Skessuhorn - 03.01.2019, Síða 15
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2019 15
bankanum verulega vexti frá hruni
og fengum þá endurgreidda. Lausa-
fjárstaða fyrirtækisins var mjög góð
eftir það. Þetta var rúmur milljarð-
ur króna auk vaxta sem við fengum
endurgreitt, samtals tæplega 1400
milljónir,“ segir Smári. „Ef sú leið-
rétting hefði ekki orðið þá hefðum
við aldrei getað farið í þetta verk-
efni,“ segir Unnsteinn. Kostnaður-
inn við byggingu nýrrar fiskvinnslu
G.Run í Grundarfirði er enda um
það bil andvirði endurgreiðslunn-
ar frá Landsbankanum. „Upphaf-
lega sáum við fyrir okkur að byggja
1200 til 1400 fermetra við þá 1400
fermetra vinnslu sem þegar var til
staðar. En þróunin endaði í 2700
fermetrum, svoleiðis að verkefnið
var helmingi stærra en við ætluðum í
upphafi,“ segir Smári. „Ástæðan fyr-
ir því eru einfaldlega allar nútíma-
kröfur, bæði hvað varðar vinnsluna
sjálfa og síðan auðvitað slökkvikerfi,
brunavarnir, lagnakerfi og fleira,“
segir Unnsteinn. „En við höfum
sagt alveg kinnroðalaust að hér verð-
ur fullkomnasta fiskvinnsla á Íslandi
með búnaði sem uppfyllir allar kröf-
ur nútímans,“ segir Smári og bræður
hans taka undir. „En það voru þess-
ar vatnsskurðarvélar sem leiddu okk-
ur út í verkefnið. Við sáum að ef við
ætluðum ekki að vera með í þeirri
tækni þá yrðum við ekkert með yfir-
leitt. Leiðréttingin frá bankanum
gerði okkur síðan mögulegt að ráð-
ast í þessa framkvæmd. Þetta eru tvö
lykilatriði í aðdraganda þessa verk-
efnis,“ segir Unnsteinn.
Stóraukin afköst
Með tilkomu nýju fiskvinnslunnar
er ætlunin að auka afköstin um milli
50 og 100 prósent. Til að svo megi
verða þarf fyrirtækið að kaupa fisk
á markaði, í það minnsta fyrst um
sinn. „Við getum sjálf aflað hráefnis
til að mæta 25-30% af þessari aukn-
ingu sem við gerum ráð fyrir að ná
með nýju vinnslunni. Síðan horfum
við til fiskmarkaðanna á Nesinu með
það sem upp á vantar,“ segir Smári.
„Það eru milli 20 og 25 þúsund tonn
af fiski flutt af þessu svæði óunnin á
hverju ári,“ segir Runólfur. „Okkar
meginmarkmið er að ná stærri hluta
af þeim afla sem er seldur hér á fisk-
mörkuðum og trúum því að þessi
verksmiðja verði samkeppnishæf,“
segir Smári og bætir því við að aukn-
ing í afköstum og gæðum muni með
tíð og tíma borga upp fjárfestinguna.
„Á hverjum morgni fáum við pant-
anir sem segja til um að bitinn þurfi
að vera 22 sentímetrar og við höfum
svigrúm um þyngd frá 110 grömm-
um upp í 140 grömm. Þetta gátum
við ekki afgreitt með handskurði,
eins og við vorum að gera,“ seg-
ir Runólfur. Fyrir vikið segir Unn-
steinn að flakið hafi ekki nýst nógu
vel í verðmætustu pakkningarnar.
„En núna ákveða vélarnar hvernig sé
best að skera úr flakinu þannig að fá-
ist sem best hlutfall af dýrum hnakka
og vélarnar reikna út hvernig hvert
flak getur skilað bestu meðalverði.
Einnig horfum við til betri nýting-
ar með nýju pökkunarlínunum. Þær
eiga að skila minni og stöðugari yfir-
vigt,“ segir hann. „Við þurfum allt-
af að skila yfirvigt til að þriggja kílóa
kassinn standi vigt erlendis út af
dripli úr fiskinum. Starfsmaðurinn
sem er á vigtinni hverju sinni setur
of mikið í hvern kassa, umfram þessa
yfirvigt. Tæknin er bara mun ná-
kvæmari en mannshöndin og sér til
þess að það fari bara akkúrat þessi yf-
irvigt í hvern kassa,“ segir Runólfur.
„Að sögn tæknimannanna verður frá-
vikið á yfirvigtinni núna plús/mínus
tvö, þrjú grömm. En mannshöndin
og -augað getur ekki verið nákvæm-
ara en 30 til 50 grömm til eða frá,“
segir Smári. „Allt saman hefur þetta
gert það að verkum að við höfum
verið að fá allt að einni evru minna
fyrir kílóið en ef við hefðum getað
skorið af nákvæmni,“ segir Unn-
steinn. „Í nýju vinnslunni ættum við
að geta pakkað í milli fjögur og fimm
þúsund kassa á góðum degi. Það gef-
ur því augaleið að nákvæmni í vigt-
un skiptir ævintýralega miklu máli,“
segir Smári.
Reikna með að
fjölga fólki
Spurðir hvort breytingar séu í vænd-
um með tilkomu nýju vinnslunnar
segja bræðurnir hugmyndir uppi um
að koma á vaktakerfi í vinnslunni.
„Þetta er geysilega dýr fjárfesting og
mjög dýrt að láta hana standa meiri-
hluta ársins ónýtta, því hér er bara
unnið í átta tíma á dag, fimm daga
vikunnar. Við erum því að velta fyrir
okkur möguleikanum á að setja upp
aðra vakt í húsinu. Hafa fullmannað
vinnslu á dagkvagt og bæta við kvöld-
vakt þar sem yrði þá kannski keyrð
önnur línan, hálfmönnuð vakt. En
þetta eru nú bara hugmyndir á þessu
stigi málsins,“ segir Smári. „Búnað-
urinn er þannig settur upp að það er
mögulegt að keyra á hálfri vakt, ein-
faldari vinnslu með 10 til 15 mann-
eskjum,“ bætir Unnsteinn við. „Þetta
hús verður fullkomnasta fiskvinnsla á
landinu og hér verða tvær sjálfstæðar
vinnslulínur, sem er frekar óvanalegt
því yfirleitt eru menn bara með eina
línu í húsinu,“ segir Smári. „Nú get-
um við keyrt annars vegar fyrir bol-
Þannig leit húsið út á fallegum degi í lok nóvember, unnið að kappi bæði innan húss og utan.
Séð inn í vinnslusal nýrrar fiskvinnslu G. Run í Grundarfirði sem stefnt er að því að setja í gang í fyrsta sinn nú um miðjan mánuðinn. Verður vinnslan sú fullkomnasta á
landinu.
Framhald á næstu síðu