Skessuhorn - 03.01.2019, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 201914
Frá því útgáfa Skessuhorns hófst
fyrir tuttugu árum hefur blaðið ár-
lega gengist fyrir vali á Vestlend-
ingi ársins. Valið fer þannig fram
að kallað er eftir tilnefningum íbúa
landshlutans um þá sem þeim þykja
verðugir til að hljóta þetta sæmdar-
heiti fyrir árangur í leik eða starfi.
Vestlendingar ársins 2018 eru eig-
endur fjölskyldufyrirtækisins Guð-
mundar Runólfssonar hf. í Grund-
arfirði. Fyrirtækið stendur nú fyrir
uppbyggingu á fullkomnustu fisk-
vinnslu landsins í sínum heimabæ.
Í því verkefni leggur fjölskyldan allt
í sölurnar, til að tryggja að öflugur
sjávarútvegur verði í Grundarfirði
um ókomna tíð. Eigendur G.Run
eru börn Guðmundar Runólfsson-
ar og Ingibjargar S. Kristjánsdótt-
ur, systkinin Runólfur, Kristján, Páll,
Ingi Þór, Guðmundur Smári, María
og Unnsteinn, auk allra maka þeirra
og Mósesar Geirmundssonar frænda
þeirra. Svanur Guðmundsson, einn
af þeim systkinum, gekk úr skafti
fyrirtækisins á sínum tíma og hvarf
til annarra starfa. Skessuhorn hitti
eigendur G.Run á þriðja degi jóla og
færði þeim forláta vasa úr verslun-
inni Módel á Akranesi að gjöf. Systk-
inin Runólfur, Kristján, Páll, Smári,
María og Unnsteinn tóku við viður-
kenningunni fyrir hönd eigendanna,
en Móses og Ingi Þór gátu ekki verið
viðstaddir. Runólfur, Smári og Unn-
steinn tóku síðan að sér að ræða við
blaðamann fyrir hönd eigendanna.
Samkomulagið gott
„Það sem við erum hvað stoltust af
og það sem fólk er almennt hvað
forvitnast um er hvernig svona hóp-
ur getur unnið saman þetta lengi.
Við höfum lagt ævistarf okkar og
alla fjármuni í þetta fyrirtæki. Við
sem erum eldri höfum verið eig-
endur að fyrirtækinu frá því upp úr
1970 og síðan bættust yngri systkin-
in við eitt af öðru,“ segir Smári. „Við
höfum gert þetta saman. Við erum
að reka alvöru fyrirtæki og það er
stundum tekist á um málin. En það
er bara þannig að meirihlutinn ræð-
ur og við höfum sem betur fer haft
þann þroska til að geta látið hlutina
ganga upp,“ segir Runólfur. „Þeg-
ar pabbi fékk fyrsta togarann, Run-
ólf, í ársbyrjun 1975 vorum við fimm
bræður um borð. Runólfur varð síð-
an fljótlega skipstjóri, Kristján vél-
stjóri en við yngri hásetar, bátsmenn
og netamenn eftir efnum og ástæð-
um. Síðan færðumst við í land eft-
ir menntun og getu og þess háttar.
En á svona skipi þá er það skipstjór-
inn sem ræður,“ segir Smári og við
það sama blikkar Runólfur blaða-
mann stríðnislega. „Þannig ólumst
við upp. Það er bara einn skipstjóri
og hann ræður. En í svona fyrirtæki
þá ákveður stjórnin hvað skal gera.
Það hefur gengið með ágætum og
menn hafa þann þroska til að virða
ákvarðanir meirihuta stjórnarinnar.
Auðvitað verða menn stundum sár-
ir og reiðir, því stundum verða menn
undir. En þá verður maður bara að
sætta sig við það. Við kunnum alveg
að taka því, en langoftast er þó sátt
um málin. Í 99% tilfella erum við
sammála hvaða leið skuli farin,“ seg-
ir Smári.
