Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 20196
Umferðarmál
áberandi
VESTURLAND: Eins og svo
oft áður voru umferðarmál áber-
andi hjá Lögreglunni á Vestur-
landi í liðinni viku. Hraðakst-
ur var áberandi og ekki í fyrsta
sinn sem sú staða er uppi. Til að
mynda var einn ökumaður sekt-
aður um 50 þúsund krónur þeg-
ar hann var mældur á 114 km/
klst. á Vesturlandsvegi við Galt-
arvík, þar sem hámarkshraði
er 90 km/klst. Segir lögregla
brot sem þetta dæmigert fyrir
þau fjölmörgu hraðakstursbrot
sem framin eru í viku hverri.
Mörg brotanna komu í gegn-
um hraðamyndavélarnar í lið-
inni viku, að sögn lögreglu, en
Lögreglan á Vesturlandi sér um
úrvinnslu mála úr öllum hraða-
myndavélum landsins. Að sögn
lögreglu eru myndavélamál það
sem af er nóvember að nálgast
þúsund, en voru 2014 talsins í
síðasta mánuði en 3557 í sept-
ember, svo dæmi séu tekin. Á
fimmtudag var ökumaður sekt-
aður um 40 þúsund krónur fyrir
að tala í síma undir stýri og ann-
ar fékk 20 þúsund króna sekt
fyrir að aka ljóslaus að aftan.
Einn var sektaður um 20 þús-
und krónur fyrir framúrakstur
á óbrotinni línu, þar sem hann
tók fram úr annarri bifreið á
Borgarfjarðarbrúnni. -kgk
Eftirlit með
veiðimönnum
VESTURLAND: Lögreglan á
Vesturlandi var með eftirlit með
rjúpnaveiðum í vikunni sem
leið. Þriðjudaginn 5. nóvem-
ber kl. 17:00 var bókað eftirlit á
Bröttubrekku. Athugað var með
byssur, skotvopnaleyfi og veiði-
kort átta veiðimanna. Voru allir
með allt sitt í lagi. Á laugardag
hitti lögregla fyrir veiðimenn í
Borgarnesi, þar sem þeir voru á
leið á veiðislóð. Reyndust þeir
allir vera með sitt í lagi, utan
þess að einn reyndist ekki vera
með veiðikortið. -kgk
Spólað og
spólað
AKRANES: Lögreglu var
tilkynnt um ökumenn á
fjórum til fimm bílum að
spóla í hringi á bílastæðinu
við Garðavöll á Akranesi á
þriðjudaginn í síðustu viku.
Ökumennirnir höfðu látið af
athæfinu þegar lögregla kom
á staðinn, en lögregla náði
þó tali af ökumönnunum.
-kgk
Sviptingar-
akstur
AKRANES: Á miðvikudag-
inn í síðustu viku var öku-
maður stöðvaður við almennt
eftirlit á Akranesi. Lögregla
veitti bifreið hans athygli og
ákvað að kanna með ástand
ökumannsins. Þá kom í ljós
að hann hafði verið sviptur
ökuréttindum. Á hann yfir
höfði sér 120 þúsund króna
sekt. Lögregla minnir á að
það er litið alvarlegum aug-
um að aka bifreið eftir að
hafa verið sviptur ökurétt-
indum. Í raun sé um varúð-
arráðstöfun að ræða. Fólki
sem hafi verið svipt ökurétt-
indum sé ekki treyst í um-
ferðinni og mun alvarlegra
sé að aka sviptur en að aka án
þess að hafa öðlast ökurétt-
indi. -kgk
Tók augun af
veginum
SNÆFELLSBÆR: Bif-
reið var ekið út af Útnes-
vegi skammt frá flugvellin-
um í Rifi rétt fyrir kl. 23:00
síðasta miðvikudagskvöld.
Ökumaður var að teygja sig
eftir drykkjarbrúsa sem lá við
hlið hans þegar hann missti
stjórn á bílnum. Farþegi
greip í stýrið til að reyna að
aðstoða en bíllinn fór utan í
vegrið og þaðan út af vegin-
um. Fimm voru í bílnum og
allir í bílbeltum. Ökumenn
og farþegar voru fluttir með
sjúkrabíl á heilsugæsluna
í ólafsvík til skoðunar og
reyndust áverkar þeirra að-
eins vera minniháttar. nokk-
uð tjón varð á bílnum, að
sögn lögreglu. -kgk
Innbrot
á Akranesi
AKARANES: Tilkynnt var
um grunsamlegar manna-
ferðir á Akranesi rétt fyrir
miðnætti síðastliðinn laug-
ardag. Hafði sést til manns á
dökkri bifreið að athafna sig
við glugga fyrir utan heima-
hús þar í bæ. Lögregla fór
á staðinn og sáust greinileg
merki þess að gluggi hefði
verið spenntur upp. Þeg-
ar lögreglu bar að kom við-
komandi til dyra. Í töskum
sem maðurinn hafði með-
ferðis fundust munir sem
eru taldir vera þýfi. Var mað-
urinn handtekinn, grunað-
ur um húsbrot og lagt hald
á munina. Í bifreið mannsins
fannst einnig ætlað þýfi sem
talið er að tengist innbrot-
um í Reykjavík. Málið er til
rannsóknar hjá Lögreglunni
á Vesturlandi og Lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu.
