Skessuhorn - 13.11.2019, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 20192
Við minnum á Matarhátíð á Hvann-
eyri laugardaginn 23. nóvember. Tak-
ið daginn frá!
Á morgun er útlit fyrir norðlæga átt
3-10 m/s og léttskýjað en lítilshátt-
ar él norðaustast á landinu. Frost
0-6 stig. Vaxandi sunnanátt vestast á
landinu um kvöldið og þykknar upp.
Á föstudag er spáð hvassri sunnanátt
með talsverðri rigningu og það hlýn-
ar, en slydda eða snjókoma verður í
fyrstu á Norðurlandi. Vestlægari átt
með deginum, fyrst vestanlands um
hádegi, með skúrum eða éljum og
það kólnar aftur. Á laugardag verð-
ur suðvestlæg átt, 5-13 m/s og él, en
léttskýjað austanlands. Víða frostlaust
við vesturströndina en annars fröst
1-7 stig og kaldast í innsveitum norð-
austanlands.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns hvort lesendur þekki áttirnar
þar sem þeir eru staddir hverju sinni.
Lesendur eru almennt frekar áttvís-
ir en 45% fullyrtu að þeir þekktu allt-
af áttirnar hvar sem þeir væru stadd-
ir og 32% sögðust þekkja þær sums-
staðar. 23% svöruðu því að þeir
þekktu ekki áttirnar, eru semsé frem-
ur áttavilltir.
Í næstu viku er spurt:
Lifir þú til að borða eða borðar þú
til að lifa?
Blíða SH sökk norður af Langeyjum
á Breiðafirði á þriðjudaginn í síðustu
viku og var þremur mönnum komið
til bjargar, en tæpt stóð það. Allir þeir
sem komu að björgun þei
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Mæla
blóðsykurinn
AKRANES: Laugardaginn
16. nóvember klukkan 13-16
mun verða boðið upp á fría
blóðsykursmælingu í Bónus-
húsinu við Smiðjuvelli á Akra-
nesi. Mælingin er í boði Apó-
teks Vesturlands, Lionsklúbb-
anna á Akranesi og Félags syk-
ursjúkra á Vesturlandi. Fólk
er hvatt til að nýta sér þetta.
-mm
Útafakstur við
Sanddalsá
BORGARFJ: Umferðar-
slys varð við Sanddalsá fyr-
ir miðnætti miðvikudaginn 6.
nóvember. Ökumaður missti
stjórn á bifreið sinni með
þeim afleiðingum að hún lenti
á vegriði. Þaðan kastaðist bíll-
inn langt út fyrir veginn og
er mikið skemmdur. Að sögn
lögreglu er ökumaðurinn ekki
talinn alvarlega slasaður, en
hlaut þó einhver meiðsli af.
Hann var fluttur með sjúkrabíl
á heilsugæslustöðina í Borgar-
nesi til læknisskoðunar. Lög-
regla grunar ökumanninn um
að hafa verið undir áhrifum
ávana- og fíkniefna þegar slys-
ið varð og var hann því hand-
tekinn. Hann er einnig grun-
aður um að hafa ekið án bíl-
beltis, að sögn lögreglu. -kgk
Ekki lagt gang-
stéttarmegin
BORGARNES: Á fundi
byggðarráðs Borgarbyggðar í
síðustu viku var kynnt minnis-
blað sviðsstjóra skipulags- og
framkvæmdasviðs um umferð-
aröryggi í eldri hluta Borgar-
ness. Þar er lagt til að óheim-
ilt verði að leggja bifreiðum
og öðrum ökutækjum gang-
stéttarmegin á eftirförnum
götum í Borgarnesi: Böðvars-
götu, Gunnlaugsgötu, Kjart-
ansgötu, Skallagrímsgötu og
Þorsteinsgötu. „Ástæða þess-
arar tillögu er hve erfitt er að
moka viðkomandi götur þeg-
ar bílum er lagt beggja vegna á
þeim,“ segir í bókun frá fund-
inum. Byggðarráð samþykkti
tillöguna og leggur þá ákvörð-
un fyrir sveitarstjórn til stað-
festingar.
-mm
Í tilefni þess að við bændur á Snorrastöðum höfum tekið nýtt fjós í notkun, ætlum við að hafa
opið hús laugardaginn 16. nóv nk. frá kl. 14-18.
