Skessuhorn - 13.11.2019, Síða 20
Matarauður MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 201920
Bjarteyjarsandur er fjölskyldufyrir-
tæki í Hvalfirði þar sem stunduð er
fjölþætt starfsemi m.a. sauðfjárrækt,
verktakastarfsemi, ferðaþjónusta og
sitthvað fleira. Bjarteyjarsandur hef-
ur verið í ábúð og eigu sömu fjöl-
skyldu síðan 1887 og því má segja
að grunnurinn sé nokkuð traustur
og starfsemin í dag byggi á gömlum
merg. Í dag búa þrjár kynslóðir sam-
an á torfunni, tíu manns í það heila.
Undanfarin tvö ár hafa bænd-
ur á Bjarteyjarsandi verið að leggja
áherslu á og þróað matarupplif-
un heima á bæ. Þeir hafa sótt nám-
skeið, fengið til sín sérfræðinga eins
og kokka, þjóna og matgæðinga og
einnig farið sjálfir í heimsóknir á
staði sem þeim finnst vera að gera
góða hluti þegar kemur að íslensku
hráefni, upplifun og meðhöndlun
matvæla.
„Þessi vinna hefur leitt okkur á
ótrúlegustu brautir,“ segir Arnheið-
ur. „Meðal þess sem við höfum gert
með gestum okkar er kampavíns- og
krabbaveisla í heitum fjörupotti, þa-
ragrill og varðeldur, sláturgerð fyr-
ir new York Times og matreiðslu-
námskeið fyrir vellauðuga Indverja
svo dæmi séu tekin. Ég man eftir því
í eitt skiptið, að þá hafði samband
ein af þeim ferðaskrifstofum sem
við vinnum með og spurði hvort það
væri möguleiki að taka á móti gest-
um, elda með þeim þ.e.a.s. leyfa
þeim að taka þátt í eldamennsk-
unni og svo myndum við öll borða
saman. Þá langaði nefnilega svo að
borða með bóndanum og fjölskyld-
unni hans! Þar sem við erum ekkert
sérstaklega mikið fyrir að segja nei,
þá slóum við til og úr varð hin ótrú-
legasta skemmtun,“ segir Arnheiður
brosandi og heldur áfram:
„Við höfum áhuga á því að halda
áfram á þessari braut, þ.e. að vinna
með hráefnið okkar sem við teljum
af bestu gæðum og það er nú bara
þannig að íslenska lambakjötið hef-
ur ótrúlega sérstöðu sem við erum
stolt af. Við sjáum það ennþá betur
þegar við fáum gesti alls staðar að
úr heiminum hvað við erum með
einstakt hráefni. Það hefur verið
gefandi lærdómsferli að feta inn á
þessa braut. Við kunnum jú ágæt-
lega með sauðfé að fara, en þessi
fullvinnsla, frá haga í maga, hefur
opnað augu okkar enn frekar fyr-
ir tækifærunum og möguleikunum.
Það að fá gesti í heimsókn til okkar,
kynnast þeim og fræða þá og fræð-
ast af þeim, er skemmtileg viðbót
við það sem fyrir er hér á Bjarteyj-
arsandi. Það er kannski bara spurn-
ing þegar þetta er orðið vinsælasta
söluvaran okkar, þ.e. borðað með
bónda, hvort álagið á Guðmund
bónda verði of mikið og við þurf-
um að leita okkur að staðgengli
í verkefnið,“ segir Arnheiður að
lokum, sposk á svip.
hs
Borðað með bónda
Arnheiður Hjörleifsdóttir bóndi á Bjarteyjarsandi
Arnheiður grillar í gestina.
Dinner í fjörunni í sumar.
Þaragrillaður kræklingur og
fleira á boðstólnum.
„Ef sjórinn er hérað,
þá er maturinn okkar
sannarlega úr héraði“
www.langaholt.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7