Óbreytt staða
ekki í boði
Sú var einmitt raunin þegar ákveðið
var að ráðast í þessa framkvæmd sem
nú er á lokametrunum. Eigendurn-
ir voru sammála um að byggja þyrfti
nýja vinnslu. Laugardaginn 2. júní
2017, á sjómannadagshátíðarhöld-
um í Grundarfirði, var tekin tákn-
ræn skóflustunga að nýrri fiskvinnslu
G.Run. Sjötíu grundfirsk börn tóku
sér þá skóflu í hönd og rufu jörð í
fyrsta sinn. Runólfur settist síðan
upp í beltagröfu í byrjun desemb-
er sama ár og byrjaði að moka fyr-
ir grunninum. Þar með voru eigin-
legar framkvæmdir hafnar. Það var
síðan fyrir rétt rúmu ári, 22. des-
ember 2017, sem skrifað var undir
samning við verktaka um byggingu
nýju fiskvinnslunnar. Rúmu ári síð-
ar hefur mikið vatn runnið til sjáv-
ar. Risin er rétt rúmlega 2700 fer-
metra fiskvinnsla sem verið er að
leggja lokahönd á þessa dagana. „Nú
eru að vera komin tvö ár síðan þessi
ákvörðun var tekin. Það var annað
hvort að hrökkva eða stökkva, fara í
þessa fjárfestingu eða hætta. Óbreytt
staða var ekki í boði. Húsið var orðið
gamalt og að mörgu leyti úrelt. Síð-
an hafa orðið ævintýralegar breyt-
ingar á mörgu í fiskvinnslu undan-
farin ár,“ segir Smári. „Við vorum í
rauninni orðin alveg heft hvað varð-
ar pláss og tækni, hætt að geta af-
greitt hluta af þeim pöntunum sem
okkur bárust því við gátum ekki
verkað eftir óskum kaupenda,“ segir
Unnsteinn. „Það var allt handskorið,
þannig að við vorum ekki með nógu
góða nákvæmni-bita. Við sáum að
þróunin var að færast yfir í skurðar-
vélarnar. Strax árið 2014 byrjuðum
við að tala við Marel um skurðarvél-
ar. Þá vorum við búin að átta okkur
á að við yrðum að fara að gera eitt-
hvað. Í september 2015 koma síðan
Flexivélarnar til sögunnar og breyta
öllu. Þannig að 2016 erum við byrj-
uð á fullu að teikna uppdrátt að nýrri
vinnslu miðað við þessar vatnsskurð-
arvélar og að geta unnið tvær sortir í
einu. Síðan þróaðist þessi uppdrátt-
ur í lausfrysta og fullvinnsluna sem
nú er að verða tilbúin hérna niðri í
húsinu,“ bætir Unnsteinn við.
Kom aldrei til
greina að hætta
Bræðurnir minntust á að það hefði
annað hvort verið að hrökkva eða
stökkva. Kom aldrei til greina að
hrökkva, selja útgerð og aflaheimild-
ir og flytja bara á sólarströnd? Það
stendur ekki á svörum. „Nei,“ segja
þeir allir í kór. „Ég held að það hafi
ekki hvarflað að nokkrum einasta
manni,“ bætir Smári við. „Staða fyr-
irtækisins breyttist þónokkuð 2016,
þegar við unnum mál gegn Lands-
bankanum. Við höfðum ofgreitt
Eigendur Guðmundar Runólfssonar hf. eru Vestlendingar ársins
„Fjölskyldan leggur allt undir og rúmlega það“
Systkinin Runólfur, Guðmundur Smári, Kristján, Páll, María og Unnsteinn Guðmundsbörn tóku við viðurkenningunni úr hendi blaðamanns Skessuhorns fyrir hönd
eigenda G.Run. Þau eru eigendur fyrirtækisins ásamt Inga Þór bróður sínum, Móses Geirmundssyni og mökum.
Systkinin öll saman komin á góðri stundu á liðnu sumri þegar dóttir Maríu gifti sig. Bræðurnir Runólfur, Kristján, Páll, Ingi Þór, Svanur, Guðmundur Smári og Unnsteinn
halda á Maríu systur sinni.