Skessuhorn - 13.11.2019, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 13. nóVEMBER 20198
Aflatölur fyrir
Vesturland
2.-8. nóvember
Tölur (í kílóum) frá
Fiskistofu:
Akranes: 5 bátar.
Heildarlöndun: 22.789 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 14.031
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 6 bátar.
Heildarlöndun: 237.609 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.721 kg í einni löndun.
Ólafsvík: 13 bátar.
Heildarlöndun: 184.349 kg.
Mestur afli: Tryggvi Eðvarðs
SH: 44.227 kg í sex róðrum.
Rif: 9 bátar.
Heildarlöndun: 135.031 kg.
Mestur afli: Stakkhamar SH:
34.421 kg í þremur löndun-
um.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 117.436 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
67.329 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH - GRU:
67.721 kg. 6. nóvember.
2. Þórsnes SH - STY: 67.329
kg. 4. nóvember.
3. Runólfur SH - GRU:
65.380 kg. 4. nóvember.
4. Farsæll SH - GRU: 52.410
kg. 6. nóvember.
5. Sigurborg SH - GRU:
48.369 kg. 6. nóvember.
-kgk
Tilkynnt um
sprengingu
AKRANES: neyðarlínu var
tilkynnt um sprengingu á
skátalóðinni svokölluðu við
Skagabraut á Akranesi laust
fyrir kl. 21 á föstudagskvöld.
Lögreglan á Vesturlandi fór á
staðinn og kannaði málið en
varð einskis vísari. -kgk
Féll úr stiga
SNÆFELLSBÆR: Karl-
maður féll úr stiga í heima-
húsi í Snæfellsbæ aðfararnótt
sunnudags. Talið er að mað-
urinn hafi fallið um það bil
þrjá metra. Hlaut hann skurð
á höfði. Að sögn lögreglu fór
sjúkrabíll á staðinn og kom
manninum undir læknishend-
ur á heilsugæslustöðinni í
ólafsvík.
-kgk
Undir áhrifum
VESTURLAND: neyðar-
línu var tilkynnt um hugs-
anlega ölvaðan ökumann á
Akranesi kl. 2:30 aðfararnótt
sunnudags. Gefið var upp bíl-
númer og lögregla hóf leit að
manninum. Bíllinn fannst en
ökumaðurinn ekki. Sama dag,
kl. 14:00, var ökumaður stöðv-
aður í Borgarnesi og látinn
blása í áfengismæli. Reynd-
ist hann yfir mörkum og var
í kjölfarið handtekinn og gert
að gefa blóðsýni. Málið er til
rannsóknar. Fyrr sama dag, kl.
10 um morguninn, hafði öku-
maður verið stöðvaður í Borg-
arnesi grunaður um akstur
undir áhrifum ávana- og fíkni-
efna. Strokpróf gaf til kynna
neyslu kannabiss og var mað-
urinn handtekinn.
-kgk
Fíkniefnafundur
AKRANES: Um kvöldmatar-
leytið á sunnudag barst neyð-
arlínu tilkynningu um hugs-
anlegan fíkniefnafund á Akra-
nesi. Sá sem hafði samband
kvaðst hafa fundið hvítt efni á
salerni sjoppu, sem hann taldi
vera fíkniefni. Lögregla fór á
staðinn og á meðan hún var
þar kom þangað maður sem
er grunaður um að vera eig-
andi efnisins. Maðurinn var
handtekinn og tekin af hon-
um framburðarskýrsla. Mað-
urinn heimilaði leit og við
hana fundust á honum áhöld
til fíkniefnaneyslu. Strokpróf
sem framkvæmt var á honum
gaf jákvæða svörun við neyslu
amfetamíns. Málið er til rann-
sóknar.
-kgk
Á miðri akrein
DALABYGGÐ: Haft var
samband við lögreglu kl. 20:00
á sunnudagskvöld vegna bif-
reiðar sem stóð á miðri akrein
á Vestfjarðavegi um Svína-
dal. Bíllinn var þar mann-
laus, kyrrstæður og ljóslaus
á miðri akreininni og skap-
aði mikla hættu. Kallaður var
út lögreglumaður á bakvakt
í Búðardal sem gekk í málið.