Aðilar frá FB og BM Vallá verða á staðnum. Einnig verður boðið upp á léttar veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Snorrastaðir opið hús
Á Kirkjuþingi í síðustu viku var
ákveðið að nafn á sameinuðu
prestakalli sunnan Skarðsheiðar
verður Garða- og Saurbæjarpresta-
kall. Að sögn séra Þráins Haralds-
sonar sóknarprests tekur breytingin
gildi strax og auglýsing hefur birst í
Lögbirtingablaðinu í þessari viku.
Í Garða- og Saurbæjarpresta-
kalli eru fjórar kirkjur; Akranes-
kirkja, Hallgrímskirkja í Saurbæ,
Leirárkirkja og Innra-Hólmskirkja.
Í sókninni eru ríflega átta þúsund
íbúar, en 78% þeirra eru skráðir í
Þjóðkirkjuna sem er töluvert hærra
hlutfall en á landinu öllu þar sem um
68% eru nú skráð. Auk séra Þráins
hefur Jón Ragnarsson gegnt starfi
afleysingaprests síðan í fyrrahaust.
Tvær stöður presta við Garða- og
Saurbæjarprestakall voru nýverið
auglýstar lausar til umsóknar, en
frestur til að sækja um rennur út 12.
desember næstkomandi. mm
Sérstakur ráðgjafi og sáttasemj-
ari hefur verið ráðinn til að miðla
málum milli kennara og skólastjóra
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Þetta kemur fram á vef Kenn-
arasambands Íslands á föstudag.
Þar var greint frá því fyrir helgi að
kennarar við FVA hafi hafnað sam-
starfi við núverandi skólameistara
og myndu eingöngu sinna kennslu-
skyldum og samstarfi við nemend-
ur þar til nýr skólameistari hef-
ur verið skipaður, eins og félags-
fundur Kennarafélags FVA ályktaði
um 21. október síðastliðinn. Áður
höfðu kennararnir lýst vantrausti
á núverandi skólameistara, eins og
áður hefur verið greint frá í Skessu-
horni.
Í frétt á vef KÍ kemur fram að
Guðjón Hreinn Hauksson, formað-
ur Félags framhaldsskólakennara
og Ægir Karl Ægisson, formaður
Félags stjórnenda í framhaldsskól-
um, fagna því að nú hafi verið ráð-
inn sáttasemjari til að miðla mál-
um. Sömuleiðis hrósa þeir kennur-
um, stjórnendum og skólameistara
skólans fyrir að halda fagmennsku
í forgrunni og gera nú aftur atlögu
að samningum eftir erfiðar deilur.
„Um leið og formenn vona innilega
að góður árangur hljótist af sátta-
umleitunum ber líka að fagna því
að líklega fer óvissu um stjórnun
skólans á næsta skipunartímabili
skólameistara að ljúka,“ segir á vef
KÍ, en viðtöl við umsækjendur um
stöðu skólameistara eru hafin. Það
hljóti því að skýrast fljótlega hver
verði næsti skólameistari FVA.
kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk.
Hallgrímskirkja í Saurbæ.
Heitir nú Garða- og Saurbæjarprestakall
Sáttasemjari ráðinn til að miðla málum
nýir sóknaráætlanasamningar við
átta landshlutasamtök sveitarfélaga
voru undirritaðir í gær. Fulltrúar
landshlutasamtakanna undirrituðu
samningana í ráðherrabústaðnum
við hlutaðeigandi ráðherra. Grunn-
framlag ríkisins til samninganna
árið 2020 nemur 716 milljónum
króna en með viðaukum og fram-
lagi sveitarfélaga nema framlög alls
929 milljónum króna.
Samningarnir byggja á lög-
um um byggðaáætlun og sókn-
aráætlanir og gilda til fimm ára,
2020-2024. Markmið laganna er
að efla byggðaþróun og auka sam-
ráð milli ráðuneyta á sviði byggða-
mála, innan hvers landshluta og
milli stjórnsýslustiga, jafnframt að
færa til sveitarstjórna aukna ábyrgð
á sviði byggða- og samfélagsþró-
unar. Sóknaráætlanir landshluta
eru þróunaráætlanir sem fela í sér
stöðumat viðkomandi landshluta,
framtíðarsýn, markmið og aðgerðir
til að ná þeim markmiðum. Mark-
miðið er að ráðstöfun þeirra fjár-
muna sem varið er til verkefna í
einstökum landshlutum á sviði
samfélags- og byggðamála byggi á
áherslum heimamanna. Fyrir hönd
Vesturlands ritaði Eggert Kjartans-
son formaður stjórnar SSV undir
samninginn.
mm
Skrifað undir samninga um
sóknaráætlanir landshluta