Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 5

Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 5    Fyrsta barn ársins er stúlka sem kom í heiminn á Akranesi laust eft- ir kl. 6:00 á nýársmorgun. Stúlkan vó 3.654 grömm og er 51 sentímetri að lengd. Foreldrar stúlkunnar eru Sigríður Hjördís Indriðadóttir frá Kjaransstöðum í Hvalfjarðarsveit og Hannes Björn Guðlaugsson, bú- sett í Reykjavík. Stúlkan er ekki að- eins fyrsta barn ársins heldur einnig fyrsta barn foreldra sinna. Þau Sig- ríður og Hannes segja að litla stúlk- an hafi látið bíða eftir sér. „Settur dagur var 23. desember, þannig að við áttum alls ekki von á að eignast fyrsta barn ársins. Fæð- ingin gekk vel en dagarnir á undan voru erfiðir, ég var með stanslausa verki í fjóra daga áður en hún fædd- ist,“ segir Sigríður. „Við komum hingað á fæðingadeildina á Akra- nesi 30. desember og fæðingin hófst síðan á gamlárskvöld um áttaleyt- ið þegar belgurinn var sprengdur. Stúlkan kom í heiminn kl. 6:03 á ný- ársmorgun og við stefnum á að fara heim með hana seinni partinn í dag [miðvikudag, innsk.],“ segir Hann- es. „Það verður gott að koma heim en það er búið að vera algjör draum- ur að vera hérna á deildinni. Hér er ekkert stress, við fáum að vera hér í rólegheitum eins lengi og við þurf- um og ljósmæðurnar hugsa rosalega vel um okkur. Þetta er algerlega frá- bær þjónusta sem við erum búin að fá. Við vissum að hingað væri gott að koma til að fæða barn og sjáum ekki eftir því að hafa gert okkur ferð,“ segja foreldrarnir ánægðir. 316 börn fædd á árinu Alls fæddust 316 börn á fæðinga- deild Heilbrigðisstofnunar Vestur- lands á Akranesi á árinu 2018 og hafa fæðingar ekki verið fleiri síðan 2010 þegar 358 börn komu í heiminn. „Við ætlum að slá þetta met á árinu 2019,“ segir Hafdís Rúnarsdóttir ljósmóðir létt í bragði. Til saman- burðar við þessar tölur má nefna að meðaltal síðustu fimm ára eru 221,4 fæðingar. Hafdís segir að fæðing- um á deildinni hafi fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Ástæðuna segir hún einkum vera þá að fleiri konur geri sér ferð úr Reykjavík til að fæða á deildinni en áður var. „Við erum hér með sterka fæðingadeild sem veitir góða þjónustu. Sjúkrahúsið á Akranesi er eina sjúkrahúsið á lands- byggðinni fyrir utan sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem er skurðstofa og kvensjúkdómalæknir, sérfræðingur í fæðingahjálp og svæfingalæknir eru á bakvakt allan ársins hring. Við get- um því veitt konum alla þá þjónustu sem þær hugsanlega þurfa við fæð- ingu barna, svo sem keisaraskurð, mænudeyfingu, gangsetningu, sog- klukku og fleira. Aðeins sendum við konur á Landspítalann ef börn þurfa að fara á vökudeild, en það er ekki algengt. Einnig reynum við að gera vel við fólk af landsbyggðinni sem kemur langt að. Því stendur til boða gistiaðstaða á meðan beðið er eftir fæðingu. Þetta er að spyrjast út, konur vilja koma hingað alls stað- ar af landinu til að fæða börn sín og við erum auðvitað hæstánægð með það,“ segir Hafdís Rúnarsdóttir. kgk Fyrsta barn ársins fæddist á Akranesi Meira en þrjú hundruð fæðingar á árinu Fyrsta barn ársins í er stúlkubarn sem kom í heiminn á Akranesi á nýársmorgun. Foreldrar hennar eru Sigríður Hjördís Indr- iðadóttir og Hannes Björn Guðlaugsson, búsett í Reykjavík. Hér eru foreldrarnir ásamt dagsgamalli dóttur sinni í gærmorgun, miðvikudaginn 2. janúar. Stúlkan var södd og sæl og veifaði framan í heiminn þegar blaðamann bar að garði, enda nýbúin að fá brjóst. SK ES SU H O R N 2 01 9 Jólatré sótt 8.-9. janúar Akraneskaupstaður mun sjá um hirðingu jólatrjáa dagana 8.-9. janúar og er það í boði fyrir alla bæjarbúa. Eina sem þarf að gera er að setja trén út við götu. Ath. eingöngu jólatré verða tekin, ekki annað sorp. Akraneskaupstaður hvetur bæjarbúa til að ganga vel um og hreinsa upp eftir flugelda, sprengjur, kökur og fleira sem fellur til eftir nýárs- og þrettándagleði. SK ES SU H O R N 2 01 9 Fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. janúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á www.facebook.com/akraneskaupstadur. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, laugardaginn • 5. janúar kl. 10:30 Bæjarmálafundir Samfylkingarinnar og Framsókn og • frjálsra falla niður. Bæjarstjórnarfundur www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.