Hægra afturhjól vantaði á bíl-
inn, þannig að hann var óöku-
hæfur. Bíllinn var fjarlægð-
ur með dráttarbíl og fluttur í
Búðardal.
-kgk
Blóðsykurmæling á Akranesi
Laugardaginn 16. nóvember 2019,
bjóða Félag sykursjúkra á Vesturlandi
og Lions klúibbarnir á Akranesi
verður með fría blóðsykursmælingu
ásamt Apóteki Vesturlands.
Mælingin fer fram í verslunar-
miðstöðinni að Smiðjuvöllum 32
(Bónus) og stendur yfir
frá kl. 13.00 - 16.00.
Fólk er hvatt til að nýta sér mælinguna,
sem er því að kostnaðarlausu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
9
Vegagerðin hefur nú hafist handa
við að lækka veginn við áningar-
staðinn Kirkjufell við Grundar-
fjörð. Til stendur að lækka veginn
og auka þar með umferðaröryggi á
svæðinu en fjöldinn allur af ferða-
mönnum stoppar við Kirkjufells-
foss á leið sinni um Snæfellsnes.
Oft hefur verið bent á slysahættu
sem þarna myndast en blindhæð er
skammt frá bílastæðunum þar sem
flestir stoppa. Framkvæmdir eru á
annarri akrein í einu og eru vegfar-
endur beðnir um að sýna tillitsemi
á meðan framkvæmdum stendur.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki
fyrir næstu mánaðamót.
tfk
Skoska sjávarútvegsfyrirtækið Den-
holm Seafoods hefur skrifað undir
kaup á 16 tommu ValuePump dælu
frá Skaganum 3X, eftir nokkurra
mánaða rannsóknar- og þróunar-
vinnu sem fyrirtækin stóðu sam-
an að. Um er að ræða dælu sem af-
kastar allt að 60 tonnum af upp-
sjávarfiski á klukkustund og getur
dælt hráefni allt að tíu metra upp á
við, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Skaganum 3X. Flytur dæl-
an hráefnið um 200 metra frá höfn-
inni og að vinnslu Denholm í gegn-
um 16 tommu rör.
Að sögn Ragnars Arnbjarnar
Guðmundssonar, svæðissölustjóra
Skagans 3X, fer nýjasta gerð dæl-
unnar einstaklega vel með hráefn-
ið á meðan flutningi stendur. Þá
krefst hún enn fremur minni orku
en aðrar dælulausnir. „Einnig mun
hún leysa af flutningabíla sem hafa
verið notaðir til að ferja hráefni frá
höfn og inn í vinnsluhús, sem gerir
þessa vinnslu umhverfisvæna fyrir
viðskiptavin okkar,“ segir Ragnar.
Dælan hefur verið framleidd í
ýmsum formum hjá Skaganum 3X
síðan 1994, en á síðasta ári hóf fyr-
irtækið rannsóknir og prófanir á
nýrri og bættri útgáfu. nýjasta út-
gáfan flytur hráefni í gegnum lok-
að lágþrýstilagnakerfi með lofti og
vökva. Mögulegt er að bæta við
vökvahringrás, krapakerfi, varma-
skiptum, pækilkerfi og fleiru til
að auka virðisauka hráefnis. nýja
dælan er ekki útbúin hefðbundinni
skrúfu heldur snýst hún öll og við
það færist vökvinn og hráefnið í
gegnum hana.
kgk
Framkvæmdir hafnar við Kirkjufell
Fulltrúar Skagans 3X og skoska fyrirtækisins Denholm Seafoods á meðan prófanir
á nýju dælunni stóðu yfir síðastliðið sumar. Ljósm. Skaginn 3X.
Selja nýja gerð af dælu til Skotlands