða æ vin-
sælla til matarferðamennsku.
„Hér eru mjög flottir veitinga-
staðir sem hafa hlotið mikla
athygli, sem og margir áhugaverðir
kokkar sem hafa búið til ótrúlega
metnaðarfullan og flottan mat og
matstaði. Íslenska hráefnið er líka
einstakt og ferskt. Íslendingar eru
snobbaðir þegar kemur að hráefni.
Þeir vilja hágæða vörur, sætta sig
ekki við neitt minna og ferðamenn
njóta góðs af kröfum heima-
manna. Þá eykur hróður lands-
liðsins enn á orðspor Íslendinga
þegar kemur að eldamennsku,“
segir landsliðskokkurinn Snædís,
sem þó eldar aldrei heima.
„Nei, það er það leiðinlegasta
sem ég geri. Þegar ég á frí panta
ég frekar mat eða fer út að borða.
Ég er þó heppin að kærastinn
minn, Sigurður Helgason, er mat-
reiðslumaður líka og fyrrverandi
landsliðskokkur og hefur stundum
gaman af því að gleðja mig með
góðum mat heima.“
Hægelduð bleikja með
sítrussalati, fennel og
fennelsósu.
Uppskrift fyrir 4 í forréttastærð
400-500 g bleikja
100 g sykur
100 g salt
10 g fennelfræ
Rifinn börkur af einni appelsínu
Blandið saman salti, sykri, fræjum
og appelsínuberki. Dreifið því
vel yfir bleikjuna og látið ligga í
20 mínútur. Skolið af með vatni
og eldið bleikjuna á 48°C í 10
mínútur.
Fennelsósa
250 g fennelsafi
1stk. laukur
1stk. fennel
50 g fennelfræ
250 g rjómi
Saxið lauk og fennel smátt og
svitið í potti. Setjið safann út í og
sjóðið smá niður. Bætið rjóma
út í og sjóðið sósuna niður í 300
grömm. Maukið saman með töfra-
sprota og sigtið í gegnum sigti.
Borið fram með blóðappelsínu,
appelsínulaufum og þunnt skornu
fenneli.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RKOKKALANDSLIÐIÐ