-kgk
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og
menningarmálaráðherra hefur nú
lagt fram á Alþingi nýtt frumvarp
um Menntasjóð námsmanna sem
mun koma í stað Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Frumvarpið felur í sér
grundvallarbreytingu á stuðnings-
kerfi ríkisins við námsmenn, þar
sem lánþegar fá 30% niðurfærslu
af höfuðstól námsláns ef þeir ljúka
námi innan ákveðins tíma og náms-
menn með börn á framfæri bein-
an stuðning í stað lána áður. Hvoru
tveggja verður undanþegið lögum
um staðgreiðslu opinberra gjalda.
Skuldastaða námsmanna við náms-
lok verður betri, endurgreiðslutím-
inn skemmri og námsmenn velja
sjálfir við námslok hvort námslán
séu verðtryggð eða óverðtryggð.
Samhliða falla ábyrgðir ábyrgðar-
manna á eldri námslánum niður, ef
lánin eru í skilum og lántaki ekki á
vanskilaskrá.
Í núverandi stuðningskerfi við
námsmenn er námsstyrk ríkisins
misskipt milli lánþega, þar sem
stærstur hluti hans fer til náms-
manna sem taka hæstu námslánin
og fara seint í nám. Þau sem hefja
nám ung og taka hóflegri náms-
lán eru líklegri til að greiða þau til
baka að fullu og hafa því ekki feng-
ið sama styrk frá ríkinu. Lánþegar
hafa í núverandi kerfi litla sem enga
yfirsýn yfir hversu háan styrk þau
hljóta frá ríkinu. Frumvarpið miðar
að því að jafna stuðning og dreif-
ingu styrkja ríkisins til námsmanna
sem taka námslán, með félagsleg-
um stuðningssjóði. Sérstaklega er
hugað að hópum sem reynst hefur
erfiðara að sækja nám svo sem ein-
stæðum foreldrum, fjölskyldufólki
og námsmönnum utan höfuðborg-
arsvæðisins.
mm
Karlmaður sem ákærður var fyr-
ir að ráðast á fyrrverandi kærustu
sína í maí í fyrra var sýknaður í
Héraðsdómi Vesturlands á föstu-
dag. Manninum var gefið að sök
að hafa ýtt konunni niður stiga,
rifið í hár hennar og skellt henni í
vegg, skallað hana í höfuðið og tek-
ið hana hálstaki. Konan hafi við
það hlotið mar og yfirborðsáverka
á hálsi, mar á brjóstkassa og hægri
öxl, upphandlegg og olnboga. Auk
þess hrufl á hægra hné, mar á inn-
anverðu vinstra hné og marbletti á
il og vinstri fæti.
Karlmaðurinn tjáði sig ekki um
sakargiftir né svaraði einstökum
spurningum, bæði við rannsókn
lögreglu og fyrir dómi. Framburður
konunnar lá því einn til grundvallar
við úrlausn málsins.
Fyrir dómi sagði konan að mað-
urinn hefði ýtt á bakið á henni með
þeim afleiðingu að hún féll fram fyr-
ir sig niður stiga fyrir framan íbúð
sína. Þar hefði hann komið að henni
og tekið hálstaki uppi við vegginn.
Hún hafi losnað undan takinu með
því að pota í augað á honum, en síð-
an hlaupið af stað upp stigann. Þar
hafi hann náð taki á hári hennar og
togað hana í gólfið. Þegar hún hafi
staðið upp hefði hún skallað hann
í höfuðið, en dómurinn tók til-
lit til þess að hún hefði líklega átt
við að hann hefði skallað hana. Þá
hafi konan reynt að fela sig og finna
síma til að hringja á lögreglu. Þá
hafi maðurinn gripið í hana og hrist
hana, en hún náð að rífa sig lausa
og hlaupa upp til nágranna síns og
banka þar ítrekað á dyrnar.
Dómstóllinn mat framburð kon-
unnar trúverðugan en sagði ekki
hægt að líta framhjá því að í hon-
um gætti nokkurs ósamræmis frá
fyrri framburði hennar hjá lög-
reglu; „sem aftur rýrir óhjákvæmi-
lega trúverðugleika hans og sönn-
unargildi,“ eins og segir í dómnum.
„Þar sem framburður hennar fær
ekki stuðning af öðrum gögnum en
vottorði læknis um þá áverka sem
greindust á henni þykir, gegn neit-
un ákærða, ekki komin fram nægi-
leg sönnun, sem ekki verði véfengd
með skynsamlegum rökum,“ segir í
dómnum. Maðurinn var því sýkn-
aður og skaðabótakröfu konunn-
ar vísað frá. Sakarkostnaður vegna
málsins greiðist úr ríkissjóði.
kgk
Menntasjóður námsmanna
tekur við af Lánasjóðnum
Sýknaður af árás á fyrrverandi kærustu
Ósamræmi í framburði konunnar