Fréttablaðið - 03.12.2019, Page 19
410 4000landsbankinn.isLandsbankinn
Lægra lántökugjald við
kaup á vistvænum bílum
Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald
við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi
við fjármögnun bíla sem skil greindir eru sem vistvænir.
4 BÍLAR 3 . D E S E M B E R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R
BMW hefur látið frá sér tækniupp-
lýsingar um nýja R18 hjólið sem
verður búið stærsta boxer mótor
sem sést hefur í mótorhjóli. R18
hjólið var sýnt sem tilraunahjól
á EICMA-sýningunni en einnig
á bílasýningunni í Los Angeles.
Vélin er 1.802 cm3 og er með
tveimur yfirliggjandi knastásum
hvorum megin. Hver stimpill er
107 mm breiður en vélin er engin
léttavara og vegur 110 kg ein og
sér. Hún skilar 91 hestafli og það
sem er meira um vert, 158 New-
tonmetra togi við 3.000 snúninga.
BMW hefur ekki gefið upp
nákvæmlega hvenær þeir hyggjast
kynna hjólið í framleiðsluútgáfu
annað en að segja „einhvern tíma
árið 2020“.
Fer BMW R18
í framleiðslu á
næsta ári?
Enfield er ekki fyrst indverski
framleiðandinn til að stefna að
rafvæðingu því að Bajaj Auto
og KTM hafa hafið samstarf um
þróun rafhjóla fyrir markaðinn í
Austurlöndum fjær.
Royal Enfield mótorhjólamerkið
er elsti starfandi mótorhjóla-
framleiðandi heimsins, en Royal
Enfield hefur framleitt mótorhjól
óslitið síðan 1901. Merkið hefur
átt ákveðnum vinsældum að
fagna undanfarin ár þrátt fyrir
gamaldags útlit en það hefur
einmitt verið mikið í tísku innan
mótorhjólaheimsins undanfarin
misseri. Nú stefnir hins vegar í að
merkið færi sig inn í 21. öldina því
að byrjað er að þróa rafmótorhjól
hjá indverska framleiðandanum.
Þegar er búið að smíða frumgerð
fyrsta hjólsins segir Vinod Dasari,
forstjóri Royoal Enfield. „Tækni-
setur okkar í Bretlandi hefur þegar
sett rafmótor í eitt af framleiðslu-
hjólum okkar og það er frábært. Ég
hef keyrt það sjálfur,“ sagði Vinod
Dasari. Hann vildi þó ekki láta
hafa eftir sér um hvaða gerð Royal
Enfield mótorhjóls væri að ræða
en sagði að enn væru 2-3 ár að slíkt
hjól færi í framleiðslu. Enfield er
ekki fyrst indverski framleiðand-
inn til að stefna að rafvæðingu því
að Bajaj Auto og KTM hafa hafið
samstarf um þróun rafhjóla fyrir
markaðinn í Austurlöndum fjær.
Þar eru mótorhjól í milljónatali á
götunum og menga í samræmi við
það og þess vegna þarf þessi áhugi
ekki að koma á óvart.
Royal Enfield stefnir að rafvæðingu
Royal Enfield vakti athygli á EICMA-sýningunni meðKX tilraunahjólinu og vona margir að það fari í framleiðslu.
BMW R18/2 var sýnt við mikla
hrifningu gesta á bílasýningunni
í Los Angeles fyrir stuttu.