Skessuhorn


Skessuhorn - 22.05.2019, Síða 26

Skessuhorn - 22.05.2019, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 22. MAí 201926 Delft er borg í hollenska héraðinu Suður-Hollandi, á milli Rotter- dam og Den Haag. Delft, sem tel- ur um 100 þúsund íbúa. Borgin hefur þróast í að vera næstvinsæl- asta ferðamannaborgin í Hollandi á eftir Amsterdam, enda er mið- borgin ægifögur. Kirkjan Nieuwe Kerk er aðalgreftrunarstaður hol- lensku konungsfjölskyldunnar. í Delft er frægur tækniháskóli með nemendum allsstaðar úr heimin- um. Auk þess er þar fræg postulíns- verksmiðja. Flogið var til Schiphol flugvall- ar við Amsterdam. Þar tók á móti okkur Helga Stína sem rekur ferða- þjónustuna „Iceland unwrapped-by Helga Stína“ í Delft ásamt Mike, manni sínum. Frá flugvellinum var ekið í langferðabifreið til Delft. Við gistum á skemmtilegu hót- eli í miðbænum Hótel De Plataan. Ekki er leyfilegt að aka langferða- bifreiðum inn í miðbæjarkjarnann svo við urðum að fara fótgangandi með töskurnar í eftirdragi nokkra vegalengd. Eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir á hótelinu og hvílast ögn var farið í gönguferð yfir að veitingastað og þar snæddur kvöldverður. Daginn eftir var farið í göngu- ferð um miðbæjarkjarnann með leiðsögn innfæddra leiðsögumanna sem fræddu okkur um þessar sögu- frægu byggingar sem þarna standa. Miðbærinn er með mörgum síkjum og steinlögðum götum. Síkin voru notuð sem flutningaleiðir þegar kaupskip þeirra komu með varn- ing frá austurlöndum og Kína. Við gengum framhjá tveimur stórum kirkjum. Gömlu kirkjunni og nýju kirkjunni, nýja kirkjan var frá u.þ.b. 1620. Gamla kirkjan var reist á sík- isbakka þannig að turninn fór að halla við smíðina svo styrkja þurfti undirstöður hans við bygginguna. Fyrir framan nýju kirkjuna er stórt torg og mikið mannlíf. Þarna ákvað kórinn að syngja tvö lög til að aug- lýsa tónleikana. Söng kórinn fyrst gospel lagið Nothing I can do og um leið og söngnum lauk hringdu kirkjuklukkurnar. Um kvöldið söng kórinn undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur í Borg- arbókasafninu í Delft nokkur lög ásamt hollenska kórnum Blue Vo- cals. Einnig sungu kórarnir saman tvö lög. Eitt hollenskt og íslenska lagið „Krummi svaf í klettagjá“. Samsöngurinn tókst ótrúlega vel þrátt fyrir óþjál tungumál. Laugardagurinn var frjáls fólki til að skoða mannlíf og byggingar. Þennan dag var matvælamarkaður í miðbænum. Þar var margt forvitni- legt og lýsti matarmenningu þeirra vel. Auk þess var antik markaður í miðbænum. Þar var margt forvitni- legra muna. Seinni partinn fórum við í sigl- ingu um síkin á litlum bátum með leiðsögn heimamanna. Þetta var virkilega skemmtileg upplifun. Á sunnudeginum voru tónleikar í De Genestet kirkju í Delft. Ynd- isleg kirkja með mjög áhugaverða sögu sem aðallega hefur verið not- uð til tónleikahalds. Þarna voru sungin 12 lög við mjög góðar und- irtektir og þurfti kórinn að syngja 2 aukalög. Eftir tónleikana var farið á veit- ingahús og snædd þríréttuð máltíð. Daginn eftir var svo flogið heim eftir mjög skemmtilega ferð til Delft. Eftir situr minningin um góðar móttökur, fallegan bæ og inndælt fólk. Júlíus Már Þórarinsson. Ljósm. Guðni Hannesson. Svanir í söngferðalag til Hollands Karlakórinn Svanir á Akranesi er nýlega kominn úr söngferðalagi til Hollands. Meðfylgjandi er ferðalýsing Júlíusar Más Þórarinssonar myndskreytt með ljósmyndum Guðna Hannessonar.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.